Tíminn - 12.11.1978, Side 10

Tíminn - 12.11.1978, Side 10
30 Sunnudagur 12. nóvember 1978 1979 er Ar barnsins. Þess hljóta bókasöfn eins og aörar menning- arstofnanir aö minnast. Fullt nafn: Þjónustumiðstöö bókasafna. Heimilisfang: Pósthólf 4028, 124 Reykjavlk Fæðingardagur: 8. ágúst 1978 Foreldrar: Bókavarðafélag Is- lands og Félag bókasafns- fræðinga. Skirnarvottar: Sveinn Hannes- son, viðskiptafræðingur og Sig- mar Armannsson lögfræðingur Dagmömmur: Elin Sigfúsdóttir, viðskiptafræöingur, Þóra Hólm, nemi i bókasafnsfræði. Framfærslufulltrúar: Stjórn Þjónpstumiðstöðvar bókasafna: Þórdis Þorvaldsdóttir, formaður, Elfa Björk Gunnarsdóttir, Kristin H. Pétursdóttir, Nanna Bjarna- dóttir, Finnur SigurjónssonÍHelga ólafsdóttir, Kirsten Olsen, Hrafn Harðarson. Lárus Zóphoniasson, Indriöi Hallgrimsson. Fæðingarhjálp veitti: Ahuga- fólk um bókasafnsmál. Framtiöardraumur aðstand- enda: Aö Þjónustumiðstöð bóka- safna megi verða veruleg lyfti- stöng fyrir öll bókasöfn i landinu einkum almenningsbókasöfn og skólasöfn. Að Þjónustumiðstöö megi ná að sinna öllum þeim há- leitu markmiðum sem henni eru sett og greind eru hér á siðunni og ótal mörgum fleirum. Markmiö nr. 1: Aö vinna aö miöskráningu bóka. Núverandi vandamái: Nú sitja margir tugir ef ekki hundruö manna úti um allt land hver i sinu horni og flokka og skrá bækur. Fæstir hafa nokkra tilsögn fengiö og flestir hafa I höndum úrelt leiðbeiningarit. Enda þótt eigi aö heita svo að sama flokkunar- kerfið sé notað i flestum söfnum,' er mikið misræmi á milli safna. Skráning eða gerð spjaldskrár er jafnmismunandi og söfnin eru mörg. Bók sem er skráð á höfund i einu safni er kannski skráð á þýðanda eöa jafnvel prentsmiðju I öðrum. Viða eru engar spjald- skrár. Sums staöar eru spjald- skrárnar faldar i afkimum safn- anna rétt eins og þær kæmu safn- notendum ekkert viö! Framtiðardraumar: Sam- ræmdar spjaldskrár I öllum al- mennings- og skólabókasöfnum. Hver bók flokkuð eftir gildandi flokkunarreglum. Spjaldskrár sem eru lyklar að öllum safn- kosti. Lyklar sem veita svar viö spurningum starfsliös safnanna og safnnotenda: A safniö bók eftir Guðlaug Arason? A safniö bók með titlinum Fljótt fljótt sagöi fuglinn? A safnið eitthvað um kvikmyndir? Hver gaf út bókina Fátækt fólk? Markmiö nr. 2: Að gefa út alls konar bókfræðileg gögn t.d. spjaldskrárspjöld, samskrár, bókaskrár, bókfræðilykla, upp- lýsingarit um nýjar útgáfur bóka, hljómplatna og snælda. Núverandi vandamál: Bók- fræðileg gögn eru af skornum skammti og þessi skortur hindrar bætta bókasafnsþjónustu. Þarna kemur einnig annaö til og þaö er að margir bókaveröir og um- sjónarmenn safna kunna ekki aö færa sér i nyt þau gögn sem eru til eða vita ekki af þeim. Yfirleitt er útgáfa þeirra svo sein fyrir að takmarkaö gagn veröur af ritinu. Framtíöardraumar: Aö Sá timi komi — fljótlega — að hægt verði aö kaupa spjaldskrárspjöld frá Þjónustumiöstöö yfir allar bækur sem islensk almennings- og skólabókasöfn eiga þegar og munu kaupa I framtiöinni. Þessi draumur er aö nokkru leyti orðinn að veruleika. Þjónustu- miðstöðin getur nú látið i té spjöld yfir 10.000 titla. Söfn merkja við á sérstökum lista hvaða spjöld þau vilja fá og siðan er spjaldasettiö sent þeim. Söfn geta þar að auki fengiö aðstoð við að ganga frá spjöldum og setja upp spjald- skrár. Tvær aðrar stofnanir framleiða