Fréttablaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 12
 11. september 2006 MÁNUDAGUR12 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Heildarlausn fyrir snyrtinguna Lotus Professional R V 62 15 A Blár sápuskammtari Foam Blátt WC Compact statíf fyrir tvær rúllur Á tilboði í september Arngrímur Þorgrímsson Sölustjóri hjá RV 3.982 kr. 1.865 kr. 1.865 kr. Blár enMotion snertifrír skammtari „Það er nóg að gera hjá mér og þessa dag- ana fer mestur tíminn í að undirbúa kennslu,“ segir Katrín Jakobsdóttir, íslenskufræðingur og varaformaður vinstri grænna. „Ég er byrjuð að kenna íslensku við Háskólann í Reykjavík og bókmenntafræði í Háskóla Íslands. Vegna anna í kennslu hef ég minni tíma til að sinna pólitíkinni þótt ég hlaupi alltaf í það inn á milli. Í sumar var ég að vinna að ýmsum verkefnum fyrir Eddu bókaútgáfu en ég geng með þann draum að skrifa bók í framtíðinni.“ Katrín segir að vel gangi að sameina vinnu og heimilislíf en maður hennar er nemi og skiptast þau á að vera heima hjá syninum. Komandi alþingiskosningar leggjast vel í Katrínu og segir hún að á vettvangi stjórn- málanna þurfi að sinna mörgum verkefnum. „Landsfundur vinstri grænna verður haldinn með vorinu en ég geri ekki ráð fyrir mannabreytingum í æðstu embætt- um innan flokksins. Vonandi náum við þó inn nýjum þingmönnum á næsta þing.“ Katrín segir mikla vinnu fram- undan í flokknum og margt sem þurfi að skoða og nefnir sem dæmi skattlagningu á þá sem mest hafa og aðbúnað fanga á Íslandi. „Til að skapa meiri jöfnuð í þjóðfélaginu er mik- ilvægt að þeir sem hafa hæst laun borgi í það minnsta sama skatthlufall og við hin. Þá þarf að hlúa að velferðarkerfinu og passa að allir sitji við sama borð. Nú svo eru umhverfismálin ofarlega á baugi í þingflokkunum og það er óskandi að stjórnarandstaðan nái að vinna saman að mikilvægum málum.“ Í frítíma sínum hefur Katrín einn- ig margt á prjónunum og er farin að stunda badminton á sunnudags- morgnum. „Annað sem tilheyrir haustinu er að taka upp rabarbara og frysta til að eiga í bökur. Ég hef ekki verið mikil matargerðarkona hingað til en það er að breytast. Eitthvað er ég líka að fást við hannyrðir og reyni að gefa jólagjafir sem ég bý til sjálf,“ segir Katrín sem bíður spennt eftir komandi kosningabar- áttu. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? KATRÍN JAKOBSDÓTTIR VARAFORMAÐUR VINSTRI GRÆNNA Kennir við tvo háskóla Yrði varla góð teikni- myndasaga „Ég horfði á viðtalið og maður veit varla hvað maður á að segja annað en bara: Vá... merkilegt!,“ segir Hug- leikur Dagsson um mál austurrísku stúlkunnar Natösju Kampusch, sem var haldið nauðugri í kjallaraholu í átta ár. „Stelpan stóð sig náttúrulega eins og hetja. Ef hún væri bandarísk hefði hún vælt allan tímann. Það er munurinn á Bandaríkjamönnum og öðrum; þeir væla, aðrir harka af sér.“ Fáir nota jafn svartan húmor og Hugleikur, en hann er þó ekki viss um að þetta mál myndi nýtast sér. „Ég held þetta yrði ekki góð teiknimyndasaga, t.d. væri alltaf sami bakgrunnurinn. Það væri frekar hægt að byggja grínþáttaseríu á málinu. Það yrði náttúrulega mjög myrkur húmor.“ SJÓNARHÓLL MÁL NATÖSJU KAMPUSCH HUGLEIKUR DAGSSON LISTAMAÐUR Kvikmyndaframleiðandinn Halldór Þorgeirsson er um þessar mundir ásamt fríð- um hópi karla og kvenna við tökur á myndinni Veðramót. Þótt myndin sé dramatísk er glatt yfir hópnum en blaðamaður hitti framleið- andann og tökustjórann yfir kaffibolla í Ólafsvík. Á veitingastaðnum Gilinu í Ólafs- vík, sem nýbúið er að reisa úr finnskum viði, sat blaðamaður fyrr í vikunni þegar tveir skeggjað- ir og útiteknir menn gengu þar inn. Þeir keyptu sér kaffiveiting- ar en svo læddist annar á salernið með raksápu og rakvél en sneri þaðan nýrakaður og með bros á vör. Þetta voru þó engir útilegu- menn heldur kvikmyndaframleið- andinn Halldór Þorgeirsson og Tryggvi Gunnarsson tökustjóri sem hafa verið lengi við tökur í óbyggðum