Tíminn - 17.11.1978, Side 5
Föstudagur 17. nóvember 1978
5
fólk
I
HEI — ,,Jú, það var stór dagur í gær, saltað í rúmar
lóOOtunnur, allt hausskorið og slógdregið. Þetta hefur
því áreiðanlega verið verðmætasti dagurinn á vertíð-
inni til þessa", sagði Guðmundur Finnbogason,
verkstjóri í söltunarstöð Fiskimjölsverksmiðju
Hornaf jarðar h.f., er blaðamaður var þar á ferð s.l.
þriðjudag.
„Aöur höfum viö aö visu kom-
ist upp i aö salta 1700 tunnur á
einum degi, en sii slld var heil-
söltuö og þvl mun veröminni.
Heildarsöltunin hérna I stööinni
var i nótt komin upp 1 um 28.500
tunnur og er þar meö oröin sil
mesta sem nokkru sinni hefur
veriö saltaö hjá einni sildarsölt-
unarstöö á einni vertiö. Viö von-
umst til aö komast I 30.000 tunn-
ur i dag eöa á morgun.
— Þetta hefur veriö erfiöur en
trúlega drjúgur dagur hjá
söltunarstúlkunum þlnum?
— Já þetta var góöur dagur
hjá þeim. Þær voru 57 aö salta,
flest þrælvanar konur, svo af-
köstin eru nokkuö jöfn. En
stúlkurnar eru svo friskar, aö
þaö sást ekki þreyta á þeim
þegar þær voru aö hætta um 3
leytiö i nótt, eftir 14 tima törn.
— Er þaö aöallega heimafólk
sem vinnur i slldinni hjá ykkur?
— Konurnar eru nær allar
húsmæöur hérna aö heiman og
fæstar þeirra vinna utan
heimilis, nema um sildartim-
ann, svo þeirra vinnu fer aö
ljúka þetta haustiö. Karlmenn-
irnir eru aftur á móti aö meiri-
hluta aökomnir, og þeir halda
áfram þvi mikil vinna er eftir
viö sildina, þótt söltun sé lokiö,
viö aö búa hana til útflutnings.
— Hvert fer svo þessi sild?
— Hún fer viöa. Þegar eru
farnar 2000 tunnur til Póllands,
búiö er aö salta fyrir Rússa og
veriö aö ljúka söltun upp I
samninga viö Þjóöverja og
Svia. Þá höfum viö lika saltaö
7.000 tunnur fyrir Niöursuöu-
verksmiöju K. Jónssonar á
Akureyri, sem þeir siöan vinna
á Rússlandsmarkaö.
— En hvernig er hér yfir
vetrarvertiöina Guömundur, er
þá nægt vinnuafl á staönum?
— Nei þaö er meirihlutinn aö-
komufólk sem vinnur i
frystihúsinu. Hingaö vantar fólk
i stórum stil. Þó er alltaf aö
fjölga hérna á staönum, bæöi er
aö fólk flyst hingaö og fátt af
unga fólkinu flytur héöan I
burtu, enda ótrúlegt aö þaö hafi
þaö betra annarstaöar. En hér
vantar fyrst og fremst húspláss.
% Hiö myndarlega hús (verbúö) sem útgeröarmenn og Kaupfélagiö á Höfn hafa byggt yfir starfs-
fólk sitt, er alltaf fullsetiö. Sfldarstúlkurnar voru mjög ánegöar meöaöbúnaöinn Ihúsinu.
Mikiö bætti úr skák þegar út-
geröarmenn og Kaupfélagiö
byggöu verbúö sem rúmar um
80 manns, mjög gott hús sem
alltaf er fullt af fólki, en þaö
nægir engan veginn.
— En nú sýnist mér aö fjöldi
húsa séu hér nýbyggö og i bygg-
ingu?
— Já, þaö er mikiö byggt.
Ekki veit ég þaö nákvæmlega,
en ég hef heyrt aö bygging hafi
hafist á 70-80 húsum á þessu ári.
