Fréttablaðið - 12.09.2006, Page 64

Fréttablaðið - 12.09.2006, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ����������������������������� vaxtaauki! 10% A RG U S / 06 -0 47 2 Kynntu þér málið á spron.is SIMPLY CLEVER Afl og hagkvæmni SkodaOctavia TDI® dísilvélin eyðir aðeins 3,6 lítrum* HEKLA, Laugavegi 172-174, sími 590 5000 www.hekla.is, hekla@hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666 HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 • Reykjavík, lagt af stað Reykjavík 1.289 km - 5.642 kr. • • Ak ure yri 38 8 k m - 1.7 02 kr. • E gi ls st að ir 6 53 k m - 2. 85 8 kr . Klaustur 1.032 km - 4.524 kr. • Víð ige rði 1.5 15 km - 6 .68 8 k r. • Það kann að hljóma eins og skáldskapur en það er hægt að aka Skoda Octavia ríflega hringinn í kringum landið á einum eldsneytistanki. Þetta er enn athyglisverðara þegar haft er í huga að Skoda Octavia er fjölskyldubíll í fullri stærð. TDI® dísilvélin er nefnilega raunverulegt tækniundur sem skilar nægu afli, og sparnaði sem alla munar um. Eyðsla pr. 100 km í sparakstri Stefáns Ásgrímssonar, ritstjóra FÍB-blaðsins, í áheitaakstri HEKLU fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna 21.–23. ágúst 2006. Upphæðir m.v. almennt verð á dísilolíu hjá ÓB 29.8.2006. * H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 4 0 9 8 Alveg þar til nýlega stóð mér hjartanlega á sama um kyn nýfæddra barna, líka minna eigin vel að merkja. Alveg eins og flest- ir aðrir foreldrar finnst mér mikil- vægara að barnið fæðist heilt á húfi og með hjartað á réttum stað en aukaatriði hvort það er stelpa eða strákur. Hinsvegar beið ég undanfarið með nokkrum spenn- ingi eftir að frétta af kyni nýja keisarabarnsins í Japan. ÞAU ægilegu örlög vofðu nefni- lega yfir japönsku þjóðinni að grilljón ára lögum þyrfti að breyta á þann hátt að stúlka gæti tekið við keisaratigninni. Inn í hina hátignu fjölskyldu hafði nefnilega ekki fæðst drengur í fjörutíu ár. Ríkis- arfinn hefði getað orðið eldri dótt- ir keisarahjónanna, en slíkt myndi vitaskuld setja aldagamlar hefðir í uppnám með tilheyrandi róðaríi. Forsætisráðherrann beið stressað- ur með breytingarfrumvarpið til- búið þegar farginu var létt af stjórninni, því loksins, loksins fæddist keisaraborinn drengur. EN sá heilladagur! Engu þarf að breyta og japönsku prinsessurnar geta haldið áfram að vera stikkfrí. Þjóðin öll fagnaði innilega en ég varð hinsvegar dálítið spæld. Ekki það að kvenkyns ríkisarfi hinum megin á hnettinum myndi breyta miklu svona einn og sér en hefði þó hrist duglega upp í siðvenju- sýkinni. ÞVÍ miður einskorðast hefðin um æskilegt kyn ekki við aðrar álfur, munurinn er kannski meira sá að hér fer hún hljótt. Við erum öll svo samansúrruð í hefðbundinn hugs- anagang að til að reyna að sjá hlut- ina í öðru samhengi þarf að velta þeim markvisst fyrir sér. STJÓRNIR stórra fyrirtækja hlytu verulega athygli væri þær eingöngu skipaðar konum þótt ekki þyki frétt að þar sitji einvörð- ungu karlar, jafnvel í fyrirtæki í opinberri eigu. Í langflestum umræðuþáttum í fjölmiðlum er hlutfallið 3:1, körlum í vil, þar sem þáttastjórnandinn er líka oftast karl. Hátekjuhóparnir saman- standa af körlum, lágtekjuhóparn- ir af einstæðum mæðrum. ÁÞJÁN hefðanna kemur okkur öllum við, líka hátekjukörlum sem sitja í stjórnum stórra fyrirtækja og segja skoðun sína í fjölmiðlum. Dætra sinna vegna hljóta líka þeir að vonast til að vera síðasta kyn- slóð gamaldags hugsunarháttar og vondra hefða. Áþján hefðanna

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.