Tíminn - 19.09.1978, Page 13
Þri&judagur 19. september 1978
13
Haukur Ingibergsson
„Mjög gott SUF-þing”
— nánast allir virkir —
SS — ,/Á heildina litið var
þetta mjög gott SUF-
þing. Þátttakan var betri
og mannskapurinn
hressari en búast mátti
við, þegar tillit er tekið til
lélegs árangurs
Framsóknarf lokksins í
siðustu kosningum"
sagði Haukur Ingibergs-
son, skólastjóri í Bifröst,
þegar blaðið innti hann
álits á SUF-þinginu, sem
haldið var um síðustu
helgi.
„Það mátti finna á
þinginu, að fólk var
reiðubúið til að leggja sitt
af mörkum til að
flokkurínn rísi úr þeirri
lægð sem hann er í."
Aðspurður um störf
þingsins, sagði Haukur:
„Það var mjög jákvætt
við þetta þing, hve
margir voru virkir.
Nánast allir þingfull-
trúar störfuðu í umræðu-
hópum. Þetta var sem
sagt ekki þing, þar sem
fólk sat afsíðis og tók
ekki þátt."
„Það er alveg Ijóst, að
það þarf endur-
skipulagningar við í
Framsóknarf lokknum.
Við þurfum m.a. að
skerpa hugmynda-
fræðina,og það þarf að
Haukur
Ingibergsson:
vinna upp ákveðnari
stefnumótun í ýmsum
málum. Ég held að f lestir
séu á þvf núna, að gera
breytingar".
Að lokum var Haukur
spurður álits á þátttöku
SUF í ungsamtökum
norrænna miðflokka:
„ Ég hef að vísu ekki tekið
mikinn þátt í slíkum
samskiptum. Þó sótti ég
aðalfund NCF í Finnlandi
nýverið og get sagt það,
að ég hafði nokkuð gagn
af þvi, aðallega varðandi
skipulag og starfshætti
st jórnmá laf lokka á
Norðurlöndum. Það var
t.d. mjög athyglisvert,
hvað stjórnmálasamtök á
Norðurlöndum njóta
m i k I u m e i r i
fjárstuðnings af hálfu
ríkisvaldsins en hér, og
hvað það virðist miklu
sjálf sagðari hlutur á
Norðuríöndum að viður-
kenna stjórnmála-
starfsemi sem hverja
aðra félagstarfsemi. Ég
tel það nánast aukaatriði
hvort Framsóknar-
flokkurinn er sammála
öllum sefnumiðum mið-
flokkanna á Norður-
löndum. Þetta eru líkir
f lokkar að sumu leyti, t.d.
frekar dreifbýlisflokkar
að mér virtist, en allir
flokkar hljóta að mótast
af sérkennum sinna
þjóðar og aðstæðum
stjórnmálalífsins."
Jón Þ. Þór. — skrifar um heimsmeistaraeinvígið:
Enn eitt jalnteflið
Eftir hina ævintýralegu
björgun Kortsnojs i 22. einvfgis-
skákinni, töldu margir aö nú
myndi honum takast aö vinna
þá 23. og minnka þannig muninn
niöur i einn vinning. En hér fór
eins og svo oft áöur i þessu ein-
vigi: Kortsnoj sótti og haföi
frumkvæöiö allan timann, en
Karpov slapp fyrir hornog jafn-
teflið var staöreynd.
Hvitt: V. Kortsnoj
Svart: A. Karpov
Drottningarbragö.
1. c4 Rf6
2. Rc3 e6
3.Rf3 d5
4. d4 Be7
5. Bf4
(Kortsnoj er samur við sig.
Þessum leik beitti hann einnig i
9. og 21. skákinni).
5. — 0-0
6. e3 c5
7. dxc5 Bxc5
8. Dc2 Rc6
9. Hdl Da5
10. a3 Be7
(110. skákinni lék Karpov hér
10. - He8,en eftir 11. Rd2 - e5,12.
Bg5- Rd4,13. Dbl - Bf5, 14. Bd3 -
e4, 15. Bc2 - Rxc2+, 16. Dxc2 —
Da6, 17. Bxf6 — Dxf6, 18. Rb3 -
Bd6,19. Hxd5 vann Kortsnoj peð
og siöan skákina).
