Tíminn - 17.11.1978, Blaðsíða 1
Föstudagur
17. nóvember 1978.
256. tölublað 62. árgangur
Rauöi byltingarherinn á
Höfn? — Sjá bakslðu
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
MESTA FLUGSLYS ÍSLENSKRAR FLUGSÖGU
179 manns fórust
með Flugleiðaþotu
þar á meöal átta íslendingar
• 179 manns létu lifið er Flugleiðaþota fórst við
Colombo á Sri Lanka (áður Ceylon) að kvöldi
miðvikudags. Meðal hinna látnu eru átta ts-
lendingar, allt flugliðar. Fimm íslendingar sem
með vélinni voru komust lifs af. Með flugvélinni
voru 246 farþegar, allt Indónesar á heimleið frá
Mekka. Er þetta mesta flugslys i sögu islenskra
flugmála.
• í fyrrakvöld barst Flugleiðum skeyti frá Sri
Lanka þess efnis að 80 manns hafi komist lifs af.
Af þeim voru 35 alvarlega slasaðir á sjúkrahús-
um en 45 manns höfðu hlotið minni háttar meiðsl
og bjuggu á hótelum.
Flugleiöir sendu i gær frá sér
eftirfarandi tilkynningu um slys-
iö:
Skömmu eftir kl. 22:00 i gær-
kvöldi barst aöalstöövum Flug-
leiöa i Reykjavfk sil harmafregn,
aö flugvél félagsins TF-FLA af
geröinni DC-8 heföi farist fyrr um
kvöldiö i aöflugi aö flugvellinum i
Colombo á Sri Lanka þar sem vél-
in var i pflagrlmaflugi.
Meö vélinni voru 246 farþegar
og 8 manna áhöfn, en auk þess
voru I aukaáhöfn 2 flugstjórar, 1
flugfreyja, forstööumaöur flug-
deildar Flugleiöa og deildarstjóri
I flugdeild Flugleiöa eöa 13 Is-
lendingar.
Af þeim fórust 8. Þeir eru:
Haukur Hervinsson flugstjóri,
Guðjón Rdnar Guðjónsson flug-
maöur, Ragnar Þorkelsson flug-
vélstjóri, Erna Haraldsdóttir,
flugfreyja, Sigurbjörg Sveins-
dóttir flugfreyja, Asgeir Péturs-
son yfirflugstjóri, ólafur Axels-
son deildarstjóri i flugdeild. Þór-
arinn Jónsson forstööumaöur
flugdeildar.
5 Islendingar slösuöust og hafa
verið færöir á sjókrahús I
Colombo. Þeir eru: Kristín E.
Kristleifsdóttir, flugfreyja,
Oddný Björgólfsdóttir, flug-
freyja, Þuríður Vilhjálmsdóttir,
flugfreyja, Harald Snæhólm,
flugstjóri, Jónína Sigmarsdóttir,
flugfreyja.
Þeir munu ekki vera lifshættu-
lega slasaðir.
Samkvæmt skeytum frá
Colombo var flugvélin I aöflugi og
brotlenti kl. 18:00 i gærkvöldi aö
Islenskum tima nokkrum milum
frá brautarenda viö erfiö veöur-
skilyröi. Að ööru leyti er ekki
vitaö um tildrög og orsakir slyss-
ins.
Flugvélin TF-FLA var af
geröinni DC-8-63. Hún hafði lengi
veriö I förum á vegum Loftleiöa
og keyptu Flugleiðir hana áriö
1975. Var hún ein af þremur flug-
vélum af geröinni DC-8, sem
Flugleiðir áttu. Flugvélin flaug
Flugleiöavélin sem fórst viö flugvöllinn á Colombo á Sri Lanka. — Myndin er tekin á flugdaginn f ágúst-
mánuöi s.l. en fiugstjóri I þvi flugi var Ásgeir Pétursson en hann var einn þeirra sem fórust meö vélinni f
slysinu.________________________ Tfmamynd Róbert
Islendingarnir sem fórust
Ásgeir Pétursson, yfirflugstjóri,
48 ára, kvæntur, til heimilis aö
Furulund 9, Garöabæ.
Ólafur Axelsson, deildarstjóri i
flugdeild, 47 ára, kvæntur, til
heimilis aö Kóngsbakka 3, Rvk.
Guöjón Rúnar Guðjónsson, flug-
maöur, 38 ára, kvæntur, til
heimilis aö Bergþórugötu 33,
Rvk.
Haukur Hervinsson, flugstjóri,
42 ára, kvæntur, til heimilis aö
Uröarstekk 1, Rvk.
Ragnar Þorkelsson, flugvél -
stjóri, 55 ára, kvæntur, til heim-
ilis aö Hliöarvegi 18 Kóp.
Þórarinn Jónsson, forstöðu-
tnaöur flugdeildar, 52 ára,
kvæntur, til heimilis aö Skóla-
geröi 36, Kóp.
Erna Haraldsdóttir, flugfreyja,
38 ára, gift, til heimilis, aö Tún-
götu 7, Rvk.
Sigurbjörg Sveinsdóttir, flug-
freyja, 37 ára, gift, til heimilis
aö Hraunbrún 6, Hfn.
um kl. 14:00 1 fyrradag frá
Luxemborg til Aþenu þar sem
áhafnahvild var tekin. Siöan var
flogið i gærmorgun frá Aþenu til
Jeddah i Saudi-Arabiu og hélt vél-
in þaöan fullhlaðin pilagrimum
kl. 12:00 samdægurs, áleiöis til
Surabaya á Jövu meö millilend-
ingu i Colombo á Sri Lanka.
Aukaáhöfn og starfsmenn áttu aö
fara af I Colombo en hluti áhafna
haföi fariö þangaö áöur meö ööru
flugfélagi.
Þetta var fyrsta feröin I siöari
hluta pilagrimaflugs Flugleiöa
milli Surabaya i Indónesiu og
Jeddah I Saudi-Arabiu. Alis áttu 6
flugáhafnir aö annast þetta flug
þ.e. 48 flugliöar auk flugvirkja af-
greiösluliðs og rekstrarstjóra eöa
alls 62 starfsmenn.
Flugleiöir, stjórn félagsins og
starfsfólk eru harmi slegin yfir
þessu slysi og votta aðstandend-
um þeirra sem fórust dýpstu
samúö.
Fréttir af flugslysinu á
flugvellinum við Colombo
á Sri Lanka
eru einnig á bls. 12-13
/