nú spjöld handa söfn- um: Rikisútgáfa námsbóka fyrir bækur yngri en 1973 og áfram og Skólasafnamiðstöð Reykjavikur- borgar sem annast þjónustu við bókasöfn I grunnskólum borgar- innar. Framtiðardraumar að- standenda Þjónustumiðstöðvar fela i sér sameiningu þessarar framleiðslu á einn stað. Samskrár eru spjaldskrár eða prentaðar skrár sem veita upp- lýsingar um hve mörg söfn eiga ákveðið rit og auðvelda lán milli safna. Bókfræöilyklar opna leiðina að alls konar upplýsingum sem hingað til hafa verið dreifðar og óaðgengilegar fyrir bókaveröi og safnnotendur. Væri til dæmis ekki stórkostlegt að geta fundið efni dagblaða eftir einum slikum bókfræðilykli? Bókaval er mikiö vandastarf, en meö tilkomu ýmissa upplýsinga- rita um nýjar útgáfur bóka, Is- lenskra og erlendra ættu bóka verðir hægara um vik. Slik rit mundu sennilega einnig hafa örv- andi áhrif á útgáfu. Einnig þyrfti að gefa út upplýsingarit um út- gáfu á ööru efni en bókum: hvaða plötur ætti skólasafn að eiga — hvar bjóðast bestu kjörin? Markmið nr. 3: Að gefa út rit sem varða starfsemi bókasafna t.d. leiðbeiningabækur fyrir bókaverði og rit varöandi stefnur I bókasafnsmálum almennt. Núverandi vandamál: Þau ör- fáu rit.sem gefin hafa verið út á Islensku á þessu sviði eru að mestu eða öllu leyti úrelt. Bóka- verðir sem standa frammi fyrir þeim vanda aö endurskipuleggja safn eða setja á stofn safn, eiga ekki kost á allra nauðsynlegustu hjálparritum. Það er heldur ekki mögulegt að skjótast til Reykja- vikur og læra þar á viku eða tiu dögum að setja upp safn. Simtal '> Hvar á að flokka Listina að kyssa? hjálpar litið.bókavörðurinn kemst bara að raun um að öll þjónusta við bókasöfn er dreifö út um hvippinn og hvappinn, það litla sem er. Bókasafnsfræöi er aðeins kennd I löngu háskólanámi. Nám- skeiö eru stopul og stutt. Stefnu- markahdi rit um bókasafnsmál á Islandi eru engin — ef frá eru tal- in lög og reglugerðir, sem mis- jafnlega vel er fylgt og fullnægja ekki upplýsingaþörfum um þessi mál. Fáein söfn gefa sjálf út leiðbeiningarit fyrir safnnotendur um nauðsynlegustu atriði svo sem opnunartima safns og undir- stöðuþjónustu. Framtlðardraumar: Útgáfa hvers konar leiðbeininga, starfs- reglná, staðla. Hvaö er skólasafn, hvernig á að reka slikt safn þannig að það geti orðið virkt kennslutæki? Hvaða markmið hafa almenningsbókasöfn? Hvernig útlánakerfi hentar best I litlu safni? Hvernig á aö haga innréttingum i samsteypusöfnum (almennings- og skólabókasöfn- um), hvað mega bókahillur vera háar og lágar? Hvað með þjón- ustu fyrir hreyfiskerta notendur? Hvernig getur safnvörður i einu safni fengið lánaða bók úr öðru? Hvernig getur hann útvegað safn- gesti ljósrit af timaritagreinum úr erlendum timaritum sem safn- iö kaupir ekki? öllum þessum spurningum og ótal mörgum öðrum á starfsemi Þjónustumið- stöðvar að svara. Markmið nr. 4: Að annast sam- eiginleg innkaup bókasafna á safnkosti og sjá um band og frá- gang bóka til útláns. Núverandi vandamál: Hingað til hafa bókaverðir, hver um sig oröið að sjá um sig sjálfir I þessu efni — með mismunandi mikilli fyrirhöfn og mismunandi árangri (undantekning eru skólasöfn I Kommóðan sem á aö fara á minjasafn Islenskra bókavarða. Kristín H. Pétursdóttir: Fæðing í kommóöu Það er ekki sama hvernig bækur eru flokkaöar...

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.