11. Rd2 e5
12. Bg5 d4
13. Rb3 Db6
14. Bxf 6 Bxf6
15. Rd5 Dd8
16. exd4 Rxd4
17. Rxd4 exd4
18. Bd3 g6
19. Rxf6' | Dxf6
20.0-0 Be6
(Þegar hér var komið sögu
haföi Kortsnoj notaö 25. minútur
af umhugsunartima sinum, en
Karpov aöeins 4! Staöan, sem
nú er komin upp er fremur ein-
föld, en hvitur hefur þó eilitla
yfirburði. Hann hefur hreyfan-
legan peðameirihluta á drottn-
ingarvæng og svarta peðið á d4
gæti orðið slæmur veikleiki i
endatafli. Kortsnoj hugsaði sig
nú um drykklanga stund, en
kallaði siöan Lothar Scmid'yfir-
dómara aö boröinu. Þegar
Schmid kom talaöi Kortsnoj
hátt, benti i sifellu á Karpov og
var reiður. Ahorfendur sáu aö
þeir Schmid skiptust á nokkrum
oröum, ensiöan grúföi Kortsnoj
sig yfir skákinaað nýju. Eftir að
skákinni lauk, sagöi Schmid, aö
Kortsnoj heföi kvartaö yfir þvi
að Karpov truflaöi sig meö þvi
að rugga.sér i stólnum góða!)
21. Hfel Hac8
22. b3 Hfd8
23. Be4 Hc7
24. Dd2 Bg4
25. f3 Be6
26. a4!
(NU fer peðameirihlutinn af
stað).
26. — b6
27. a5 'b5!
(Best. Svartur má ekki leyfa
peðakaup á b6, þar sem hvitur
næði öllum tökum á a—linunni á
eftir).
28. cxb5 Bxb3
29. Hbl Bd5
30. b6 axb6
31. Hxb6!
(Snjöll hugmynd, sem vinnur
nærri þvi).
31, — Hc6
(Eini leikurinn!)
32. Hxc6
(„Sérfræðingarnir” svo-
nefndu héldu fyrst i staö, að nú
gæti Kortsnoj unniö meö 32.
Bxd5 - Hxd5, 33. He8+ - Kg7, 34.
Hb8, en eftir 34. —h5! á svartur
nóga vörn).
32. — Bxc6
33. Bd3 Bd7
34. a6 Bf5
35. Df4
(Kortsnoj ákveður aö fara Ut i
hrókaendatafl, þar sem fjar-
læga fripeöiö gefi ef til vill ein-
hverjar vinningsvonir).
35. - Kg7
36. Bxf5 Dxf5
37. Dxf5 gxf5
38. Hal
(Eftir skákina áleit Kortsnoj,
að 38. Kf2 heföi leitt til vinnings,
en ekki er annaö að sjá en aö
svartur haldi sinu með 38. —
d3).
38. — d3
39. Kf2 He8
(Gulltryggir jafnteflið).
40. Ha2 He7
41. Hd2 og um leiö og Kortsnoj
lék þennan leik skrifaði hann
,,jafntefli”á skorblaöiö,ýtti þvi
yfir til Karpovs, sem kvittaöi
fyrir og gerði hiö sama viö sitt
blaö.
Jón Þ. Þór
ÞAÐ GERIR ÞÚ EF ÞÚ REYKIR.
í TÓBAKSREYK ERU FJÖLMÖRG
ÚRGANGS- OG EITUREFNI, SEM SETJAST
í LUNGUN OG VALDA HEILSUTJÓNI.
SAMSTARFSNEFND
UM REYKINGAVARNIR
Óskum að ráða mann til afgreiðslu-
starfa i teppadeild strax.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist starfsmannastjöra,
er gefur nánari upplýsingar.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Gangavörður
karl e&a kona óskast aö Mýrarhúsaskóla.
Upplýsingar I sima 20980.
Skólastjóri.
Sveitastörf
Karlar og konur óskast til veturvistar.
Upplýsingar gefur ráðningastofa Land-
búnaðarins, simi 19200.
Keflavík
Timinn óskar eftir að ráða umboðsmann
fyrir blaðið i Keflavik.
Upplýsingar i sima 92-1373 eða hjá af-
greiðslustjóra i sima 86300 Reykjavik.