Tíminn - 16.12.1978, Qupperneq 6
6
Laugardagur 16. desember 1978
í-----------------------------------------\
tJtgefandi Framsóknarfiokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Sfmi
86300. —Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir ki.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 125.00. Áskriftargjald kr.
2.500.00 á mánuöi.
Blaöaprent
L_____________________________________________________________J
Næstu efnahagsaðgerðir
Efnahagskaflanum i samstarfsyfirlýsingu
stjórnarflokkanna er skipt i tvo meginþætti.
Fyrri kaflinn fjallar um það sem nefnt er fyrstu
aðgerðir. Þar er einkum fjallað um þær
ráðstafanir, sem voru gerðar kringum 1. septem-
ber. Siðari kaflinn fjallar um það sem nefnt er
breytt efnahagsstefna en sem öðru nafni mætti
kalla ráðstafanir til frambúðar.
Það var von manna þegar rikisstjómin var
mynduð.að þessar frambúðarráðstafanir yrðu að
verulegu leyti tilbúnar fyrir 1. desember. Þess
vegna var svonefnd visitölunefnd strax sett á
laggirnar og treyst á að hún gæti skilað einhverj-
um niðurstöðum fyrir 20. nóvember. Af þvi varð
ekki sem raunar þarf ekki að undra þvi að hér er
um viðkvæmasta og örlagarikasta þátt efnahags-
málanna að ræða. Hjá þvi varð þvi ekki komizt að
gera enn nýjar bráðabirgðaráðstafanir. Með þvi
fékkst enn stundarfrestur en öllum var ljóst að
ekki yrði hægt að fara þá leið i þriðja sinn. Fyrir
1. marz yrði að ráðast i raunhæfari og varanlegri
aðgerðir.
Það var i samræmi við þetta að Alþýðuflokkur-
inn hafði frumkvæði að þvi að framtiðarstefnan
sem rikisstjórninni var sett i samstarfsyfir-
lýsingu stjórnarflokkanna var skýrara og
ákveðnar mörkuð i greinargerð efnahagsfrum-
varpsins sem lagt var fyrir þingið vegna að-
gerðanna 1. desember en gert hafði verið i sam-
starfsyfirlýsingunni. Framsóknarflokkurinn
studdi eindregið þess viðleitni Alþýðuflokksins.
Þau atriði sem höfuðáherzla var lögð á i greinar-
gerðinni voru þessi:
1. Stefnt verði að þvi i samráði við aðila vinnu-
markaðarins að verðlags- og peningalauna-
hækkanir 1. marz n.k. verði ekki meiri en 5 af
hundraði.
2. Leitazt verði við að ná svipuð*
um markmiðum fyrir önnur kaupgjalds-
breytingatimabil á árinu 1979, þannig að verð-
bólgan náist niður fyrir 30 af hundraði i lok árs-
ins.
3. Visitölu viðmiðun launa verði breytt fyrir 1.
marz n.k. að höfðu samráði við fjölmennustu
heildarsamtök launafólks. Meðal annars verði
athuguð viðmiðun við viðskiptakjör og fleira.
4. Heildarfjárfesting á árinu 1979 verði ekki
umfram 24-25 af hundraði brúttóframleiðslunnar.
í framhaldi af þessari útfærslu á samstarfs-
yfirlýsingu stjórnarflokkanna sem er að finna i
greinargerð efnahagsfrumvarpsins, hefur Al-
þýðuflokkurinn samið sérstakt frumvarp, þar
sem nánar er fjallað um þessi atriði og fleiri.
Sjálfsagt er, að hinir stjómarflokkarnir taki það
til gaumgæfilegrar athugunar, enda munu flest
meginatriði þess i samræmi við framangreinda
útfærslu i umræddri greinargerð.
Það liggur i augum uppi að mikilvægt er að
hraða sem mest þeim aðgerðum, sem þarf að
gera fyrir 1. marz, ef forðast á stórfelld vandræði
sem þá koma til sögu og ekki verða leyst með nýj-
um bráðabirgðaráðum. Þetta munu Fram-
sóknarflokkurinn og Alþýðubandalagið gera sér
ljóst ekki siður en Alþýðuflokkurinn. Það er vel ef
aukinn skriður kemst á þessi mál en það má ekki
verða til þess að tefja afgreiðslu fjárlaganna og
tekjuöflunarfrumvörp sem samkomulag er orðið
um i sambandi við þau.
