Tíminn - 19.09.1978, Blaðsíða 20
Sýrð eik er
sígild eign
iiáfcCiÖCiII
TRÉSMIDJAN MEIÐUR
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Þriðjudagur 19. september 1978. 20-. tölublað — 62. árgangur
sími 29800, (5 línur)
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp
og hljómtæki
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar opnuð í gær:
„Ekki búið að gera þær
ráðstafanir sem með þarf”
— segir
forstjóri
B.Ú.H.
ESE — Það var heldur fáliðað i Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar er vinna hófst þar að nýju eftir nokk-
urt hlé i gær en að sögn forráðamanna hússins, þá
var vonast til þess að það vandamál yrði úr sögunni
er liða tæki á vikuna.
Skip með farm til Grundartanga
fékk á sig brotsjó:
26 tonna
stykki skolað-
ist útbyrðis
ATA — Skip sem var aö flytja
tæki I verksmiöjuna aö
Grundartanga fékk á sig brotsjó
í gær. Sjórinn tók stykki er nota
átti i verksmiöjuna útbyrðis.
Jón Sigurðsson forstjóri
málmblendifélagsins, sagöi i
viðtali við Timann i gær að fær-
eyskt skipt hafi verið að flytja
hafnarkrana i Grundartanga-
verksmiöjuna frá Arósum i
Danmörku. A leiöinni tii tslands
kom brotsjór á skipiö og tók
undirstöðustykki fyrir kranann
útbyrðis. Stykki þetta sem var
26 tonna þungt var á þilfari
skipsins.
Jón sagði að Grundartanga-
verksmiðjan hlyti ekkert fjár-
hagslegt tjón af þessu slysi.
Verð kranans miöaöist við að
hann væri hingað kominn og
uppsettur. Slysið gæti þýtt drátt
á uppsetningu kranans en ólik-
legt væri aö það seinkaði
uppsetningu sjálfrar verksmiðj-
unnar.
Færeyska skipið mun hafa
laskast eitthvaö og fór þegar til
Færeyja og er nú i viðgerð.
Timinn ræddi i gær viö Guð-
mund Ingvason, forstjóra Bæjar-
útgerðarinnar og var hann fyrst
spurður að þvi hvers vegna
Bæjarútgerðin hefði opnað svo
seint sem raun bæri vitni.
— Þar er að mestu leyti al-
mennum erfiðleikum um að
kenna, en þvi er ekki aö leyna aö
ástandiö er enn mjög erfitt og min
skoðun er reyndar sú aö enn sé
ekki búið að gera þær ráöstafanir
sem með þarf til þess aö rekstur
hússins veröi tryggöur i fram-
tlðinni.
Það þarf að koma þessum mál-
um á fastan grundvöll i eitt skipti
fyrir öll og innlendur kostnaöur
þarf aö vera i samræmi við
hækkanir þær sem verða á
afurðaverði á hverjum tima, en
fari ekki langt fram úr þeim eins
og gerst hefur að undanförnu.
Þá var Guðmundur Ingvason
að lokum spurður að þvi hvort
rekstur yrði hafinn af fullum
krafti og svaraöi hann þvi til, að
stefnt væri að þvi að byrja alveg á
fullu en sökum þess að mæting
starfsfólks i gær heföi ekki veriö
sem best,væri ekki hægt að gera
sér grein fyrir þessu atriöi að svo
stöddu.
Kátt er í réttunum og það er ekki aöeins mannfólkið sem skynjar hina einstöku stemmningu. Eins og
kemur fram I látbragöi þessa fallega rakka, sem varö á vegi Róberts ljósmyndara I Hafravatnsrétt
þykjast hundarnir lfka eiga kröfu til einskonar „upplyftingar.”
Hér eru skrifstofur ASt til húsa en erfitt mun vera fyrir hreyfi-
fatlaöa aö venja hingaö komur sinar vegna fyrirkomulags á lyftu.
Fatlaðir og hús ASÍ:
Allir vilja lagfæra
en lausn ófundin
HR — i Tímanum á laugardaginn var greint frá þvf hversu erfitt væri
fyrir fatiaö fólk aö komast leiöar sinnar I húsi þvi sem er á gatna-
mótum Grensásvegar og Fellsmúla. Þar er m.a. til húsa
Alþýöusamband lslands.
