Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.09.2006, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 12.09.2006, Qupperneq 50
 12. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR26 menning@frettabladid.is ! Leikaraefni Nemendaleik- hússins eru í óðaönn að æfa fyrstu sýningu vetrarins, Hvíta kanínu, sem frumsýnd verður í lok mánaðarins. Síðan tekur við hádramatísk harmsaga um hefnd og ástir og splúnkunýtt leikrit eftir Þorvald Þorsteinsson. „Það er alltaf smá titringur í byrj- un leikársins,“ segir Ragnheiður Skúladóttir, deildarforseti leiklist- ardeildar Listaháskóla Íslands. „Nú reynir á sjálfstæð vinnubrögð hjá hópnum sem hefur verið í frek- ar vernduðu umhverfi síðustu tvö árin. En þetta er frambærilegur hópur með mjög sterkar skoðanir sem þau geta fyllilega rökstutt eftir að hafa farið í gegnum okkar góða nám í Listaháskólanum,“ segir Ragnheiður sposk. „Fyrsta verkefni vetrarins er verkið Hvít kanína, það er verk sem sett er saman af hópnum sem inniber níu leikaraefni og Jón Pál Eyjólfsson leikstjóra, auk mynd- listarkonunnar Ilmi Stefánsdóttur sem sér um leikmynd og búninga og Hönnu Kayhko sem sér um ljósahönnun,“ segir Ragnheiður Sýningin er samsett og unnin með formerkjum „devised“ leikhús- hefðarinnar og er því fremur leik- sýning en leikrit en þátttakendurn- ir hafa safnað efnivið í hana á æfingatímabilinu. „Þessi aðferð er mjög gefandi fyrir leikara sem oft- ast vinna með efnivið sem aðrir hafa skrifað og túlka hann síðan í gegnum leikstjóra,“ útskýrir Ragn- heiður og bendir á að þessi stefna eigi sér töluvert langa sögu og sé að ávinna sér sífellt meira fylgi hérlendis. Venja er að Nemendaleikhúsið setji upp klassískt verk og að þessu sinni varð leikritið Blóðbrullaup eftir F. G. Lorca fyrir valinu, ljóð- ræn og dramatísk harmsaga um ástir og hefndir. „Það er ungur og frambærilegur leikstjóri frá Dan- mörku, Kamilla Mortensen sem leikstýrir hér á landi í fyrsta sinn en hún var að útskrifast úr stærsta leiklistarskóla Kaupmannahafnar. Börkur Jónsson sér um leikmynd og búninga en Egill Ingibergsson er ljósahönnuður. Það verður spennandi að sjá hvernig hópurinn vinnur úr verkinu.“ Lokaverkefni hópsins, nýtt verk eftir Þorvald Þorsteinsson, verður sýnt norðan heiða í vor en þetta er í fyrsta sinn sem Nemendaleikhús- ið frumsýnir þar. „Við mörkuðum snemma þá stefnu að vera í sam- starfi við atvinnuleikhúsin og nú er komið að Leikfélagi Akureyrar. Magnús Geir Þórðarson leikhús- stjóri kom með þá hugmynd að heimamaðurinn Þorvaldur myndi skrifa nýtt verk fyrir hópinn en síðan erum við með sjóaðan og margreyndan leikhúsmann, Kjart- an Ragnarsson, sem mun leikstýra verkinu,“ segir hún og bætir við að Kjartan sé af annarri kynslóð en Jón Páll og Kamilla svo að leikara- efnin fái mögulega aukna breidd þar. Verkið nýja heitir Lífið – notk- unarreglur og fjallar að sögn um ævintýri okkar allra, sundurleitan samtíma og óvissa framtíð en er jafnframt leikrit fullt af hlýju, húmor og fallegri tónlist. Ragnheiður segir að Listahá- skólinn leggi metnað sinn í að sinna íslensku hugviti en á undan- förnum árum hefur Nemendaleik- húsið yfirleitt sýnt nýtt íslenskt verk, til dæmis verkin Tattú eftir Sigurð Pálsson, Íslands þúsund tár eftir Elísabetu Jökulsdóttur og leikritið Forðist okkur sem byggði á myndasögum Hugleiks Dags- sonar og vann til Grímuverðlauna í fyrra en það var til að byrja með unnið með aðferðum „devised“ leikhússins. „Hópurinn er mjög spenntur að takast