Fréttablaðið - 12.09.2006, Síða 4
4 12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
GENGIÐ 11.09.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
125,3103
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
71,42 71,76
133,33 133,97
90,85 91,35
12,174 12,246
10,944 11,008
9,789 9,847
0,6084 0,612
105,58 106,2
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
ÖRYGGISMÁL Viktoras Justickis,
prófessor í lögfræði við háskólann
Mikolas Romeris í Litháen, telur
miðstýrða samvinnu milli ríkja í
Evrópu og samþættingu starfa á
sviði öryggismála hafa valdið því
að skipulögð alþjóðleg glæpastarf-
semi hefur aukist gríðarlega á
undanförnum árum.
Justickis ræddi um öryggi,
Evrópusamruna og alþjóðlegt
starfssvið lögreglu á hádegisfundi
Lagastofnunar Háskóla Íslands í
Lögbergi í gær.
Í erindi sínu, sem bar yfir-
skriftina „Er hægt að sameina
Evrópu þegar kemur að öryggi
gegn glæpum?“, fór Justickis vítt
og breitt yfir stöðu mála í heima-
landi sínu en þar hefur skipulögð
glæpastarfsemi skotið djúpstæð-
um rótum á síðustu árum. Hér á
landi hafa ítrekað komið upp mál
hjá lögreglu þar sem Litháar eiga
í hlut en flest þeirra tengjast inn-
flutningi á amfetamíni. Hafa tals-
menn lögreglu og dómsmálaráðu-
neytis hérlendis lýst því yfir að
nauðsynlegt sé að efla starf til
þess að sporna gegn því að alþjóð-
leg glæpastarfsemi geti skotið hér
rótum.
Í stuttu máli er Justickis á því
að frjálst flæði vinnuafls og fjár-
magns, auk samþættingar á lög-
reglustarfsemi milli landa, hafi
gert lögregluembættum í einstök-
um löndum erfitt fyrir í barátt-
unni við aukið samstarf glæpa-
samtaka á milli landa. Tók hann
dæmi um samvinnu pólskra og lit-
háískra glæpamanna sem erfitt
hefur reynst að uppræta vegna
ómarkvissra aðgerða alþjóðlegrar
samvinnu, að mati Justickis.
Justickis sagði „lögregluna
vera almennt á móti Evrópusam-
bandinu“, en rökstuddi þá fullyrð-
ingu ekki efnislega. Vitnaði hann
þess í stað til reynslu lögreglunn-
ar í Litháen af baráttu hennar við
glæpamenn sem alltaf næðu að
komast yfir landamærin, skrefinu
á undan lögreglunni, þar sem þeir
næðu að staðsetja sig í „friðlandi“
sem myndaðist vegna vanmátt-
ugra lögregluaðgerða á alþjóða-
vettvangi.
Ástæðan fyrir erfiðleikunum
sem sköpuðust við að samþætta
lögregluaðgerðir sem næðu til
verkefna milli landa, sagði Justick-
is vera sú stöðuga spenna sem
væri „milli afla sem væru með og
á móti sameiginlegri alþjóðlegri
baráttu gegn glæpum“, sem skil-
aði sér oftar en ekki í óskilvirku
og svifaseinu kerfi.
Justickis sagðist þess fullviss,
að „alþjóðlegt miðstýrt reglu-
verk“, gæti ekki tekið á skipu-
lagðri glæpastarfsemi heldur
þyrfti að efla hæfileika þjóða til
þess að notfæra sér „alþjóðlegan
stuðning“ til þess að sporna gegn
alþjóðlegri glæpastarfsemi og
auka þar með öryggi borgaranna.
magnush@frettabladid.is
Miðstýringin tekur
ekki á glæpavanda
Litháískur prófessor segir miðstýrt regluverk ekki geta tekið á skipulagðri
glæpastarfsemi. Hann segir Evrópusamrunann hafa leitt af sér aukna glæpa-
starfsemi á síðustu árum. Efla þarf hæfileika þjóða til að nýta samvinnuna.
VIKTORAS JURSTICKIS
FLYTUR ERINDI SITT Viktor-
as fjallaði nokkuð ítarlega
um áhrif Evrópusamruna
og alþjóðavæðingar á
öryggismál og baráttuna
gegn glæpum á hádegis-
fundi í gær. Hann sést hér
flytja erindi sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
EGYPTALAND, AP Ayman al-Zawahri, egypski
læknirinn sem talinn er vera næstæðsti yfir-
maður Al Kaída-samtakanna, segir að næstu
árásir samtakanna verði gerðar í Ísrael og ríkj-
um við Persaflóa. Hann segir þetta á mynd-
bandi sem Al Kaída sendi frá sér í gær.
Myndbandið er eitt af nokkrum sem Al
Kaída sendir frá sér í tengslum við 11. sept-
ember, nú þegar fimm ár eru liðin frá árásun-
um á New York og Washington.
