Tíminn - 26.10.1978, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 26. október 1978
Umræður á Alþingi um olíumengun frá hemum:
Aöeins tímaspursmál, hvenær
mengunin ógnar
fiskiðnaði á
Suöurnesjum
— utanríkisráðherra vari sig
blekkingum deildarstjóra
SS — S.l. þriöjudag voru teknar
á dagskrá Sameinaös þings
fyrirspurnir Ólafs R. Grimsson-
ar (Ab) til utanrikisráöherra
um varnir gegn mengun af völd-
um bandarfska hersins, en sem
kunnugt er uppgötvaöist fyrir
skömmu oliusori I jöröu nálægt
yatnsbóium Keflvikinga og
Njarövíkinga.
Herferð gleymskunnar
Ólafur Ragnar sagði m.a.
þegar hannfylgdi fyrirspurnum
sinum ilr hlaöi, aö þaö væri
greinilegt, aö af hálfu islenska
embættismannakerfisins og
islenskra stjórnvalda hefði
„herferö gleymskunnar” veriö
viöhöfð i gegnum árin til aö
þagga niöur ýmsar hættur og
erfiöleika, sem dvöl hersins hér
á landi væru samfara.
Fyrirspurnir þingmannsins til
utanrikisráöherra voru á þessa
leið:
. Tekur utanrikisráöherra
gilda yfirlýsingu deildar-
stjóra varnarmáladeildar
utanrikisráöuneytisins aö
„enginn, hvorki islenskur né
bandariskur aöili, vissi aö
oliu eöa öörum efnum úr flug-
skýli flughersins á planinu
fyrir framan væri veitt Ut i
skurö”?
. Hvaöa likur telur utanrikis-
ráöherra að séu á þvi aö
bandarlski flugherinn viti
hvaö gerist i háloftunum yfir
og I kringum ísland fyrst
hann veit ekkert um stóra
olfuskurði rétt viö eigin flug-
skýli?
3. Hvaöa ráöstafanir hefur
utanrikisráöherra gert til aö
komast aö raun um hver bar
ábyrgðina á þeirri meöferö á
úrgangsoliu sem nýlega var
frir tilviljun uppgötvuö á yfir-
ráöasvæöi bandariska hers-
ins?
4. Hvaða tryggingar eru fyrir
þvi aö starfsemi bandariska
hersins mengi ekki drykkjar-
vatn ibúa á Suðurnesjum?
5. Hvaða breytingar hyggst
utanríkisráðherra gera til aö
koma i veg fyrir aö
bandariski herinn feli oliu og
aörar mengunarvalda i
i'slenskri jörö fyrst fyrri lof-
orö hersins hafa I þessu efni
reynst haldlaus?
Sem svar viö 1. spurningunni
sagöist ráöherrann enga ástæöu
hafa til aö rengja yfirlýsingu
deildarstjóra varnarmáladeild-
ar.
Um 2. sp. kvaö hann enga
ástæðu til aö draga af þessu
máli ályktanir um þaö, hvernig
herliöið gegndi hlutverki sinu i
heild.
Um 3ju sp. sagöi hann m.a. aö
i þessu máli væri um aö ræöa
oliuleka frá stærsta flugskýlinu
á Keflavikurflugvelli. Nærtæk-
ust skýring á menguninni væri
sú, aö einhverjir starfsmenn
þar eöa aörir heföu hellt oliu i
niðurfall, sem eingöngu ætti að
notast fyrir vatn. Væri óvist, aö
um þaö upplýstist, hver bæri
ábyrgðina á sliku gáleysi, þvi
flugskýliö heföi veriö tekiö i
notkun 1954 og gæti þvi veriöum
gamlar syndir aö ræöa.
