Tíminn - 08.12.1978, Page 21

Tíminn - 08.12.1978, Page 21
Föstudagur 8. desember 1978 21 flokksstarfið Vesturlandskjördæmi — kjör- dæmisþing Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna I Vesturlandskjördæmi veröur haldið i félags- heimilinu Dalabúð i Búöardal, sunnudaginn 10. des. n.k. og hefst kl. 13. Fjallað verður aðallega um flokksmálefni. A þingið mæta Steingrimur Hermannsson ráðherra og alþingismennirnir Halldór E. Sigurðsson og Alexander Stefánsson. Stjórnin. Hafnarfjörður — Garðabær — Bessastaða- hreppur — Kópavogur Hörpukonur halda jólafund sinn i samkomuhúsinu á Garða- holti fimmtudaginn 14. desember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Séra Bragi Friðriksson flytur jólahugvekju. 2. Upplestur og fleira jólaefni. 3. Tiskusýning, vörur frá hafnfirsk- um verslunum. Veitingar. Freyjukonur mæta á fundinn. Gestir velkomnir. Stjórnin. Hádegisfundur SUF Á næsta hádegisfundi SUF, sem haldinn verður þriðjudaginn 12. desember og hefst kl. 12, mun Jón Hjaltason veitingamaður koma i heimsókn og ræða um það, hvernig gera mætti skemmtanalif ungs fólks fjölbreyttara. Mætum vel og stundvislega og tökum með okkur gesti. Stjórnin Almennur félagsfundur verður haldinn á Hótel Esju mánudag- inn 11. des. kl. 8.30. Frummælandi Tómas Arnason fjármálaráöherra. Framsóknarfélögin I Reykjavik. V________________________________ O Nýskipan landbúnaðarmála unar um framleiðslu land- búnaðarins, svo að hún verði i sem mestu samræmi við þarfir þjóðarinnar og þá stefnu i mál- efnum landbúnaðarins sem Alþingi ákveður. Gert er ráð fyrir þvi aö gerð verði búrekstraráætlun fyrir hvert einstakt býli i landinu og fyrir hvert framleiðslusvæði. Taki áætlanir þessar mið af markaðsaðstæðum, landkostum og hæfilegri landnýtingu. Ráðgert er að samræma siðan styrkja- og lánakerfi landbúnaðarins slikri á- ætlun. Hitt meginatriði frumvarpsins fjallar um heimild Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins til tima- bundinna ráðstafana til að draga úr framleiðslu búvara, heimild til að greiða mismunandi hátt verö á búvöru til framleiðenda, og heimild -til að taka gjald af inn- fluttu kjarnfóðri. Sagði Stein- grimur að brýnt væri að þessi at- riði yrðu lögfest fyrir nk. áramót, og vonaðist hann til þess að það tækist. Þvi fé sem kemur til meö að innheimtast samkvæmt framan- greindum heimildum skal að öllu leyti ráðstafað til framleiðenda búvöru. Sagði Steingrimur að á- ætlað væri aö 30% fóðurbætis- skattur gæti gefið af sér um tvo milljarða og framleiðsugjald gæti gefið af sér um 1.5 milljarða, þannig að I heild gætu þessir skattar gefið af sér um 3,5 mill- jarða. 1 greinargerð með frumvarpinu segir að svo virðist sem réttast sé að beita framleiðsluhömlum fyrst og fremst gegn framleiðslu um- fram það sem hæfir fjölskyldu- rekstri. 1 annan stað, þar sem rætt er um skattlagningu kjarnfóðurs, segir i greinargerðinni að marg- visleg rök hnigi að þvi, aö heimila skattlagningu á innflutt kjarn- fóður. Athuganir sýni ótviræöa fylgni milli afuröamagns og kjarnfóðurverðs. Hin auknu .kjarnfóðurkaup erlendis frá, sem oft á tiöum eru niðurgreidd er- lendis hafa óumdeilanlega áhrif til framleiðsluaukningar og til aukinna vandamála viö sölu og fjárútvegun I uppbætur á um- framframleiðslu. Einnig hefur hið lága kjarnfóðurverö raskað stööu innlendrar fóðurfram- leiöslu. o Þaö er mörg matarholan viðbrögð sérhvers manns að busla og gripa sundtökin strax og hann kom I vatniö — hvað sem öllu minni eöa minnisleysi leið? Eða halda menn bara að hægt sé aö segja „auötrúa al- menningi” hvað sem vera skal? Að lokum skal hér minnst á siðustu greinina I þessu bindi Borgfirzkrar