Fréttablaðið - 12.09.2006, Blaðsíða 35
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { börnin okkar } ■■■■ 9
Fyrstu æviár barnsins móta þá persónu sem það
verður sem fullorðinn einstaklingur. Stórum hluta
uppvaxtaráranna ver barnið í herbergi sínu. Þar fer
fram leikur, nám, svefn og margt fleira. Það er því
nauðsynlegt að barnaherbergi sé skipulagt bæði með
notagildi og örvun í huga.
Litir geta lífgað mjög upp á lífið. Skemmtilegt
getur verið að mála barnaherbergi í líflegum litum þó
að auðvitað beri að varast að hafa litina of marga og
æpandi, sem hefur truflandi áhrif.
Umfram allt verður barnaherbergið þó að höfða
til barnsins.
Gott getur því verið að hafa það með í ráðum í vali
á litum og skreytingum.
Litaljómi í veröld barnsins
Barnaherbergi eru einstakir staðir enda fer þar fram allt í senn; leikur, nám og svefn.
Litir á barnaherbergjum þurfa alls ekki að endurspegla hvort
þar búi strákur eða stelpa. Skemmtilegir hlutlægir litir geta verið
skemmtilegir sérstaklega þegar þeir eru brotnir upp með hvítum
eins og hér er gert. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Litríkar ábreiður, fallega lagaðir púðar og skemmtilegt skraut á
hurðum lífgar upp á tilveruna.
Ekta strákaherbergi. Heil ímynduð ævintýraveröld getur orðið að
veruleika með réttri hönnun.
Barnaherbergi í sveitastíl. Það er örugglega ljúft að fara að sofa í þessu notalega herbergi
og spjalla við systkini sitt í neðri kojunni.
Prinsessuherbergi. Margar litlar telpur elska bleikan. Af hverju ekki að leyfa þeim að njóta
þess að vera prinsessur í herberginu sínu?
Margprófaður fatnaður sem heldur á þér hita við
erfi ðustu aðstæður sem hægt er að hugsa sér.
Þar á meðal í löngufrímínútum.
Reykjavík: Kringlan, Bankastræti 5, Faxafen 12
Garðabær: Miðhraun 11 Akureyri: Glerárgata 32
Keflavík: Leifsstöð og söluaðilar um land allt.
www.66north.is