Fréttablaðið - 11.09.2006, Side 22
[ ]
Hurðarhúnar geta sett sterkan
svip á heimilið enda hægt að
fá þá í ýmsum stærðum og af
mörgum gerðum.
Hér á landi hefur úrvalið af hurðar-
húnum verið frekar lítið í verslun-
unum um árin, en á flestum heimil-
um er að finna tvær eða þrjár
gerðir hurðarhúna sem eru hvað
algengastar.
Á sjötta og sjöunda áratug síð-
ustu aldar voru t.d. kúlulaga hurð-
arhúnar einkar vinsælir en með
þeim var dyrum yfirleitt læst með
því að þrýsta á lítinn hnapp, eða
snúa skífu og þannig varð lykill
óþarfur. Þegar hurðir hafa slíka
húna er ekki laust við að annað
innbú njóti sín betur sé það frá
sama tíma og þessir húnar, þar sem
þeir eru mjög til marks um tísku
síns tíma. Tekkhúsgögn njóta sín til
að mynda vel á heimili þar sem
hurðir eru með slíka húna. En ef
innbúið samanstendur af antik og
útskornum húsgögnum þá væri
kannski glæsilegra að reyna að hafa
hurðir og húna í stíl.
Hér á landi er úrval af hurðar-
húnum ekki mjög fjölbreytt í versl-
unum, en í Brynju við Laugaveg má
þó finna sitthvað sem sker sig úr. Ef
fólk langar til að gera eitthvað alveg
sérstakt fyrir hurðirnar á heimilinu
er upplagt að fara í hurðarhúnaleit
á mörkuðum eða í byggingavöru-
verslunum erlendis. Margir Íslend-
ingar leggja til dæmis leið sína til
London annað slagið en þar hefur
um árabil verið stórgóður
antikmarkaður á Porto-
bello Road. Á slíkum
mörkuðum er oft hægt
að finna fleira en
gamlar brúður og
kertastjaka, til dæmis
íðilfagra hurðarhúna
úr kopar, messing,
gleri eða jafnvel krist-
al. Gætið þess bara að
taka járnið innan úr
húninum sem er fyrir í
hurðinni heima
með ykkur út,
vegna þess að
hurðarhúnar
eru ekki staðl-
aðir og það
væri leiðinlegt
að snúa heim
með fenginn til
þess eins að komast að því
að hann passar ekki. Ef hurðar-
húnar eru keyptir á Netinu er um
að gera að hafa öll mál á hreinu en
það ætti að tryggja að húnninn
henti skránni.
mhg@frettabladid.is
Snerlunum snúið
Býr Karen Blixen hér? Hurðabankarar geta gefið aðkomunni
að heimilinu skemmtilega dramatískt yfirbragð.
Fallegur hurðarhúnn sem grípur geisla
sólarinnar og myndar bjarta stemningu
á heimilinu. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Þessi hurð-
arhúnn sam-
einar sjöunda
áratuginn og
gamla tímann
með einum
snúningi.
Safírgrænn, egglaga
hurðarhúnn sem
myndi sóma sér
einkar vel á hurð
úr dökkum viði.
Kóbaltblár, gamaldags og fallegur hurð-
arhúnn sem hægt er að kaupa á Ebay.
Dyramotta hjálpar til viðo að vernda parketið. Hún
hreinsar sand og óhreinindi undan skónum sem annars
myndu rispa gólfið.
ÞEGAR NEYÐIN ER STÆRST ER BETRA AÐ HAFA HJÁLPINA NÆST.
Ef eitthvað fer óvænt úrskeiðis á heimilinu, rafmagnið fer af,
miðstöðvarofninn byrjar að leka eða krani gefur sig er nauðsynlegt
að hafa réttu áhöldin til taks. Þeir hlutir sem þurfa að vera
innan seilingar á vísum stað eru til dæmis skrúfjárn,
töng og vasaljós.
Geymdu þessi grunnverkfæri í skúffu í
eldhúsinu þar sem enga stund tekur
að finna þau þegar í nauðirnar
rekur. Ekki gleyma að ganga
svo frá þeim aftur á sinn
stað þegar búið er að nota
þau.
Á ögurstund
Evíta
Hárgreiðsla og gjafavörur
Starmýri 2, 108 Rvík, s. 553-1900 www.evita.is
Hárþjónusta á frábæru verði, gerið svo vel að panta tíma.
Gjafavörur í úrvali
Ný sending af luktum og lömpum
��������������������
���������������������������
���������������������
�����������������������
����������������������
���������������
����������������������
��������������� ���������
����������
���������������� ���
������������������������
�������������������
��������������������
�����������������������
��������������������������
��
����������������
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir *Gallup Október 2005
Mest
lesna tímaritið *