Um 4. og 5. sp. sagöi ráöherra
að varnarliöið sjálft heföi hags-
muna aö gæta i þessum efnum,
þvi þaö fengi vatn úr sömu
vatnsbólum og sveitarfélögin á
svæöinu. bvi teldi hann engar
llkur á þvi, aö þaö geröi sér far
um aö fela mengun i Islenskri
jörö. Gat utanrikisráöherra
þess aö lokum aö til landsins
væri væntanlegur bandariskur
sérfræöingur til aö kanna þessi
mál og gera tillögur um úrbæt-
ur.
Framhald á bls. 13.
Farfuglahreyfingin
fær lóð í Laugardal
Leiðrétting
1 Timanum i gær, á bls. 7,
birtist gagnmerk grein eftir
Tómas Gunnarsson lögfræöing,
þar sem hann fjaliar um nýsett
lög um eigna- og tekjuskatt, þ.e.
lögin nr 40/1978.
Þau leiöu mistök uröu viö
prentun greinarinnar, aö hluti
setningar féll úr greininni. í
greininni stóö: „Höfuöatriöi er
aö breytingar, sem taka eiga til
skattalegra atvika á árinu 1979
hvaöa lög eru i landinu”,
o.s.frv. 1 stað þessa átti aö
standa: „Höfuöatriöi er aö
breytingar, sem taka eiga til
skattalegra atvika á árinu 1979
hafi veriö geröar fyrir árslok
1978, svo aö menn viti frá byrjun
árs 1979 hvaöa lög eru I landinu,
þegar þeir taka afstööu til
atriöa sem gætu varöaö viö
skattalög”.
Greinarhöfundur er hér meö
beöinn afsökunar á þessum mis-
tökum.
V_____________________y
SJ- Akveöiö hefur veriö aö
Farfugiahreyfingin fái stóra lóö
á horni Laugarásvegar og
Sundlaugavegar en þar er ætlunin
aö byggt veröi farfuglaheimili.
Hróbjartur Hróbjartsson arkitekt
hefur gert frumteikningar aö
mannvirkjunum, sem „Far-
fuglar” hyggjast reisa þarna, en
þaö veröur i allt fjögur hds, ein
kjarnabygging meö skrifstofum,
félags- og þjónustuaöstööu, og
þrjú hús meö gistiherbergjum.
Borgarráö og skipulagsnefnd
hafa samþykkt teikningarnar, en
úthlutunarnefnd á eftir aö leggja
biessun sina yfir máliö.
Þorsteinn Magnússon
framkvæmdastjóri Farfúgla-
deildar Reykjavikur sagöi aö
hann geröi ráö fyrir þvi aö allt
áriö 1980 færi i undirbúningsvinnu
vegna byggingaframkvæmd-
anna.og hún hæfist stax þegar
lóðinni heföi formlega veriö
úthlutað. Fyrir hálfu ári heföi
veriö gert lausleg áætlun um
kostnaö viö fyrirhugaöar
byggingar og hljóöaöi hún upp á
200-300 milljónir króna. Lauslega
heföu veriö athugaöirmöguleikar
á lánum og styrkjum innanlanas
og utan og væru þeir fyrir hendi.
Farfuglar eiga skuldlaust húsiö
Laufásveg 41. Þorsteinn kvaöst
litiö geta sagt um þessar
framkvæmdir aö svo komnu máli
en hann vonaðist til aö skriður
kæmist á framkvæmdir viö
byggingu fyrsta hússins áriö 1980.
Lóö sú sem farfuglar fá nú
væntanlega er nærri tjakistæðinu
i Laugardal og skammt frá sund-
laugunum og er þaö talinn
heppilegur staöur fyrir aösetur
farfuglahreyfingarinnar.
Bændur
athugið!
Eigum nú til afgreiðslu
verð kr. 102.118. - m/ssk
Aukafötur — 28.378.- —
Plötukœla fyrir rörmjaltakerfi — 127.440.- —
'bkmarkaðar birgðir. i
Hafíð þvi samband við sölumann okkarsem fyrst! j
ögin um land allt
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Simi 38900