Fréttablaðið - 12.09.2006, Side 28
■■■■ { börnin okkar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2
„Það eru svo rosalega marg-
ar bækur sem ég hef lesið, en sú
sem ég man helst eftir er kannski
vísnabókin sem var til bæði heima
og hjá ömmu og afa,“ segir Kristj-
ana Stefánsdóttir djasssöngkona
og bætir við að hún hafi lesið allt
mögulegt sem krakki enda hafi
hún átt gott safn barnabóka heima
hjá sér. „Ég las til dæmis Fimm
fræknu, Nancy Drew og bækurnar
eftir Ole Lund Kirkegaard, þannig
að það er kannski engin ein sem
stendur beinlínis upp úr.“
Kristjana heillaðist mjög af
ævintýrum, bæði Grimmsævintýr-
unum og H.C. Andersen. Ævintýr-
in heilla hana greinilega enn, enda
segist hún mikill Harry Potter-
aðdáandi.
Vísnabókin heillaði
Kristjana Stefánsdóttir, söngkona
Kristjana Stefánsdóttir söngkona.
Fjölmörg börn iðka sund á vegum
íþróttafélagsins Ármanns allan vet-
urinn en þau yngstu eru í Sundskól-
anum, sem er með ellefu tíma nám-
skeið á haustin og aftur í janúar. Þar
skiptast börnin í þrjá hópa; ungbörn,
kríli og byrjendur, eins og formaður
sunddeildarinnar, Hjörtur Gíslason,
orðar það. „Síðan eru þau orðin
atvinnumenn,“ bætir hann glettnis-
lega við og gefur svo boltann yfir til
Guðrúnar Stellu Gunnarsdóttur, sem
hefur séð um Sundskólann frá árinu
1990. Hún segir marga foreldra vera
meðvitaða um gildi hreyfingar fyrir
börn sín. Sundþjálfun henti litlum
börnum mjög vel því þau eigi svo
auðvelt með að hreyfa sig í vatn-
inu. Dóttir Guðrúnar Stellu, Eygló
Traustadóttir sjúkraþjálfari, sér um
kennsluna en skyldu þær mæðgur
ekki hafa fengið til sín vatnshrædd
börn?
„Jú, mjög oft, en foreldrarn-
ir fara með börnunum ofan í. Það
er bara farið rólega af stað og ekki
byrjað að þjálfa sundtök strax.
Fyrst læra börnin á umhverfið og
hvað þeim er óhætt og áhersla er
lögð á að þau aðlagist sem best og
hreyfi sig á fjölbreyttan hátt í gegn-
um leik,“ svarar Guðrún Stella. Hún
segir börnin alrei nota kúta heldur
læri þau bara að stjórna eigin lík-
ama í lauginni. Hún segir börnin
geta byrjað á hvaða aldri sem er
og stundum komi þau í þjálfun hjá
Ármanni eftir að þau séu byrjuð í
skólasundi til að fá meiri einstakl-
ingsþjálfun og auka færnina. Hún
segir sundið hjá Ármanni sótt af
börnum af öllu höfuðborgarsvæð-
inu enda opið öllum. „Þetta er mjög
vinsælt,“ tekur hún fram. „Og upp-
selt í námskeiðin fyrir þau yngstu í
haust.“ - gg
Læra á líkamann í lauginni
Yfirleitt á vel við börn að vera í vatni og því yngri sem þau byrja að synda, því leikn-
ari verða þau.
Börnin nota ekki kút í Sundskólanum en þau fá að leika sér með bolta. Hér er Hrefna Sæmundsdóttir, hún er hörkudugleg í sundi.
Þegar jólasveinninn kom í heimsókn henti
hann Hirti, formanni sunddeildarinnar, út í
við mikinn fögnuð krakkanna.
Guðrún Stella og Eygló Traustadóttir hafa
séð um yngstu börnin í hálfan annan
áratug.
EFTIRLÆTIS BARNABÆKURNAR
+ = 20% afsláttur
Með kaupum á tveimur Kellogg’s Corn Flakes pökkum færðu
20% afslátt af miðaverði á barnaleiksýninguna Hafið bláa.
Hafið bláa fékk áhorfendaverðlaun Grímunnar árið 2006 og
var tilnefnt sem barnasýning ársins og fyrir búninga.
Geymdu kassakvittunina og framvísaðu henni í miðasölu
Austurbæjar þegar þú kaupir miða.
Kauptu Corn Flakes og fáðu
afslátt á Hafið bláa!
Þú sparar allt að640 kr.á miða!
Fæðing nýs barns er gleðileg fyrir alla fjöl-
skylduna. Oft vill þó henda að eldra systkini
finnist það verða út undan í þeirri athygli sem
beinist að hinum nýja fjölskyldumeðlim. Upp-
lifa þau oft afbrýðisemi á þessum tíma enda
hafa foreldrarnir ekki jafn mikinn tíma fyrir
þau og áður.
Afbrýðisemin getur komið fram í ýmsum
myndum, allt frá því að sýna fjandsemi í garð
litla barnsins til þess að draga sig í hlé og
verða mjög þögul.
Hér eru nokkur góð ráð til að hjálpa eldri
systkinum að takast á við nýjar aðstæður:
- Hvetjið eldri börn til að hjálpa til með
nýja barnið.
- Eyðið tíma með eldri börnunum bæði
þegar litla barnið er sofandi og vakandi.
- Sýnið barninu skilning og þolinmæði því þetta getur verið erfiður tími
fyrir eldri börnin.
- Sýnið því ást og umhyggju með orðum og gerðum.
Lítið barn stelur senunni
AÐ EIGNAST LÍTIÐ SYSTKINI GETUR TEKIÐ Á TAUGARNAR ENDA
ATHYGLI FORELDRA DREIFT Á FLEIRI STAÐI.