blöndu, — bókar- aukann. Um það bil sem prent- un bókarinnar var að hefjast, barst ritstjóranum I hendur bréf frá Þorsteini Guðmundssyni á Skálpastöðum I Lundarreykja- dal, og bréfinu fylgdi grein, sem Þorsteinn hafði skrifað fyrir tiu árum. Þar segir frá afdrifum mávsins af franska haf- rannsóknarskipinu Pourquoi Pas? sem fórst úti fyrir Mýrum 16. september 1936, eins og alkunna er. En svo sem löngu er frægt oröið, þá var það seinasta verk leiöangursstjórans dr. Charcot, að opna fuglsbúr á skipinu oghleypa út mávi, sem leiðangursmenn ætluðu aö hafa meðsér heim til Frakklands. — Fuglinn myndi bjarga sér, þótt skip og menn færust. Og nú tekur Þorsteinn Guömundsson upp söguþráðinn og heldur áfram aö segja frá mávi þessum, þar sem hann bit- ur gras með heimagæsunum á þiðu túninu á Skálpastööum á góöviörisdögum haustsins 1936. — Þetta er hin merkasta grein, vel rituð og fróöleg. Hér er einmitt kominn sá kapituli sem okkur hefur lengi vantað — lokakaflinn i harmsögu Pourqoui Pas? Það er segin saga um safnrit, semflytja mikiö og margbreyti- legtefini, að um þauerekki hægt að skrifa þannig að minnst sé á allt sem þar er innan spjalda. Oftast er meira aö segja ekki hægt að nefna nema tiltölulega litinn hluta. Svo er og um Borg- firzka blöndu, — um hana hefði verið hægt að skrifa miklu lengri grein. En til þess að lengja nú ekki mál sitt úr hófi skalþað sagt að lokum, aöþetta er hin þekkilegasta bók, sem flytur margvislegan fróöleik. Frágangur allur er vandaöur, prentvillur þvinær óþekkt fyrir- bæriog bandiö traustlegt. Eftir þvi sem vélband getur verið. Ég held, að menn muni ekki sjá eftir þeim tima sem fer til þessað lesa þau tvö bindi Borg- firzkrar blöndu, sem þegar eru komin. Þar er frá mörgu sagt, sem betra er að vita en vita ekki. —VS. Q Alþingi lega hafa mjög alvarlegar af- leiðingar varöandi nýtingu fiskistofnanna við landiö”. Kjartan Jóhannsson ráðherra sagöi m.a.: „Að þvi er varöar hugmyndir Halldórs Asgrims- sonar, þá veit ég að það er ábending, sem á fullan rétt á sér, enda mun mál af þessutagi einungis leysast af heima- mönnum, hvernig flotinn skuli vera upp byggður og fýrst og fremst með hliðsjón af mörgum sjónarmiöum. Engu aö siöur hald ég að það sé ljóst, ef litiö er á frystinguna eina sér, að togaraútgerö hentar betur til þess að skapa örugga hráefnis- öflun og jafna hráefnisöflun til frystingarinnar svoleiöis aö þaö sjónarmið á fulian rétt ár sér”. Maðurinn minn og faöir okkar Ágúst Júliusson frá Laugum, Karfavogi 36, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju i dag föstudaginn 8. desember kl. 3 s.d. Lára Jóhannsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn jÓLÞVAÞPpDA?ÆTTI FRAMsÓKNARF°KKS/NS Dregið 23. desember — Drætti ekki frestað Feröavinningur: Sunnuferö til sólarlanda Listaverk: Einstakt tækifæri: Þingvallamynd, málverk e. Jón Stefánsson. Valin verk eftir yngri listamenn: Benedikt Gunnarsson, (oliumálverk) Mattheu Jónsdóttur, (tvær vatnslitamyndir) Jóhann Eyfells, (tvö grafikverk) Listaverkabókin: Dýrariki tslands e. Benedikt Gröndal. Ritsöfn: Kristmann Guðmundsson Mörg bindi Jón Trausta I hverju Jakob Thorarensen — Glæsilegir vinningar p Verð miðans aðeins 500 krónur 61 ,:v Öll ritverkin í úrvals bandi — Pantið miða í síma 24483 Ýmsir hlutir i happdrættinu: Húsgögn fyrir hálfa miljón I Valhúsgögn Tveir, vinningar litsjónvarpstæki „Toshiba” Hljómflutningstæki af sömu gerð. tirvals myndavél, einnig litii tölva Þeir, sem fengið hafa miða sina heimsenda, meö giróseðli, geta framvisað greiðslu i næsta pósthúsi eða peningastofnun. Látið ekki happ úr hendi sleppa.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.