Tíminn - 08.12.1978, Síða 12

Tíminn - 08.12.1978, Síða 12
12 Föstudagur 8. desember 1978 Islensk kvikmvnda- gerð í vitahring fjárskorts Saga íslenskrar kvikmyndageröar er harla stutt í árum mæld ef f rá eru talin eins konar inngangsorð brautryðjanda eins og óskars Gíslasonar og Lofts Guðmundssonar. Tæplega er hægt að tala um fs- lenska kvikmyndagerð fyrr en með stofnun sjón- varpsins árið 1966. Innlend kvikmyndagerð er þannig aðeins 12 ára gamalt fyrirbrigði sem ekki er hár aldur miðað við ævagamlar menningarhefðir annarra listgreina. Islenska sjónvarpiB hefur frá upphafi lagt megináherslu á gerö heimildarkvikmynda, þótt geró hafi verið ein og ein leikin kvikmyndt.d. Lénharður fógeti. Ýmislegt bendir til þess að meö þjóðinni sé vaknaður skilningur á mikilvægi islenskrar kvik- myndageröar. Sérstaklega þvi hlutverki hennar aö stuöla að varöveislu og þróun íslensks menningararfs. Sem dæmi um þennan aukna skilning má nefna frumvarp Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrverandi menntamálaráðherra, um Kvikmyndasjóð Islands. Þetta frumvarp náöi fram að ganga á Alþingi s.l. vor. Fleira mætti tina til sem stefnir að þvl að greiöa götu innlendrar kvik- myndageröar. Dagana 25. og 26. nóvember var haldin á vegum Sambands ungra framsóknarmanna ráöstefna sem bar yfirskriftina Listir á llöandi stund. Meðal þeirra sem fluttu erindi á ráöstefnunni var Siguröur Sverrir Pálsson varaformaður Félags kvikmyndageröar- manna, en þaö er félagsskapur þeirra sem vinna hinn svo- nefnda skapandi þátt kvik- mynda. Til þess hóps teljast stjórnendur, tökumenn, hljóð- menn og klipparar. Sigurður Sverrir fjallaöi á ráðstefriunni um efniö Kvikmyndir á llðandi stund. Eftir erindaflutninginn rabbaði Kvikmyndahorniö við Sigurð um helstu baráttumál Is- lenskra kvikmyndagerðar- manna og stöðu innlendrar kvikmyndagerðar. Samtaliö fer hér á eftir. Hljóösetningartæki væntanleg — Þaö er kannski rétt að geta þess í upphafi að Félag kvik- myndageröarmanna var stofnað árið 1966 eða um svipaö leyti og sjónvarpiö hóf starf- semi sfna. Fram að þeim tima voru tæpast starfsmöguleikar hérlendis fyrir kvikmynda- gerðarmenn. Frá stofnun hefur félagið annast samninga f.h. kvikmyndageröarmanna t.d. við sjónvarpið. Sá samningur, sem nú er I gildi milli þessara aðila gerir ráð fyrir að greiösla fyrir hverja minútu kvik- myndar sé um krónur 45 þús- und. Félag kvikmyndagerðar- manna hefur nokkuð unnið að þvl að búa I haginn fyrir félags- menn. A sinum tlma voru fest kaup á klippiboröi, væntanleg eru hljóðsetningartæki og unnið er að byggingu upptökuhús- næðis. — segir Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndagerð armaður i viðtali við Kvikmynda- Kvikmyndasjóður fái fastan tekjustofn Það vandamál sem er einn helsti Þrándur I Götu kvik- myndageröarmannaer þaðsem kalla má vítahring fjárskorts- ins. Allt frá upphafi kvikmynda- geröar á lslandi hafa menn reynt aö gera myndir eins ódýrt og hægt hefur verið aö komast af með. Afleiöingin er að Is- lenskar kvikmyndir hafa oftast verið tæknilega óviðunandi. A slðustu árum hafa gæðakröfur aukist af hálfu áhorfenda en vegna þeirrar venju aö myndir séu gerðar fyrir lágmarksfjár- magn hefur gengið treglega að fá nauðsynlegan tækjakost til að mæta þessum auknu kröfum. Afleiöing fjárskortsins er þvl slakar kvikmyndir sem kosta tiltölulega litið og það sem verra er, þessar ódyru og um leiö slöku kvikmyndir eru gjarnan hafðar til hliðsjónar þegar metinn er kostnaöur viö gerö annarra mynda. Hér þarf aö veröa hugarfarsbreyting. Við veröum aö horfast I augu við raunverulegan kostnað — kvik- myndagerö er langt frá þvl að vera ódýr list. Hins vegar má jafnframt hafa það i huga að góö kvikmynd verður aldrei of dýr, húnborgar sig alltaf að lok- um. Almennt mun álitið i dag að 30 mln. heimildarmynd kosti á bilinu 6-10 milljónir. Einnar minútu auglýsingamynd þar sem allur kostnaður er greiddur kostar u.