Fréttablaðið - 12.09.2006, Page 22
[ ]
Idol-stjarnan Davíð Smári
Harðarson lætur sér ekki
nægja að syngja sig inn í hjörtu
þjóðarinnar heldur vill hann
líka hjálpa henni í form.
Davíð Smári og félagi hans Jóhann
Emil Elíasson hafa auglýst líkams-
ræktarnámskeið í Sporthúsinu
sem eiga að hefjast 18. september
og vera milli hálf sjö og hálf átta á
morgnana. En hvað kom söngvar-
anum til að taka þessa stefnu og
hvernig verða þessi námskeið?
„Þetta byrjaði allt með því að
ég vildi grenna mig. Það tókst svo
vel að ég fékk brennandi áhuga á
að hjálpa öðrum til þess. Ekki þó
þannig að við keyrum fólk út á sex
vikum og skiljum það svo eftir
heldur kennum við því hvernig
það á að taka á. Sumir taka allt of
mikið á og brenna út, aðrir allt of
lítið og finna ekki fyrir neinum
árangri. Við reynum að finna
þennan gullna meðalveg. Þetta er
námskeið í aðhaldi.“
Sjálfur hefur Davíð Smári losað
sig við hvorki meira né minna en
43-45 kíló frá því hann var þyngst-
ur og segir sér líða mun betur nú.
„Það er allt langtum auðveldara
en áður því ég er miklu orkumeiri
en ég var,“ segir hann og er beðinn
um dæmi. „Þegar ég segist ætla að
hlaupa út í búð þá hleyp ég í
alvörunni og skokka með pokana
til baka. Meira að segja röddin
hefur breyst og úthaldið í söngn-
um enda er ég búinn að þjálfa
kviðvöðvana svo vel að þindin er
alveg tvíefld. Mér líður mjög vel
og þessi líðan hefur áhrif á allt
sem ég geri. Algerlega allt.“
Davíð Smári segir þá félaga
ekki ætla að predika yfir fólki
heldur vera með því á æfingunum
og spjalla. „Jóhann Emil er íþrótta-
fræðingur með fjögurra ára
háskólanám að baki og reynslu í
að kenna íþróttir auk þess að
stunda þær mikið sjálfur. Ég hef
reynsluna af að vera langt yfir
kjörþyngd og líða illa þess vegna
og ég hef reynslu af því að missa
öll þessi kíló, þannig að ég hef
mannlega þáttinn. Ég náði sjálfur
góðum árangri og vil að fleiri njóti
þess sama.“ gun@frettabladid.is
Líðanin hefur áhrif á allt
Davíð Smári er að fara af stað með námskeið ásamt Jóhanni Emil íþróttafræðingi, enda hafa þeir miklu að miðla til þeirra sem
vilja létta sig og koma sér í form. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Ef marka má niðurstöður
breskrar könnunar eru börn
sem tekin eru með keisara-
skurði þrisvar sinnum líklegri
til að deyja í fyrsta mánuðinum
eftir fæðingu en börn fædd með
eðlilegum hætti.
Frá þessu er greint á vef breska
ríkisútvarpsins. 5,7 milljónir fæð-
inga voru skoðaðar og varð niður-
staðan sem áður segir. Ef barn er
tekið með keisaraskurði er þri-
svar sinnum líklegra að það deyi á
fyrsta mánuðinum. Séu samfélags-
legir og heilsufarslegir þættir
sem hafa áhrif á fæðinguna teknir
inn í útreikningana minnkar þessi
munur niður í helmingi meiri líkur
á dauða.
Rannsakendur telja að þetta sé
vegna þess að fæðing hjálpi ung-
börnum að búa sig undir lífið utan
legsins. Við fæðingu þrýstist vökvi
úr lungum barnsins og talið er að
einhverjar hormónabreytingar
verði í barninu sem stuðla að
þroska lungna.
Þess ber þó að geta að ung-
barnadauði var sjaldgæfur í rann-
sókninni og hlutfallsleg hætta var
afar lítil. - tg
Keisaraskurður
minnkar lífslíkur
Keisaraskurður getur reynst varhugaverður. NORDICPHOTOS/AFP
Reynsla hjúkrunarfræðinga af
öryggi á vinnustað verður til
umræðu á fyrirlestri í Eirbergi
í dag.
Aðalbjörg Finnbogadóttir flytur í
dag fyrirlestur byggðan á rann-
sóknum sínum. Yfirheiti fyrirlestr-
arins er Reynsla hjúkrunarfræð-
inga af öryggi á vinnustað.
Markmið rannsóknar hennar var
að varpa ljósi á reynslu hjúkrunar-
fræðinga af eigin öryggi á vinnu-
stað.
Niðurstöður hennar sýndu að
upplifun hjúkrunarfræðinga á
eigin öryggi var nátengd öryggi
sjúklinganna. Þættir sem efldu
öryggi
hjúkrun-
arfræð-
inganna
voru góð
mönnun,
þ.e. nægi-
legur
fjöldi
reyndra
og áreið-
anlegra
sam-
starfs-
manna,
hæfilegt
vinnu-
álag, vinnutími og góðar vinnuað-
stæður.
Fyrirlesturinn hefst klukkan
12.10 í stofu 201 á annarri hæð í
Eirbergi, Eiríksgötu 34.
Nánar á www.hi.is
Öryggi hjúkr-
unarfræðinga
Upplifun hjúkrunarfræðinga
á eigin öryggi var nátengt
öryggi sjúklinga
Salat í hádeginu Borðaðu salat í hádeginu
þrisvar sinnum í viku og finndu hvernig heilsan tekur
kipp. Mundu bara að fara sparlega með salatdressing-
una því þær innihalda oft mikla fitu.
�����������
��������������������������������
A
R
G
U
S
0
6
-0
3
5
0
�������������������� ������������������������� ��������
���� ������������������
��������������
�������������������������
www.svefn.is