undir jökli. „Við erum að taka upp við Vala- vatn fyrir myndina Veðramót,“ segir Tryggvi. „Handritið gerði Guðný Halldórsdóttir og framleið- andinn er henni ekki ókunnur en það er maður hennar,“ segir Tryggvi og hlær og slær á öxl fram- leiðandans Halldórs. Sagan gerist á upptökuheimili fyrir vandræðaunglinga á einangr- uðum stað árið 1974. Fólk af hippa- kynslóðinni hefur tekið yfir rekst- urinn en Halldór vill ekki gefa upp hvernig sá rekstur gengur fyrir sig. „Þetta byggir mjög lauslega á reynslu Guðnýjar en hún vann um nokkurt skeið á svipuðu heimili sem ekki verður nefnt hér,“ segir hann þó. Leikaraliðið er ekki af verri endanum en á meðal leikenda eru Hilmir Snær Guðnason, Atli Rafn Sigurðarson og Tinna Gunnlaugs- dóttir en svo er engu líkara en kvikmyndagerðarmenn hafi fengið börn færustu leikstjóra og kvik- myndagerðarmanna landsins til liðs við sig. Þau eru Baltasar Breki sonur Baltasars Kormáks, Arn- mundur Ernst Björnsson sonur Eddu Heiðrúnar Backman og Björns Inga Hilmarssonar, Tinna Hrafnsdóttir dóttir Hrafns Gunn- laugssonar, Gunnur Martinsdóttir Schlüter dóttir Ásdísar Thorodd- sen og Hera Hilmarsdóttir dóttir Hilmars Oddssonar. Tvímenningarnir voru hressir í bragði á Gilinu enda höfðu tökur gengið vel. „Við erum afar þakklát- ir fyrir það hversu vel heimamenn hafa tekið okkur,“ sagði Halldór. „Það er mesta furða hvað þeir hafa verið elskulegir að verða við öllum þeim furðulegu bónum sem við höfum leitað til þeirra með.“ Aðspurður um hvers konar vanda heimamenn hafi þurft að leysa fyrir þá segir hann: „Við þurftum til dæmis að leita til Guðjóns í Syðri-Knarrartungu til að róa niður ferfættan og skjöldóttan leikara sem trylltist í tökum þegar við kveiktum á ljóskösturunum. Hann var ekki lengi að róa beljuna,“ segir Halldór og hlær við. jse@frettabladid.is Fengu bónda til að hemja leikara TRYGGVI GUNNARSSON OG HALLDÓR ÞORGEIRSSON Tökustjórinn og framleiðandinn fara yfir stöðu mála. Tökurnar hafa gengið vel enda hafa heimamenn aðstoðað á alla lund. Til dæmis róað tryllta leikara þegar svo bar undir. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR Benedikt Grétarsson er eigandi Jólagarðsins í Eyjafjarðarsveit. Hann segir að sumarvertíðin sé komin og farin og að nú í sept- ember sé smálægð. „Það hefur því miður rignt óhemjumikið hérna fyrir norðan síðustu vikur, en ef það er berjaveður kemur fólk hingað um helgar. Starfið hjá leikhúsinu er líka að byrja og þetta hjálpar allt til. Það er stað- reynd að ef það er eitthvað að gerast í bænum þá hjálpar það okkur.“ Benedikt segir að fyrstu send- ingarnar af nýjum jólavörum hafi komið í byrjun sumars og að nú aukist innflutningurinn með hverri vikunni sem líður til jóla. Þetta er tíu ára afmælisár hjá Jólagarðin- um og Benedikt lofar ýmsum óvæntum uppákomum til hátíða- brigða. En er ekkert erfitt að vera innan um jólalög og jóladót allan ársins hring? „Ég segi nú alltaf að það geri mann bara að betri manni að vera innan um þetta. Fáir karl- menn trúa mér en stelpurnar eiga miklu auðveldara með að finna sig í þessu. Eftir tíu ár í þessu er ég eiginlega bara orðinn að jólasveini og rembist við að leika mann.“ Og hvað eru svo margir dagar til jóla? „Þeir eru 107,“ segir Bene- dikt, alveg með það á tæru. Jólasveinn sem rembist við að leika mann JÓLASVEINNINN BENEDIKT Heldur upp á tíu ára afmæli Jólagarðsins í ár. FRÉTTABALAÐIÐ/VALLI Haukfrán augu „Við gætum haft eftirlit með allri flugumferð, jafnvel þeirri sem ekki gerir endilega vart við sig.“ Þorgeir Pálsson flugmála- stjóri er sannfærður um ágæti sinna manna. Fréttablaðið 10. september. Hættulegt er bannað „Heil lína er til að láta ökumenn vita að það er hættulegt að aka framúr og þar af leiðandi er það bannað.“ Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferð- arstofu, er með umferðar- lögin á tandurhreinu. Fréttablaðið 10. september.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.