„Þið ættuð ekki að eyða tíma ykkar í að
styrkja herlið ykkar í Írak og Afganistan vegna
þess að örlög þeirra eru ráðin,“ sagði Zawahri
á myndbandinu. „Þess í stað þurfið þið að
styrkja herlið ykkar á tveimur svæðum. Annað
er Persaflói, þar sem ykkur verður hent út
eftir að þið hafið verið yfirbugaðir í Írak, og
hitt er Ísrael.“
Zawahri hvatti einnig múslima til þess að
herða andspyrnu sína gegn Bandaríkjunum og
hótaði fleiri hryðjuverkum.
Við Bandaríkjamenn sagði hann: „Þið gáfuð
okkur réttlætingu og tækifæri til þess að halda
áfram að berjast gegn ykkur.“
Á sunnudaginn sendi Al Kaída, eða nánar
tiltekið As Sahab, sem mun vera kynningar-
eða áróðursmáladeild Al Kaída, frá sér langt
myndband í heimildarmyndastíl um árásirnar
á New York árið 2001.
Þar sjást meðal annars gamlar en áður óbirt-
ar myndir af Osama bin Laden, sem enn er
sagður hæstráðandi Al Kaída. Þar sést bin
Laden meðal annars hitta félaga sína í fjalla-
búðum og þulur segir að sumir mannanna séu
nokkrir af flugræningjunum sem gerðu árás-
irnar á Bandaríkin árið 2001. - gb
Al Kaída-samtökin sendu frá sér fleiri myndbönd í tengslum við hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001:
Hóta árásum í Ísrael og Persaflóaríkjum
AYMAN AL-ZAWAHRI Sendi frá sér nýjan boðskap í
tilefni þess að fimm ár eru liðin frá árásunum á New
York og Washington. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
STARFSÞJÁLFUN Ekron, starfsþjálf-
un fyrir áfengissjúklinga, var
vígð í gær. Starfsþálfunin er
hugmynd Hjalta Kjartanssonar,
framkvæmdastóra Ekron.
Herdís Hjörleifsdóttir, sem
situr í stjórn Ekron, segir
starfsþjálfun fyrir áfengissjúk-
linga sem lokið hafa vímuefna-
meðferð vanta hér á landi. „Ekron
verður opin á daginn og mun
aðstoða þá sem koma úr vímu-
efnameðferð við að byggja líf sitt
upp að nýju og komast út á
atvinnumarkaðinn.“
Hún segir að nú standi aðeins á
fjármagni til að hægt verði að
opna Ekron sem er til húsa á
Smiðjuvegi 4b í Kópavogi. - hs
Áfengissjúklingum hjálpað:
Starfsþjálfunin
Ekron vígð
EKRON VÍGÐ Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, var einn þeirra sem
héldu ræðu í tilefni opnunarinnar.
Háskólakennurum fjölgar
Kennurum á háskólastigi fjölgaði
um 101 milli áranna 2004-2005 þótt
stöðugildum hefði aðeins fjölgað um
89. Ástæða þessa er sú að drjúgur
meirihluti háskólakennara er í hluta-
starfi. Í fyrra voru 60 prósent af 1.832
háskólakennurum í minna en 100 pró-
senta starfi. Tvær af hverjum þremur
konum við kennslu eru í hlutastarfi.
HÁSKÓLAR
LÖGREGLUMÁL Tveim mönnum frá
Marokkó sem reyndu að smygla
fíkniefnum innvortis til landsins
um mánaðamótin hefur verið
sleppt. Tveir landar þeirra til
viðbótar voru einnig handteknir í
Leifsstöð á sama tíma, en þeim
var sleppt að rannsókn lokinni.
Allir eru þessir menn búsettir
hér.
Fjórmenningarnir voru
stöðvaðir við reglubundið eftirlit
tollgæslu eftir að grunsemdir
vöknuðu um að þeir væru með
fíkniefni í farteskinu.
Tveir þeirra reyndust vera
með fíkniefni innvortis, en málið
mun ekki vera talið umfangsmik-
ið, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins. - jss
Fíkniefnasmygl:
Marokkóbúar
lausir úr haldi
STJÓRNMÁL Efnt verður til
prófkjörs um skipan þriggja
efstu sæta á lista
Samfylkingarinn-
ar í Norðaustur-
kjördæmi fyrir
komandi
kosningar. Þetta
kom fram á
aðalfundi
kjördæmaráðs
flokksins
síðastliðinn
sunnudag.
Rúmlega 120 fulltrúar úr
kjördæminu sátu fundinn og
samþykktu að prófkjörið yrði
opið öllum skráðum flokksfélög-
um sem eiga lögheimili í kjör-
dæminu. Sex hafa þegar gefið
kost á sér í þrjú efstu sætin;
Kristján Möller, Einar Már
Sigurðarson, Lára Stefánsdóttir,
Benedikt Sigurðarson, Jónína Rós
Guðmundsdóttir og Sveinn
Arnarson. - þsj
Norðausturkjördæmi:
Munu kjósa um
þrjú efstu sætin
KRISTJÁN MÖLLER