þ.b. 1 milljón króna. Ef þessar tölur eru bornar saman sjáum við hversu munurinn er mikill. Jafnvel þótt hlutfallslega sé dýrara að gera stutta mynd en langa er raunverulegur kostnaöur 30 min. heimildar- myndar, sem einhver vinna er lögð f,um 12-15 milljónir. A allra siðustu árum hefur nokkuðmiðað I áttina. Arið 1972 ákvað Menningarsjóöur að veita einn styrk á ári til að kosta gerð kvikmyndar. Þaö ár var styrkurinn 500 þds. kr., en í ár 2 milljónir kr. Kvikmyndasjóður var stofnaður meö lögum I vor en hlutverk hans er að styrkja Islenska kvikmyndagerð með beinum fjárframlögum eða lán- um til kvikmyndageröarmanna. Akveðið var fast fjárframlag til sjóðsins af fjárlögum,krónur 30 milljónir sem úthlutað veröur I fýrsta skipti næsta ár og nægir væntanlega til að kosta gerð tveggja til þriggja stuttra mynda. Auðséö er aö 30 milljón- ir eru nú þegar of lág upphæð, þess vegna er það höfuöatriöi aö aflasjóðnum meiritekna. Kvik- myndageröarmenn hafa lagt það til viö menntamála- ráðherra, aö allur sá skattur horníð .*. $ > Snorri Sturluson: Kvik- myndaður I tilefni 800 ára af- mælisins á næsta ári. Sv.„lr PílHm sem nú er lagður á aögöngu- miða kvikmyndahúsa renni I Kvikmyndasjóö (að Stefgjaki- inu undanskildu). Þetta gæti skapað sjóðnum umtalsverðar tekjur,sérstaklega þegar þess er gætt hversumikill áhugi manna hér er fyrir kvikmyndum. Ný- legar tölur fyrir árin 1975-’77 benda til þess að Islendingar sæki mun oftar kvikmyndahús en Danir. Með öðrum orðum þá voru seldir 5 milljón að- göngumiöar á ári á þessu tíma- bili I Danmörku á móti 2.5 milljón hér, en i danska kvik- myndasjóðnum eru 1.100 milljónir. Starfsemi erlendra kvikmyndagerðar- manna Annað vandamál sem nokkuð hefur verið til umfjöllunar I okkar hópi er starfsemi er- lendra kvikmyndagerðarmanna hér á landi. Við teljum eðlilegt að á því séu nokkrar hömlur að erlendir kvikmyndageröar- menn geti starfaö hér að vild. Sérstaklega vegna þess að þess- ir aöilar sem vinna hér um lengri eöa skemmri tlma njóta tollfrlðinda umfram innlenda kvikmyndagerð. Þar að auki má benda á að atvinnuleysi rlk- ir iþessarigrein. Við teljum rétt að Félag kvikmyndagerðar- manna fái tækifæri til að fjalla um umsóknir erlendra aðila um atvinnuleyfi til kvikmyndunar. Samskiptin við sjón- varpið Framan af voru samskipti kvikmyndagerðarmanna við sjónvarpið nokkuð stirö. A siðustu árum hafa þau batnaö en viðteljum sjálfsagt að sam- vinna þessara aöila sé veruleg. Það sem okkur finnst helst skorta á, er að sjónvarpið geri meira af þvf aö lausráða kvik- myndagerðarmenn til að vinna ákveðin verkefni. Reynsla ann- arra þjóöa er að slikt fyrir- komulag er til þess fallið að auka fjölbreytni i efnisvali og efnismeðferö auk þess aö vera fjárhagslega hagkvæmt. Snorri Sturluson kvik- myndaður — Fyrirtæki þitt, Erlendar Sveinssonar o.fl. — Lifandi myndir — hefur nýlokið gerð heimildarmyndar um Slysa- varnafélag Islands. Eru einhver stórverkefni sem bíða ykkar? — Já þaö er óhætt aö segja það. Viö erum aö vinna að undirbúningi töku leikinnar heimikiarmyndar um Snorra Sturluson. Myndin er gerð I til- efni 800 ára fæöingarafmælis Snorra sem verður næsta ár. Þetta verkefni er unniö I sam- vinnu viö Islenska og norska sjónvarpið. GK Vilhjálmur Hjálmarsson: Lög um Kvikmyndasjóð

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.