Fréttablaðið - 12.09.2006, Page 30
■■■■ { börnin okkar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
„Ég hafði ofboðslega gaman af að
lesa sem barn og var alæta á bækur.
Ég ólst upp á Ísafirði þannig að
maður sótti bókasafnið, sem var
ótrúlega heillandi staður. Þegar ég
var að alast upp var hvorki sjónvarp
né annað sem glapti hugann og því
bækurnar sem heilluðu. Ef ég á að
nefna eitthvað eftirminnilegt verð
ég að segja að ævintýrabækurnar
hafi heillað mig. Það sem ég las
yngst var Lísa í Undralandi, Grimms-
ævintýri og Þúsund og ein nótt.
Það var eitthvað í ævintýrunum
og baráttunni milli góðs og ills sem
gerði það að verkum að maður gat
vakað langt fram á nætur við lestur
bóka. Ég var snemma læs og yngst
af stórum systkinahópi og lærði í
raun að lesa af stautinu í þeim. Mér
finnst líka gaman að minnast þess
að þegar jólin nálguðust hlupum
við krakkarnir í ævintýraheiminn í
bókabúðinni til að skoða hvað væri
nýtt og freistandi. Jólin hafa ennþá
tengingu við bækur fyrir mig og
það eru bara ekki jól ef ekki er bók í
gjafapakkanum.“
Bókasafnið var
ævintýraheimur
Rannveig Guðmundsdóttir, alþingismaður
Steinar hefur alltaf haft mjög
gaman af því að teikna. „Ég er
búinn að teikna síðan ég var
svona þriggja ára,“ segir hann.
Þegar Steinar var fimm ára fór
hann síðan að gera teiknimynda-
sögur. „Ég hef mjög gaman af því
að gera myndasögur. Stundum
æfi ég mig með því að teikna upp
eftir öðrum myndasögum, eins
og Simpsons, og svo bý ég líka
sjálfur til sögur. Ég teikna samt
mest í svona Simpsons-stíl.“
Steinar segist ekki vera búinn
að semja sögurnar í heild áður en
hann byrjar að teikna og hann
hugsar bara um einn ramma í
einu. „Ég byrja bara á einum
ramma og teikna hann og svo fer
ég að pæla í næsta. Þegar ég er
búinn að teikna sögurnar lita ég
þær stundum en oft nenni ég því
ekki.“
Steinar hefur líka aðeins verið
að teikna fólk sem hann þekkir
í myndasögustíl. „Ég gerði svo-
lítið af því í fyrra,“ segir hann
og viðurkennir að það sé dálítil
kúnst að teikna raunverulegt fólk
þannig að það þekkist þegar það
er orðið að teiknimyndafígúrum.
Steinar hefur farið á nokkur
myndlistarnámskeið
og þrjú myndasögu-
námskeið. „Ég fór á
tvö teiknimyndasögu-
námskeið hjá Inga og
eitt hjá Hugleiki. Það
var mjög gaman. Á
námskeiðinu hjá Hug-
leiki áttu allir að gera
eina flotta myndasögu
og hann safnaði þeim saman í
eitt hefti og ljósritaði það svo
allir fengu eintak af því.“
Ein myndasagan hans Steinars
birtist líka í blaði sem var gefið út
í skólanum hans. „Þegar ég var í
fjórða bekk var birt ein saga eftir
mig skólablaðinu,“ segir hann.
Steinar stefnir á að fara í
Menntaskólann í Hamrahlíð
þegar hann verður búinn með
Laugalækjarskóla en hann er ekki
farinn að hugsa mikið lengra en
það. „Ég held að mig langi til
þess að teikna áfram en annars
er ég ekkert mikið farinn að pæla
í því. Ég spái ekki mikið í fram-
tíðina.“
Pælir í einum ramma í einu
Steinar Þorsteinsson er þrettán ára gamall nemandi í Laugalækjarskóla. Í frístundum
sínum gerir hann mikið af því að búa til teiknimyndasögur.
Myndir eftir Steinar eru farnar að prýða veggina hjá flestum í fjölskyldunni hans.
Myndasögurnar hans Stein-
ars eru mjög skemmtilegar.
Steinar hefur teiknað síðan hann man eftir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Einn af kostum þess að búa á litla Íslandi er að
börnin okkar geta leikið sér úti í tiltölulega
ómenguðu lofti. Hins vegar fylgir því að
búa við jaðar heimskautsbaugs að hérna
þarf að huga að útbúnaði og klæðnaði
barnanna mun betur en víða sunnar í
álfunni.
Oft halda foreldrar að því þykkari og
þyngri sem vetrarflíkin sé, því hlýrri og
betri sé hún. En tækninni hefur fleygt
fram á þessu sviði eins og flestum
öðrum. Í barnafatnaði hjá 66° Norður
er einungis notað fyrsta
flokks efni frá þekktustu
efnaframleiðendum í
heimi; sömu efni og
eru notuð í fullorðins-
línu fyrirtækisins því
þar á bæ trúa menn því að
yngstu fjölskyldumeðlim-
irnir eigi þess rétt að fá
sömu gæði í fatnaði og
foreldrarnir.
Meðal efna sem 66°
Norður notar í útifatn-
aði sínum eru mjög ein-
angrandi efni sem halda
inni hitanum, bægja frá
kulda og bleytu og gera
barninu kleift að athafna sig að vild
auk þess að hleypa út svita sem mynd-
ast vegna hamagangsins.
Þessir nýju eiginleikar efna, auk
þess að nýju efnin eru léttari, gera barninu
kleift að hreyfa sig óhindrað og fá þannig
mun meira út úr útiverunni.
Haldið hita á
börnunum
Í barnafatnaði hjá 66° Norður er einungis notað fyrsta flokks efni frá þekkt-
ustu efnaframleiðendum í heimi.
Fréttir berast bæði utan úr heimi og
hér heima af hörmungum sem ríða
yfir og af hræðilegum ofbeldisverk-
um sem framin eru á saklausu fólki.
Slík er ofgnóttin af fréttaflutningi
að hætta er á að menn verði ónæm-
ir fyrir ógæfu annarra. Það er því
nauðsynlegt að kenna börnum að
setja sig í spor annarra til að forðast
ofbeldi af öllu tagi. Það barn sem
kann að setja sig í spor annarra og
skilja hvernig því barni líður í til-
teknum aðstæðum er ólíklegt til að
skapa ofbeldisaðstæður.
Nokkrar leiðir sem hafa ber í huga
þegar börnum er kennt að setja sig í
spor annarra:
- Þegar saga er lesin fyrir barn er
gott að ræða hvernig söguhetjunni
og öðrum líði þegar eitthvað gerist.
- Notaðu tækifærin sem gefast til
að ræða líðan annarra, til dæmis
þegar náttúruhamfarir ríða yfir úti í
heimi, þegar slys verða í umferðinni
og annað slíkt. - Leyfðu barninu að
tala og hlustaðu sjálf(ur). Ekki leggja
barninu orð í munn heldur leyfðu
því að komast að eigin niðurstöðu.
heimild: www.hugo.is
Að setja sig í spor annarra
Nauðsynlegt er að börn læri að setja sig í spor annarra.
Léttur, hlýr og
flottur jakki úr
Polartec Power
teygjuefni.
Mjög hlý
og þægileg
dúnúlpa úr
regnheldu efni
með hettu sem
hægt er að
taka af.
EFTIRLÆTIS BARNABÆKURNAR
Skrautið á þess-
ari flíshúfu minn-
ir á hanakamb.