á við spurningar um hvernig leikhús þau vilja gera og ég er ekki í vafa um að þau eiga eftir að hafa mikil áhrif á leikhúsheiminn,“ segir Ragnheiður. Leiksýningin Hvít kanína verð- ur frumsýnd þann 22. september. kristrun@frettabladid.is Kanína, hefndir og húmor Kl. 20.00 Ásdís Jónsdóttir mannfræðingur flytur erindi í fyrirlestraröð Mann- fræðingafélags Íslands, „Vald, þekk- ing, átök“ í húsakynnum Reykjavík- urAkademíunnar við Hringbraut 121. Erindi Ásdísar nefnist „Sprungið land: vísindi og menning við Kára- hnjúka.“ > Dustaðu rykið af... hljómplötunni Kysstu mig, betur þekkt sem Íslensk kjöt- súpa, sem kom út árið 1979. Margir muna hugljúfan texta Jóhanns G. Jóhannssonar við þekktasta lag plötunnar en þar heyrist sungið „ég er matargat, mataragat/ íslensk kjötsúpa er það besta sem ég fæ“. Fátt yljar jafn vel á nöpru haustkvöldi en íslensk kjötsúpa. Hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands hefst á ný í dag. Þema vetrarins er að þessu sinni, „Hvað er sagnfræði? Rannsóknir og miðlun.“ Fyrirlestrarnir verða að venju haldnir hálfsmán- aðarlega í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu en fram til áramóta munu níu fræðimenn reifa málin þar og fjalla um jafn fjölbreytt efni og sagn- fræðirannsóknir í Rússlandi, hvort sagnfræði geti hjálpað fólki að grenna sig og hvort sagan sé bara sjónarmið. Rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn ríður á vaðið og mun í hádeginu í dag flytja erindi sem hann nefnir „Ljúgverðugleiki“. Sögulegar skáldsögur Þórarins hafa fengið góðar viðtökur íslenskra les- enda en hann hefur meðal annars skrifað bæk- urnar Brotahöfuð og Baróninn en bækur þær vekja fróðlegar spurningar um tengsl skáldskapar og sagnfræði, sannleika og lygi. Mun Þórarinn því velta fyrir sér hvort sögurnar séu trúverðugar eða máski ljúgverðugar? Fyrirlestrar Sagnfræðingafélagsins eru öllum opnir og þeir hefjast stundvíslega í sal Þjóðminja- safnsins kl. 12.05. ÞÓRARINN ELDJÁRN RITHÖFUNDUR Ræðir um tengsl skáldskapar og sagnfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Mögulegur ljúgverðugleiki LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði frá kr. 4300 - 4800 TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga í síma 437 1600 Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag Sýningar í Landnámssetri í september og október Miðvikudagur 13. september kl. 20 Uppselt Föstudagur 15. september kl. 20 Uppselt Laugardagur 16. september kl. 20 Uppselt Sunnudagur 17. september kl. 20 Uppselt Laugardagur 23. september kl. 20 Uppselt Sunnudagur 24. september kl. 16 Uppselt Miðvikudagur 27. september kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 28. september kl. 20 Laus sæti Fimmtudagur 5. október kl. 20 Laus sæti ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� ����������� �� �������������������� �� �� ����� ������������������������������� �������������� �� ��������������������������������������������������������������������������� ����������������������������������������������������������� ������������ �������������� �� ����������� �������������������������������������������������������������������� ������������ ���������������������������������������� ����������������������������������� ������������������������������� LEIKSÝNING EN EKKI LEIKRIT Spurn- ingar um lífsviðhorf og gildismat nútímafólks brenna á vörum margra. Hver eru „við“ og hverjir eru „hin- ir“?FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.