Tíminn - 17.11.1978, Qupperneq 6

Tíminn - 17.11.1978, Qupperneq 6
6 Föstudagur 17. nóvember 1978 íOtgefandi Framsóknarilokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjór.n og' auglýsiugar Siöumiíla 15. Sfmi 86300. i Kvöldsfmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 110.00. Áskriftargjáid kr. 2.200 á’ ____mánuöi._________^ ______Blaöaprent h.f. Samið um fjárlögin fyrir opnum tjöldum Stjórnarandstæðingar reyna að gera sér nokkurn mat úr þvi, að það kom fram við fyrstu umræðu um fjárlagafrumvarpið, sem reyndar var vitað áður, að nokkur ágreiningur væri um viss atriði þess milli stjórnarflokkanna. f greinargerð fjárlagafrumvarpsins er þessum ágreiningsatrið- um lýst, svo að þetta þurfti ekki að koma neinum á óvart. Svo er að skilja á skrifum og ræðum stjórnar- andstæðinga, að stjórnarflokkarnir hefðu átt að jafna þennan ágreining áður en frumvarpið var lagt fram á þinginu. Við þessa kenningu er það fyrst að athuga, að hefði þetta verið gert, myndi hafa dregizt að leggja frumvarpið fyrir þingið. Sá dráttur, sem hafði orðið á þvi vegna stjórnarskipt- anna, mátti ekki verða lengri, ef fjárveitinganefnd átti að fá tima til að vinna að frumvarpinu, svo að hægt yrði að ljúka afgreiðslu þess fyrir áramót. Það verða heldur ekki talin óeðlileg vinnubrögð, heldur miklu fremur æskileg, að þau ágreinings- atriði, sem hér er um að ræða, verði leyst fyrir opnum tjöldum. Þegar ólikir flokkar standa að rikisstjórn, gerist það alltof oft að reynt er að jafna ágreining þeirra bak við tjöldin og þannig sýnd málamyndaeining út á við. Jafnt fyrir kjósendur og flokkana sjálfa er það heppilegra og heil- brigðara, að ágreiningsefnin séu ekki falin, heldur jöfnuð fyrir opnum tjöldum. Kjósendum^ er þá ljósara hver afstaða flokkanna er og hvað þeir verða að vinna til málamiðlunar. Þótt Framsóknarflokkurinn væri samþykkur þeirri afstöðu fjármálaráðherra að leggja frum- varpið fram i þvi formi, sem það er, merkir það ekki, að það sé endanleg afstaða til málsins. Bæði af hálfu fjármálaráðherra og flokksins er skýrt tekið fram, að þessir aðilar vilji stuðla að sam- komulagi um ágreiningsefnin. Framsóknarflokkurinn skilur vel afstöðu hinna stjórnarflokkanna. Vissulega væri æskilegt að geta orðið við þeirri tillögu Alþýðubandalagsins að draga minna úr opinberum framkvæmdum. Að- kallandi óleyst verkefni biða hvarvetna. Það er hins vegar ekki hægt að gera allt i einu, og höfuð- máli skiptir nú i glimunni við verðbólguna, að fjár- lögin verði afgreidd hallalaus. Þá væri ekki siður æskilegt að geta lækkað beinu skattana og þeir ekki aftur látnir nálgast það, sem þeir voru, þegar viðreisnarstjórnin lét af völdum sumarið 1971, en þeir voru verulega lækkaðir i tið vinstri stjórnar- innar á árunum 1971-1974. Lækkun beinna skatta má hins vegar ekki verða til þess að halli verði á fjárlögum. Við hugmyndir Alþýðuflokksins um lækkun út- flutningsbóta til landbúnaðarins er það að athuga, að upphæð sú, sem er áætluð til þeirra i f járlaga- frumvarpinu, er byggð á lögum, sem sett voru i