Erlent yfirlit
Kennedy gagnrýn-
ir tállögur Carters
Efnahagsráðstafanir verða að vera réttlátar
Carter ræöir viö ekkju Martins Luthers King og Young sendi-
herra á fundinum i Memphis.
ÞAÐ ÞÓTTI koma greinilega 1
ljtís á flokksþingi demókratasem
haldiö var I Memphis um siö-
ustu helgi, aö Carter forseti
getur þurft aö heyja haröa
baráttu i prófkjörum á næsta ári
til þess aö vera tilnefndur for-
setaefni i annaö sinn. Á þinginu
sættu fyrirhugaöar fjárlaga-
tillögur hans verulegri mót-
spyrnu en þar er gert ráö fyrir
talsveröum samdrætti til fé-
lagsmála. Samdrátturinn er tal-
inn nauösynlegur af Carter og
ráöunautum hans sem þáttur i
baráttunni gegn veröbólgunni.
Tillaga, sem lýsti stuöningi viö
fjárlagatillögur forsetans, hlaut
822 atkvæöi og 521 mótatkvæöi,
en alls sóttu þingiö um 1600 full-
trúar. Af þessu viröist mega
ráða aö hinn frjólslyndari armur
demókrata er óánægöur meö
tillögurnar.
Carter mætti sjálfur á þinginu
og flutti ræöu, sem ekki þótti
neitt sérstök. Annaö gilti um
ræöu, sem Edward Kennedy
öldungadeildarmaöur flutti.
Hún þótti bera langt af öörum
ræöum, sem fluttar voru á þing-
inu, og vakti lika langmestan
fögnuö. Ræöa hans var flutt i
gömlum baráttustil, sem beztur
þótti til vinsælda f Bandarfkj-
unum áöur en útvarp og sjón-
varp komu til sögu, og enn þykir
njóta sin vel á stórum mann-
fundum. Edward Kennedy
hefur þjálfaö þá list vel og er
miklu fremri á þvi sviöi en
bræður hans voru. I ræöu sinni
deildi Kennedy óbeint á fjár-
lagatillögur forsetans og mælti
sterklega meö auknu félagslegu
jafnræöi og réttlæti, sem frjáls-
lyndari armur demókrata ber
fyrir brjósti. Meö ræöunni
skipaöi Kennedy sér I fylkingar-
brjóst frjálslyndra demókrata.
Eftir ræöuna magnaöist sá
orörómur, aö Kennedy ætlaöi aö
keppa viö Carter um framboöiö
fyrir demókrata. Hann bar þó
harölega á móti þvi. Carter
veröur aftur i framboöi, sagöi
Kennedy, og ég mun styöja
hann. En þaö breytir ekki þvi,
aö ég mun halda fram sjón-
armiöum minum og þaö veit
Carter.
Skoöanakannanir á fundinum
bentu til, aö 58% af fulitrúunum
styöja Carter sem forsetaefni
flokksins f næstu kosningum, en
34% Kennedy. Meöal óbreyttra
fylgismanna flokksins stendur
Kennedy mun betur og eins
meöal óháöra kjósenda. Margir
fréttaskýrendur túlka afstööu
Kennedys þannig, aö hann sé
reiðubúinn til framboös, ef
Carter hlekkist eitthvaö á. Jafn-
hliöa þessu sé hann aö undirbúa
jaröveginn fyrir framboð 1984,
ef ekkert yröi úr framboöi hans
næst.
