Tíminn - 16.12.1978, Side 3
Laugardagur 16. itesember 1978
3
ljósin
Þessi unga stúlka á tnyndinni var svo vinsamleg að stilla sér upp fyrir
ljósmyndara Tlmans og þar meö vekja athygli á þeirri hættu sem frá
opnum perustæðum getur stafað. Af ljósaséríunni, sem stúlkan stendur
við, hafa horfið rúmlega 30 perur og þvl hafa jafn mörg perustæöi stað-
ið opin I lengri eða skemmri tlma I hálfs annars metra hæð frá jörð.
—Timamynd G.E.
geta verið
dauðagildrur
ESE — Á fundi rikis-
st jórnarinnar s.l.
fimmtudag var ákveðið
að heimila 20% hækkun
á sementi og tók hækk-
unin gildi frá og með
deginum i gær.
Akvörðun þessi kemur I kjölfar
Itrekaðra óska stjórnar Sements-
verksmiðju rikisins á Akranesi,
en slðasta hækkun á sements-
verði var heimiluð 12. aprll s.l.
Eitt tonn af sementi kostar þvi
32280 krónur I dag með söluskatti,
ESE — Nokkur brögð hafa
verið að þvi undanfarna daga
aðperum hefur verið stolið úr
ljósaskreytingum, sem komið
hefur verið upp viða um bæ-
inn.
Einn þeirra sem orðið hefur
fyrir barðinu á þessu er Ingv-
ar Helgason umboðsmaöur
sem býr viö Sogaveg og kom
hann að máli við blaðiö I gær.
Sagði Ingvar, að það væri
full ástæða til þess að vara
börn og unglinga viö leik sem
þessum þvi aö á þessum ljósa-
skreytingum væri 220 volta
straumur og þvl þyrfti lftá& út
af að bera til þess að stórslys
yrðu.
Ingvar sagði að hann væri
ekki að mælast til þess með
þessu að þeim rúmlega 30 per-
um sem horfiö hefðu af jóla-
skreytingu hans yrði skilað
aftur, heldur vildi hann vekja
athygli á þeirri hættu sem
væri samfara þessum „leik”
barnanna.
Full ástæöa er til þess aö
taka undir þessi orð Ingvars
og brýna þaö fyrir foreldrum
að uppfræöa börn sln um hætt-
una sem er þessum leik sam-
fara. Ef litið barn I óvitaskap
slhum kemur viö perustæði
sem engin pera er I og ef rign-
ing er úti þá þarf ekki að
spyrja aö leikslokum.
Flokksstjórn
Alþýðuflokksins:
Róttækar
niðurskurð-
artíllögur
- samþykktar gegn
andmælum ráðherra
A sögulegum fundi flokks- lánsfjáráætlun verður afgreitt
stjórnar Alþýöuflokksins sem og að fjárlagafrumvarpið og
haldinn var I fyrrakvöld og lánsfjáráætlunin veröi slöan
fram á nótt voru samþykkt sniðin aö þessu frumvarpi.
mjög ákveöin tilmæU tU þing- Flokksstjórnin hafnar alfariö
flokks Alþýöuflokksins um af- eilifum skammtlmaráðstöfun-
stöðu til fjárlagafrumvarps um I efiiahagsmálum og Itrekar
rikisstjórnarinnar. þA skoöun sina aö nauðsynlegt
er að marka stefnu I efnahags-
A fundinum kom það fram að málum til tveggja ára þar sem
ekki er eining I fiokknum um fullt tillit er tekiö til allra
þessi mál og voru ráöherrar meginþátta efnahagsmála.
flokksins andvigir þvl að þessi Rikisvaldið verður að hafa
samþykkt yrði gerö. frumkvæði til þess að ná
Alyktun flokksstjórnar- árangri I veröbólgumálum.
fundarins er svo hljóöandi: Þess vegna veröi ekki gengiö
„Flokksstjórn Alþýðuflokks- frá fjárlögum og lánsfjáráætlun
ins sem kom saman til fundar fyrr en þessi stefna hefur verið
14. desember 1978, lýsir fullum mörkuö.”
stuðningi við frumvarp til laga Frumvarp þaö um „Jafn-
um JAFNVÆGISSTEFNU i vægisstefnu I efhahagsmálum”
efnahagsmálum og samræmdar sem nefnt er I ályktuninni var
aögerðir gegn veröbólgu. lagt fram i rikisstjórninni I gær.
Flokksstjórnin leggur áherslu þaö er mikill bálkur og felur I
á að núverandi stjórnarflokkar sgr ákaflega harkalegar niöur-
afgreiði frumvarp þessa efnis skuröartillögur um rikisfjár-
áður en fjárlagafrumvarp og málin.
Bimm
Wmmm Wimvrn
fctómj iííwi-mj
fíiÉm i'tmimj
20% hækkun á sementi
— gálgafrestur fyrir sementsverksmiðjuna
en samsvarandi verö fyrir hækk-
un var 29900 kr.