tið viðreisnarstjórnarinnar, en þau voru aftur byggð á samkomulagi milli bændasamtakanna og laun- þegasamtakanna. Slikt samkomulag er ekki hægt að rjúfa fyrirvaralaust. öll verða þessi ágreiningsefni til umfjöllunar næstu vikur. Það ætti ekki að spilla fyrir sam- komulagi, þótt stjómarflokkarnir geri ljós sér- sjónarmið sin og hverju þeir kunni að þurfa að fórna til þess að ná málamiðlun. Þau vinnubrögð á ekki að forðast að semja þannig fyrir opnum tjöld- um. Þvert á móti ætti það að geta orðið lýðræðinu til stuðnings og álitsauka, að stjórnarkerfið sé sem mest opið bæði á þennan og annan hátt. Þ.Þ. Erlent yfirlit Þjóöverjar minnast kristalnæturinnar Franskur Gyðingahatari leysir frá skjóðunni Hinn 9. nóvember siöastl. var haldinn i Köln eins konar minningarfundur i tilefni af þvi aö þá voru liöin 40 ár frá hinni svokölluöu kristalsnótt, þegar stormsveitir nazista fóru um götur Berlfnar og fleiri þýzkra borga og unnu öll hugsanleg skemmdarverk á bænahósum og verzlunum Gyöinga. Nær tvö hundruö bænahús þeirra voru brennd og eyöilögö. Gluggar voru brotnir í þúsundum verzlana og fyrirtækja, sem Gyöingar áttu, og jafnframt unnin mörg önnur skemmdar- verk. Um tuttugu þúsund Gyöingar voru fangelsaöir, um 90 þeirra féllu f þessum átökum og enn fleiri uröu fyrir alvar- legum likamsmeiöslum. Þetta var hámark Gyöingaofsókn- anna f Þýzkalandi áöur en heimsstyrjöldin brauzt út. Sú villimennska, sem hér brauzt fram, haföiekki átt sinn lika um langan tima i Evrópu. Tilefni þessarar skipulögöu ofsóknarherferöar storm- sveitanna var þaö, aö daginn áöur haföi ungur Gyöingur skotiö þýzkan sendisveitar- mann i þýzka sendiráöinu i Paris. Hann geröi þaö i hefndar- skyni vegna þess, aö foreldrar hans höföu veriö fluttir nauöungarflutningi til Póllands frá Þýzkalandi. Hitler ákvaö aö nota þaö tækifæri til aö siga stormsveitunum á Gyöinga næstu nótt á þann hátt, sem er lýst hér aö framan. Frásögnum sjónarvotta bar yfirleitt saman um, aö stormsveitarmennirnir heföu f aöförum sinum minnt meira á villidýr en menn. Slik áhrif haföi æsingaiöja nazista- leiötoganna haft á þá. A minningarfundinum, sem haldinn var i Köln, flutti Helmut Schmidt kanslari aöalræöuna. Hann lét svo ummælt aö flestir þeirra Þjóöverja, sem nú væri lifandi, væruaö mestu saklausir af glæpum nazista sem einstakl- ingar. Sameiginlega yröu þeir þó aö taka á sig ábyrgö og afleiöingar vegna þessarar sektar. óttinn viö nazistaleiö- togana heföi veriö slikur, aö menn heföu ekki þoraö aö mótmæla ofsóknunum gegn Gyöingum, heldur þagaö og látizt ekki vita um þær. Jafnvel kirkjan heföi þagaö. SCHMUDT vék aö þvi deiluefni i ræöu sinni, hvort framlengja ætti frestinn til aö hefja mála- ferli gegn mönnum vegna striösglæpa. Samkvæmt gild- andi lögum fellur hann niöur á Schmidt ihugar aö lengja frestinn. næsta ári. Gyöingar hafa gert kröfu um, aö þessi frestur skuli framlengdur. Schmidt lofaöi, aö máliö yröi tekiö til athugunar. Hans-Jochen Vogel dómsmála- ráöherra, sem er flokksbróöir Schmidts hefur lýst yfir þvi, aö hann vilji