Fréttablaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 16
 12. október 2006 FIMMTUDAGUR FERÐAÞJÓNUSTA Herbergjum á þriggja og fjögurra stjörnu hótel- um mun fjölga um 376 í Reykjavík á næsta ári. Alls verða þau þá 2.578, sem er sautján prósentum meira en nú er. Mestu munar um 205 her- bergja stækkun á Grand hóteli og byggingu 105 herbergja hótels sem mun bera nafnið Hótel Arnarhvoll. Bæði þessi hótel verða tilbúin snemma næsta vor að sögn Ernu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. „Í ár hefur einnig orðið nokkur fjölgun á herbergjum og þessa dagana er verið að opna Hótel Þingholt en þar verða 54 herbergi.“ Erna segir alltaf ákveðna hættu á að herbergjanýting hrökkvi til baka en hvert nýtt hótel sé samt sem áður tækifæri sem bjóði upp á nýja markaðssetningu. Erna segir að opinberir aðilar jafnt sem einka- fyrirtæki eigi að taka höndum saman og sjá til þess að markaðs- setningin sé öflug því öflug ferða- þjónusta sé allra hagur. „Stærsti hluti þeirra sem gista á hótelum í Reykjavík er erlendir ferðamenn sem eru hér í ýmsum erindagjörðum. Þá hefur verið mikil auking á ferðamönnum sem koma í viðskiptaerindum og til að sitja fundi og ráðstefnur.“ Áætlað er að innan nokkurra ára rísi fyrsta hótelið hér á landi sem mun uppfylla öll skilyrði fimm stjörnu hótela, en þetta er ráðstefnuhöll W-hótels sem byggð verður samsíða Tónlistarhúsinu. Erna segir að fyrstu átta mán- uði þessa árs hafi meðal herbergja- nýting verið 53,2% á landsvísu og hafi aukist um 16 prósent frá árinu áður. Auður Anna Ingólfsdóttir, hót- elstjóri Hótel Héraðs á Egilsstöð- um, segir að tekjuaukning hótels- ins hafi verið 60 prósent í septembermánuði milli áranna 2005 til 2006. „Þá hefur verið gríðarleg fjölg- un gesta milli ára í júlí og ágúst en hótelið var stækkað um 24 herbegi vorið 2004 og er nú 60 herbergi.“ Auður segir erlenda ferðamenn vera uppistöðuna í hótelgestum yfir sumartímann en að Íslending- ar séu meira áberandi á öðrum árstíma. „Sumarið 2005 voru Íslendingar næstflestir gesta hótelsins en þeir eru mikilvægur markhópur. Heimsóknir á Kára- hnjúka hafa skilað sér í fleiri bók- unum á hótelið en einnig er mikil fjölgun á hópum sem koma hingað til að fara á ráðstefnur eða að gera sér glaðan dag.“ hugrun@frettabladid.is Hótelherbergj- um fjölgar Tekjur Hótel Héraðs á Egilsstöðum jukust um sex- tíu prósent í septembermánuði milli áranna 2005 til 2006 en þar eru Íslendingar stór hópur gesta. Í Reykjavík er fyrirhugað að stórauka gistirými. FERÐAMENN Öflug ferðaþjónusta er allra hagur, segir Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. VÍNARBORG, AP Heinz Fischer, for- seti Austurríkis, afhenti í gær Alfred Gusenbauer, leiðtoga sósíal- demókrata, umboð til þess að mynda ríkisstjórn. Tíu dögum fyrr hafði Sósíal- demókrataflokkurinn sigrað naum- lega í þingkosningum. Gusenbauer hyggst mynda „stóra samsteypu- stjórn“ með Þjóðarflokknum, sem hafði farið með völd í landinu fram að kosningunum. Hann sagði þó óhjákvæmilegt að báðir flokkarnir gerðu málamiðlanir til þess að geta myndað stjórn. Wolfgang Schüssel, fráfarandi kanslari og leiðtogi Þjóðarflokks- ins, sagði þó engan veginn sjálfsagt að stjórnarmyndun tækist. - gb Stór samsteypustjórn í smíðum í Austurríki: Gusenberger fær umboð TEKUR VIÐ UMBOÐI Gusenbauer hneigði sig þegar Fischer afhenti honum stjórnar- myndunarumboðið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Heimsóknir á Kára- hnjúka hafa skilað sér í fleiri bókunum á hótelið en einnig er mikil fjölgun á hópum sem koma hingað til að fara á ráðstefnur eða að gera sér glaðan dag.“ AUÐUR ANNA INGÓLFSDÓTTIR HÓTELSTJÓRI AUÐUR ANNA INGÓLFSDÓTTIR ERNA HAUKSDÓTTIR Sími 585 4000 www.urvalutsyn.is Töfrandi Tyrkland LÚXUS & MUNAÐUR Sólríkar sérferðir til Antalya Belek Verð frá 99.900 kr. á mann í tvíbýli 19. okt. í 11 nætur - allt innifalið Njóttu lífsins í einu fallegasta landi heims Antalya og Belek eru vinsælustu sólarstaðir Evrópu- manna á suðurströnd Tyrklands og hafa svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Út frá Antalya eru margar glæsilegar strendur og íslenskir kylfingar hafa lýst Belek sem toppstað, hvort sem talað er um golfvelli, gististaði eða umhverfið sjálft. Lúxusgisting þar sem allt er innifalið Þú þarft ekki að eyða peningum á Hotel Porto Bello, 5 stjörnu lúxushóteli. Missið ekki af frábæru tækifæri til að upplifa ennþá lengra sumar! 19. október - 11 nætur ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S U RV 3 44 43 10 /2 00 6 Innifalið í verði: flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting í 9 nætur á Porto Bello („allt innifalið„), íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.