Aö sögn Guömundar Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Sementsverksmiðjunnar, þá mun
þessi slðasta hækkun verða til
þessaðbjarga rekstri verksmiöj-
unnar I nokkra mánuði, en ef til
lengri tlma er litið þá dugar þessi
hækkun engan veginn.
Guðmundur sagði ennfremur
aö gífurlegar hækkanir hefðu orð-
ið á öllum rekstrarkostnaði slðan
siðasta hækkun var heimiluð og
ekki fjarri lagi aö ætla að flestir
aðal kostnaðarliöirnir, s.s. vinnur
laun, olla og rafmagn hefðu
hækkað þetta frá 30-50% slðan þá.
Hvaö heföuö þáð þá þurft aö fá
mikla hækkun til þess að endar
næðu saman?
— Þaö fer náttúrulega mikið
eftir því hvaö maöur reiknar
þetta til langs tlma og hvenær
næsta hækkun veröur heimiluö,
en við hefðum sjálfsagt þurft um
30% hækkun til þess að rétta okk-
ur af, sagöi Guömundur Guð-
mundsson að lokum.
25 hafa látist í
umferðarslys-
um á árínu
— Yfir 300 manns hafa slasast alvarlega
ATA — í nóvember slösuðust 47
menn I umferðinni á tslandi og
tveir létu llfið. Af þessum 47
slösuðust 22 alvarlega en 25
hlutu minni háttar meiðsli. Þó
tölurnar séu háar og Iskyggileg-
ar, eru þær þó heldur lægri en
samsvaranditölur næstu 6 mán-
uði á undan.
Umferðaróhöpp, þar sem ein-
ungisvarum eignatjón að ræða,
uröu fleiri I nóvembermánuði i
ár ei orðiðhafaá einum mánuði
frá þvl 1 jánúar 1976, eða 630 á
móti 834 þá. Sé miðaö viö 200
þúsund króna meöaltjón, og er
þá síst ofreiknaö, hafa I nóvem-
ber fariö 126 milljónir króna I
súginn vegna tjóns á bifreiöum.
Þá er ótaliö það tjón, sem slys
mánaðarins kosta, en það tjón
er vandmetið.
Nú, þegar rúm vika er til jóla,
hafa 25 látist I umferöinni hér á
landi I ár og fleiri en 300 hafa
hlotiö alvarleg meiösli. Það
væri vert að ihuga þaö, áður en
sest er undir stýri næst. Verið
varkár og sýnið ábyrgð og til-
litssemi I umferöinni. J
árekstrar
í gær
ATA — Mjög mikil um-
ferð var i Reykjavflí i
gær, sérstaklega i mið-
bænum, enda o*u jóla-
innkaup borgarbúa nú í
fullum gangi.
Þrátt fyrir þunga umferb, urðu
ekki „nema” 14 árekstrar frá þvi
klukkan 6-18. Einn maður var
fluttur á slysadeild.
Það var klukkan 12:18, að
árekstur varð á mótum Breið-
holtsbrautar og Smiðjuvegs. öku-
maður annarrar bifreiðarinnar
var fluttur á slysadeild. Hann
mun hafa hlotið einhver höfuð-
meiðsl og auk þess meiðsli á hné.
Laugavegur lokaður
— bllaumferð á milli 13-19 I dag
—■ gert til að auðvelda ferðir strætisvagna
ESE — 1 dag á milli kl. 13 og 19
verður Laugavegur á milli
Snorrabrautar og Skólavörðu-
stigs lokaður fyrir aUri umferð
ökutækja annara en Strætisvagna
Reykjavikur og er þetta gert til
þess að auðvelda umferð strætis-
vagna um Laugaveginn, auk þess
sem að þetta ætti að koma gang-
andi vegfarendum til góða.
Aö sögn Guttorms Þormar hjá
Umferðarnefnd Reykjavlkur-
borgar, þá var eftirfarandi sam-
þykkt gerð á fundi nefndarinnar I
gær:
„Umferðarnefnd samþykkir aö
fara þess á leit við lögreglustjóra
að hann láti loka Laugavegi á
milli Snorrabrautar og Skóla-
vöröustlgs fyrir umferö annarra
bfla en strætisvagna á timabilinu
13-19 laugardaginn 16. desem-
ber”.
Að sögn Guttorms þá er þetta
gert að frumkvæði SVR. en þeir
ætla að vera meö mikinn fjiflda
aukavagna I umferð á þessu
Laugaveg oginnHverfisgötu, auk
þess sem aukavagnar verða
einnig á feröinni út I hverfin.
Guttormur sagði, að ef þessi til-
raun gæfist vel aö dómi lögregl-
unnar, þá myndi umferðanefnd
samþykkja fyrir sitt leyti að svip-
uð tUhögun yrði höfð á Þorláks-
messu á sama tlma.
Þá væri full ástæða til þess að
benda fólki á að notfæra sér þau
bílastæöi sem hagkvæmt væri að
leggja á s.s. bilastæðinfyrir aust-
an Hlemm og við Iönskólann og
einnig væri rétt að taka það fram,
að bilastæöin á þaki tfllstöðvar-
byggingarinnar verða opin
endurgjaldslaust, en á þeim er
rúm fyrir um 150 bila.