Fréttablaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 60
 11. september 2006 MÁNUDAGUR40 Sigríður Beinteinsdóttir segist vera afar sátt við það hús sem hún býr í núna, það sé hálfgert draumahús. En í hinum fullkomna heimi þar sem peningar féllu af himnum myndi hún vilja eiga stórt hús með öllu tilheyrandi. „Það yrðu fullt af herbergjum í húsinu, það yrði tækjasalur og sundlaug og bara allt sem manni dettur í hug,“ segir Sigga. „Og að sjálfsögðu yrði stúdíó og gott æfinga- húsnæði,“ bætir hún við. Sigga er, eins og við flest, lítið fyrir að þrífa. Þess vegna yrðu þjónar að fylgja húsinu og sjá um öll leiðinlegri húsverkin. Þeir myndu líka sjá um garðinn sem væri stór og myndarlegur, með mörgum beðum og fallegum trjám. Eins og Íslendinga er siður vill Sigga hafa útsýni til allra átta. „Það væri fínt að vera á stað þar sem maður sæi yfir borgina, til fjalla og til sjávar,“ segir Sigga sem ekki er tilbúin að færa húsið mjög langt frá höfuðborginni. Hún væri hins vegar til í að eiga önnur áþekk hús bæði á Spáni og í Noregi en þar er hún mikið þessa dagana vegna söngskóla síns. Í lokin var Sigga spurð hvernig bíll myndi standa í innkeyrslunni. „Það væri bíllinn sem ég á núna, Land Rover Sport. Það er besti bíll sem ég hef nokkurn tímann átt,“ segir Sigga. DRAUMAHÚSIÐ MITT SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓTTIR SÖNGKONA Stórt hús með mörgum þjónum FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R Framkvæmdir við skakka turninn í Písa hófust árið 1173. Upphafleg hönnun hans er eignuð arki- tektinum Bonanno Pisano en þar sem ekki var lokið við að byggja turninn fyrr en um 200 árum síðar komu margir að byggingu hans. Turninn var fullbyggður árið 1372 en þá var bjölluhús hans klárað og hann gat gegnt upprunalegu hlutverki sínu sem bjölluturn dómkirkjunnar í Písa. Turninn tók að halla strax þegar byggingu þriðju hæðarinnar var lokið. Jarðvegsvinna og undir- stöður turnsins eru langt frá því að vera nógu góðar og því hefur hallinn verið vandamál allt frá upphafi. Hallinn jókst enn frekar árið 1838 þegar gerður var gangstígur í kringum hann og enn frekar er Mussolini skipaði sínum mönnum að hella steypu í grunninn til að rétta hann við. Í síðari heimsstyrjöldinni var turninn notaður sem varðturn fyrir nasista en þrátt fyrir heimild ákváðu sveitir bandamanna á svæðinu að varpa ekki sprengju á turninn. Turninn var réttur við að hluta til á árunum 1990-2000 og er nú sagður stöð- ugur, alla vega næstu 300 árin eða svo. SKAKKI TURNINN Í PÍSA Hafist var handa við að rífa niður Faxaskála nú fyrir helgi. Faxaskálinn var rifinn niður á föstudaginn en skálinn þurfti að víkja fyrir tónlistar- og ráðstefnu- húsinu sem ráðgert er að reisa þar. Faxaskáli var byggður á sjöunda áratugnum og var 16.200 fermetr- ar að stærð. Skálinn var notaður sem vörugeymsla fyrir inn- og og útflutning þar til sú starfsemi fluttist í Sundahöfn. Hluti af starf- semi Hafrannsóknarstofnunar fór fram í Faxaskálanum ásamt því að þar var til húsa stór fiskmarkaður sem hefur verið fluttur í Granda- skemmu í Vesturhöfninni. Faxaskáli hverfur Til að rýma fyrir nýju tónlistar- og ráðstefnuhúsi réðust vinnuvélar að Faxaskálanum við Reykjavíkurhöfn nú fyrir helgi. Útlán dragast saman MINNKUN ÚTLÁNA FRÁ JÚLÍ UM 37 PRÓSENT. Alls námu heildarútlán Íbúða- lánasjóðs 3,2 milljörðum króna í ágúst, en þar af telst 3,1 milljarður til almennra lána og 0,1 milljarður króna til leiguíbúðalána. Útlán sjóðsins dragast saman frá fyrri mánuði sem kann að skýrast að hluta til vegna þess að umsvif í ágústmánuði kunna að minnka vegna sumarleyfa en samkvæmt frétt á heima- síðu sjóðsins virðast umsvif á fasteignamarkaði hafa minnkað almennt vegna breyttra mark- aðsaðstæðna. SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU* *þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins. 300 250 200 150 100 50 0 FJÖLDI 21/7- 27/7 104 28/7- 3/8 107 4/8- 10/8 67 11/8- 17/8 90 18/8- 24/8 83 25/8- 31/8 111 Hülsta - þýsk eðalhúsgögn sem sameina gæði, smekkvísi og yfirburðahönnun undir einn hatt. Sjón er sögu ríkari. VERSLUNIN HEIMA ER FLUTT Í STÓRT OG GLÆSILEGT HÚSNÆÐI VIÐ SÍÐUMÚLA 30. Í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.