— Fólk viröist þá hafa þaö
gott hér á Höfn og næga vinnu?
— Þaö er hreinlega allt of
mikil vinna, vægast sagt þræla-
vinna, bæöi á þessum tima og á
vertiöinni. En fólkiö er duglegt
og vinnusamt og lætur engan
bilbug á sér finna. Maöur er
eiginlega undrandi hvaö þaö
getur afkastaö miklu.
— En hvaö vilt þú segja um
þaö sem haldiö hefur veriö
fram, aö útflutningsveröiö á
sildinni standi ekki undir kostn-
aöi viö vinnsluna?
— Ég vil nú ekki trúa þvi aö
þetta standi ekki undir sér og
þótt aröur veröi ekki mikill, þá
gefur þetta mikla fjármuni til
fólksins og útgeröarmannanna
og þaö er nú aldeilis gott.
Guömundur Finnbogason verkstjóri var ánægður á mánu-
daginn eftir aö söltunarstööin sem hann stjórnar, haföi
sett landsmet I söltun deginum áöur.
Hingað vantar
í stórum stíl
— segir Guðmundur
Finnbogason,
verkstjóri á Höfn
Þörungavinnslan seldi
fyrir 300 millj-
nir á þessu ári
— Framleiddi tæp 3000 tonn af
þangmjöli
—' Þaraöflun enn i gangi
Þangöflun aö Reykhólum i sumar
Tfmamynd: K.H.
S.l. sunnudag fór siöasti farmur
þangmjöls á þessu ári frá
Þörungavinnsiunni h.f. á Reyk-
hólum til Skotlands meö m.s.
Urriöafossi. Hafa þá alls veriö
flutt á eriendan markaö á þessu
ári um 2.700 tonn þangmjöls, auk
þess hafa veriö seld innanlands
um 230 tonn. Þá hafa veriö fram-
leidd 30 tonn þaramjöls. Saman-
iagt verömæti framleiöslunnar
þaö sem af er þessu ári mun vera
um 300 millj. króna fob.
Þetta kom m.a. fram I viðtali
sem Timinn átti viö Ólaf E. Ólafs-
son fyrrverandi kaupfélags-
stjóra, sem er einn af stjórnar-
mönnum verksmiðjunnar.
Oflun þangs hófst um miðjan
april en lauk i október. Unnið var
meö 7 sláttuprömmum og aflaö á
þann hátt 11.686 tonna af blautu
þangi, en meö m.s. Karlsey var
aflaö um 250 tonna af þara. Viö
þangsláttinn störfuöu aö jafnaöi
um 30 manns en fastir starfsmenn
verksmiöjunnar eru 14. Þá er
meötalin áhöfn m.s. Karlseyjar,
skipsins sem annast flutning
þangsins til verksmiöjunnar og
öflun þarans.
Bilanir á verksmiðjunni og
tækjum hennar ollu engum telj-
andi töfum á árinu og meö þeirri
borun eftir heitu vatni, sem fram-
kvæmd var s.l. vor, fékkst nægi-
legt vatn til aö fullnægja þörfum
verksmiöjunnar.
Talið er fullvist aö slægjulönd
séu fyrir hendi viö Breiöafjörö er
nægi verksmiöjunni og svo viröist
sem endurvöxtur þangsins sé þaö
ör aö slá megi löndin þriöja hvert
ár með góöum árangri án þess aö
skaða þanggróöurinn.
Til hátiöa mun verksmiöjan
framleiða þaramjöl en um
áramót fer starfsfólk i orlof en aö
þvi loknu er ráögert aö hefja
starfsrækslu á ný og framleiöa
þaramjöl þar til þangskuröur get-
ur hafist aö vori.
Framkvæmdastjóri Þörunga-
vinnslunnar er ómar Haraldsson.
Karlsey er nú viö þaraöfl-
un.Helmingi minna þaramjöl
fæst úr blautum þara, en þang-
mjöl úr blautu þangi, eöa 12 tn af
mjöli úr 100 af þara, en 25 tn af
mjöli úr 100 tn af þangi.