KENNEDY sagöi i ræöu sinni,
aö vel mætti vera aö sú stefna
ætti fylgi um sinn, aö dregiö
væri úr framlögum til félags-
mála. Draumar margra
milljóna Bandarikjamanna
væruhins vegar tengdir forustu
demókrata á þessu sviði. Þvi
trausti mættu þeir ekki bregö-
ast. En stundum veröur
flokkurinn aö sætta sig viö þaö
aö fá storminn i fangiö. Samt
mætti ekki láta reka eöa liggja
fyrir akkerum. Viö vitum aö
margt er ööru vfsi i Bandarfkj-
unum en þaö ætti aö vera. Viö
vitum aö veröbólgan er of mikil
og þaö veröur aö gera ráö-
stafanir til aö hemja hana. En
viö vitum lika, aö ófremdar-
ástand rikir i mörgum borgum
Bandarikjanna. Þaö er rangt aö
sætta sig viö þaö. Þaö er rangt
aö konur og þjóöernisminni-
hlutar njóti ekki jafnréttis. Þaö
er rangt aö láta ekki sjúka njóta
eðlilegrar hjálpar.
Ég tek heilshugar þátt i
viönáminu gegn verðbólgunni,
sagöi Kennedy. Þaö viönám
veröur þó þvf aöeins árangurs-
rfkt aö þaö sé veitt á heiöar-
legan og réttlátan hátt. Viö
megum ekki láta þaö kijúfa þjóö-
ina eins og Vfetnamstyrjöldin.
Fátt gæti valdiö meiri klofningi
en stórfelldur niöurskuröur á
fjárlögum á kostnaö hinna fá-
tæku, hinna blökku, hinna sjúku
og hinna atvinnulausu. Þaö
verður aö færa fórnir vegna víö-
námsins gegn veröbólgunni, en
þær veröa aö dreifast réttlát-
lega, ekki lenda meira á verka-
mönnum en iðjuhöldum. Viö
getum ekki dregiö úr framlög-
um til heilbrigöismála og at-
vinnuaukningar á sama tima og
milljöröum dollara er varið til
undanþága á sköttum eöa verö-
bólguaukandi framlaga til
varnarmála.
Mestan fögnuö vöktu þau um-
mæli Kennedys, sem gáfu til
kynna, aö byssur mætti ekki
taka framyfir smjör.
Kennedy dvaldi ekki á flokks-
þinginu nema í sex klukku-
stundir. Fréttaskýrendur telja,
aö vafasamt sé hver heföi oröiö
niöurstaöa atkvæöagreiöslunnar
um fjárlagatillögur Carters, ef
Kennedy heföi tekiö fullan þátt i
áróörinum gegn þeim á bak viö
tjöldin. Þaö vildi hann ekki.
Ræöa hans bar hins vegar þann
árangur, aö samþykkt var sér-
stök tillaga um aö flokksþingiö
legöi áherzlu á, að staöiö yröi
viö þaö fyrirheit demókrata
fyrir forsetakosningarnar 1976,
aö komiö yröi á fullnægjandi
sjúkratryggingum. Kennedy
haföi lagt megináherzhi á þetta
i ræöu sinni. Carter og fylgis-
menn hans höföu ekki ætlaö aö
hreyfa þessumáli sérstaklega á
þinginu, en þótti rétt aö ganga
hér til móts viö Kennedy.
ÞAÐ féll i hlut Mondales vara-
forsefa aö svara ræöu Kennedys
óbeint eftir aö hánn var farinn
af fundinum. Hann lagöi megin-
áherzhi á, aö baráttan gegn
veröbólgunni yröi aö ganga
fyrir öllu. Auknar félagslegar
framkvæmdir byggöust á þvi,
aö baráttan gegn veröbólgunni
heppnaðist. ósigur i þeirri
baráttu gæti oröiö enn meira
áfall fyrir Bandarikin en ósigur-
inn i Vietnamstyrjöldinni.
Þaö kom glöggt fram i kosn-
ingabaráttunni á siöastliönu
hausti, sagöi Mondale, aö verö-
bólgan er nú mesta áhyggjuefni
bandariskra kjósenda. Spyrjiö
Þá, sem þá voru I framboöi, og
svör þeirra munu veröa: Náiö
taumhaldi á verðbólgunni.
Gerum dollarann aftur aö
dollara. Demókratar mega ekki
bregöast þessum kröfum.
Þ.Þ.
Þ._-'.