framlengja frestinn. Aftur á móti geröist þaö á flokksþingi Frjálslynda flokksins, sem haldinn var nú um helgina, ■ aö formaöur flokksins, Genscher utanrlkis- ráöherra, lýsti sig mótfallinn þvi aö fresturinn yröi fram- lengdur. Genscher sagöist hafa ihugaö þéssi mál vandlega og komizt aö þeirri niöurstööu, aö þetta þjónaöi bezt hagsmunum Þýzkalands bæöi heima fyrir og út á viö. Þótt hægt sé aö skilja afstööu Gyöinga, hefur sjónarmiö Genschers ekki siöur mikiö til sins máls. Rettarhöld þau, sem nú fara fram I Þýzkalandi vegna svokallaöra Gyöinga- mála og striösglæpamála, minna meira á leiksýningar en venjuleg réttarhöld. Astæöan er sú, aö svo langur timierliöinn siöan umræddir atburöir geröust, aö erfitter aö fá örugga vitnisburöi og auövelt reynist þvi fyrir verjendur aö flækja og tefja málin. Mikil spurning er, hvort þessi réttarhöld eru ekki vatn á myllu nýnazista. Meira máii skiptir aö berjast gegn nýnazismanum og halda Genscher andvigur þvi aö lengja frestinn. hryöjuverkum nazizta á lofti en aö vera aö eltast viö háaldraöa einstaklinga. í áöurnefndri flokksþingsræöu sinni lagöi Genscher áherzlu á, aö draga ætti úr þvi eins mikiö og hægt væri, aö rannsaka skoöanir manna I sambandi viö stööu- veitingar, en þetta hefur mjög bitnaö á róttækum vinstri mönnum. A ýmsan hátt minnir siik njósnastarfsemi á starfshtti nazista ogeróneitanlega blettur á vestur-þýzku stjórnarfari. Genscher hefur hér tekiö lofs- veröa afstööu. ENFLEIRI hafa veriö sekirum Gyöingaofsóknir en Þjóöverjar. Þetta rifjaöist upp, þegar franska blaöiö L’Express birti nýlega viötal viö Louis Darquier, en hann haföi um skeiö þaö hlutverk á hendi hjá Vichy-stjórninni, sem fór meö völd i Frakklandi á hernáms- árunum, aö annast málefni Gyöinga. Undir stjórn hans og fyrir atbeina hans voru um 75 þúsund franskir Gyöingar fluttir i fangabúöir I Þýzkalandi og Póflandi og týndu flestir þeirra lifi I gasklefum þar. Darquier var tekinn fastur i striöslokin og dæmdur til dauöa 1948 vegna samvinnu viö Þjóö- verja á strlösárunum, en ekki vegna meöferöarinnar á Gyö- ingum. Honum tókst aö strjúka úr landi og hefur dvaliö á Spáni siöan. Þar ræddi fréttamaöur L’Epress viö hann. Darquier var ekki myrkur i máfl. Hann sagöi um brottflutninginn á Gyöingum, aö þaö heföi veriö nauösynlegt aö losna viö þessa útlendinga og þaö heföi veriö þvi betra sem þeir heföu veriö fluttir lengra burtu. Þaö voru þeir, sem vildu fá styrjöld og drógu Frakkland inn I styrjöld- ina. Þaö þurfti aö losna viö Gyöingana. Viötal þetta vakti aö vonum mikinn styr i Frakklandi. Margir hafa deilt á L’Express fyrir aö birta þaö, þvi aö meö því væri Gyöingahatara gert of hátt undir höföi. Aörir hafa oröiö til aö minna á, aö Frakkar hafi veriöslöur en svolausir viö andúö á Gyöingum og hún sé fyrir hendi enn. Hins vegar sé nú betra aö vera Gyöingur i Frakklandi en Arabi eöa blökkumaöur. Kynþáttaandúö sé því enn ekki úr sögunni og þaö sé ekki ógagnlegt aö rifja upp fortlöina til viövörunar fyrir nútiöina. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.