Timinn hafði samband við
skrifstofustjóra ASI og sagði
hann að þetta vandamál hefði
mikið verið rætt, en engin lausn
fundist enn. Lyftan væri á milli
hæða og auk þess væru
lyftudyrnar i þrengra lagi. Hún
hefði fyrstog fremst verið hugsuö
fyrir fatlaða en þeir gætu þó engin
not haft af henni vegna þess
hvernig henni væri fyrir komið.
Þá hafði blaðið samband við
Hrafnkel Thorlacius arkitekt, en
hann teiknaði húsið. Sagöi hann
að veriö væri að ráðgera
breytingar til að auðvelda
fötluðum ferðir um húsið, og væri
það gert i samvinnu við svo-
kallaða ferilnefnd fatlaðra en
hún fjallaði um samgönguvanda-
mál þeirra. Að visu væri ekki búiö
að finna lausn á þessu, en hann
sagði þó avona að þaö yrði von
bráðar.
Útflutningur á fersku dilkakjöti:
„Komst allt til skila
í góðu ástandi”
— segir Jón Ragnar Björnsson
Kás — „Þetta kjöt komst aiít
til skila i mjög góðu ástendi.og
Frakkarnir höfðu ekki yfir
neinu að kvarta i þvi
sambandi”,sagði Jón Ragnar
Björnsson, hjá Framleiðsluráði
landbúnaðarins.en hann
fylgdist með útflutningi á fersku
dilkakjöti til Frakklands og
Danmerkur, sem sagt var frá i
Timanum hér fyrir helgina. En
um var að ræöa 100 skrokka af
fersku dilkakjöti sem fór á sinn
hvorn staöinn, fyrir tilstilli
mjög góðs samstarfs, sem tekist
hefur á milli Sambandsins og
Markaðsnefndar landbúnaðar-
ins.
„Við vorum staddir þarna, ég
og Gylfi Sigurjónsson frá Ham-
borgarskrifstofu Sambands-
ins”, sagði Jón, „þegar
kassarnir voru opnaðir i Paris,
og höfðu Frakkarnir ekki út á
neinn að setja. Gæðin voru eins
og best var á kosið, bæöi
slátrunin og kjötið sem slikt.
Þeir voru búnir að selja þetta
kjöt til Suður-Frakklands, til
Grenoble og nágrennis og átti
það aö fara þangað nóttina eftir.
Þetta er mjög viökvæm vara i
flutningi þar sem mjög strangar
kröfur eru geröar um hitastig,
en umbúðirnar, sem við vorum
með, eru það góöar að
flutningarnir sem slikir eru ekki
vandamál”.
Timinn fékkjiær upplýsingar
hjá Birni Gunnlaugssyni hjá
Búvörud^eild Sambandsins i
gær, að v'el hefði gengiö að selja
þá hundrað skrokka, sem sendir
hefðu verið til Danmerkur. Ekki
hefði hins vegar neitt enn frétst
af sölunni i Frakklandi.
Sá misskilningur kom fram I
frétt Timans fyrir helgina af
þessari sölu, að hér hefði verið
um fyrsta skipti aö ræða , sem
sala á fersku dilkakjöti ætti sér
stað frá tslandi. Svo mun ekki
vera.þar sem Sambandiö hefur
einhverju sinni áður flutt út
ferskt dilkakjöt, þótt auðvitaö
hafi þaö veriö i takmörkuðum
mæli eins og nú.
íslendingur í gæsluvarð-
hald i V-Þýskalandi
— vegna hasssmygls
ATA — 25 ára gamall islendingur situr nú i gæsluvaröhaldi I bænum
Lingen I Vestur-Þýskalandi ákæröur fyrir aö hafa hass I fórum sinum.
islendingurinn var meö 4 kfló af hassi er hann var tekinn þann 12.
þessa mánaöar. Hassiö haföi hann keypt I Amsterdam fyrir jafnviröi
1,7 milljóna króna. Hann mun hafa áformaö aö smygla hassinu til
Kaupmannahafnar eða islands.
Samstarf hefur veriö milli vestur-þýskra og islenskra tollyfirvalda
i máli þessu.