Fréttablaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 86
12. október 2006 FIMMTUDAGUR62
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 uss 6 drykkur 8 neðan 9 bók 11
samþykki 12 teygjudýr 14 hlutverk 16
tveir eins 17 gól 18 húðsepi milli táa
20 til 21 innyfli.
LÓÐRÉTT
1 að utan 3 tveir eins 4 rabba 5
forsögn 7 gufulest 10 efni 13 málmur
15 eyðimörk 16 vafi 19 í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 suss, 6 te, 8 upp, 9 rit, 11
já, 12 amaba, 14 rulla, 16 ee, 17 ýlu,
18 fit, 20 að, 21 iður.
LÓÐRÉTT: 1 ytra, 3 uu, 4 spjalla, 5
spá, 7 eimreið, 10 tau, 13 blý, 15
auðn, 16 efi, 19 tu.
Fréttamaðurinn Óli Tynes keyrir
um á ansi glæsilegum bíl sem
hann keypti í sumar en þetta er
silfurlitaður Opel Astra OPC.
„Þetta er 240 hestafla bíll og hann
segir ekki ha? þegar ég stíg á
bensíngjöfina,“ útskýrir Óli, sem
segist þó ekki hafa orðið bílakarl
fyrr en aldurinn færðist yfir. „Ég
sá hann auglýstan og fannst hann
alveg rosalega fallegur, stóðst
hann hreinilega ekki en vissi
reyndar ekkert um að hann væri
svona tryllitæki,“ segir Óli og
viðurkennir að þetta hafi verið ást
við fyrstu sýn.
Þótt ástin hafi blómstrað á milli
bílsins og Óla þurfti fréttamaður-
inn að fá leyfi hjá betri helmingin-
um, Vilborgu Halldórsdóttur. „Ég
sagði að þetta væri mjög þægi-
legur og góður bíll, sagði henni
eiginlega allt nema hversu kraft-
mikill hann væri,“ segir Óli og
hlær en eiginkonan komst þó fljót-
lega að raun um hvers slags trylli-
tæki húsbóndinn hafði keypt.
„Þegar hún hafði spænt upp mal-
bikið fyrir framan Landspítalann
fyrir algjöra slysni kom hún til
mín og spurði hvað í andskotanum
ég hefði verið að gera,“ útskýrir
Óli og hlær, segir hana ekki hafa
verið lengi að finna bílnum nafn
við hæfi, Grái fiðringurinn. - fgg
Óli Tynes kominn á Gráa fiðringinn
ÓLI OG ASTRAN Fréttamaðurinn hafði
ekki hugmynd um að bíllinn væri svona
kraftmikill en líkar það vel. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íslenski söngfuglinn Emilíana
Torrini virðist vera í miklu eftir-
læti hjá framleiðendum sjón-
varpsþáttarins Grey‘s Anatomy
því fjögur lög af disknum Fisher-
man‘s Women hafa hljómað í
þáttunum. Nú síðast var það
Nothing Brings Me Down sem
spilað var undir í hádramatísku
atriði fyrsta þáttarins í nýrri
seríu vetrarins. Samkvæmt
Nielsen-sjónvarpsmælingunum
horfðu í kringum 24 milljónir á
þennan þátt og vinsældir sjón-
varpsseríunnar eru orðnar því-
líkar að þátturinn hefur velt
glæparannsóknardeildinni CSI
og Desperate Housewives úr
efsta sæti vinsældalistans en
þessir tveir þættir hafa skipt því
bróðurlega á milli sín. Frétta-
blaðið falaðist eftir spjalli við
Emiliönu Torrini vegna þessa en
var tjáð af umboðsmanni hennar
og unnusta, Jamie, að hún gæfi
ekki færi á sér í nein viðtöl um
þessar mundir.
Tónlistarmenn hafa oft notið
góðs af því að fá lögin sín í sjón-
varpsþætti og nægir þar að
nefna The Rembrandts sem varð
heimsfræg eftir að slagarinn I’ll
Be There For You varð titillag
sjónvarpsþáttaraðarinnar
Friends. Þá hefur hljómsveitin
Death Cab for Cutie heldur betur
vakið á sér athygli eftir að lög
hennar fóru að hljóma í ungl-
ingasápunni The O.C. - fgg
EMILIANA TORRINI Vildi ekki ræða
málið við Fréttablaðið en fjögur lög af
Fisherman‘s Women hafa hljómað í
Grey‘s Anatomy.
DÁLÆTI Á TORRINI Framleiðendur
sjónvarpsþáttarins Grey‘s Anatomy eru
augljóslega hrifnir af lögum Emilíönu.
Emilíana eykur dramatíkina í Grey‘s Anatomy
... fá Pálmi Sigurhjartarson og
félagar í Sniglabandinu fyrir
hið frábæra lag Kæri Jón, sem
samið var á hálftíma í
sjónvarpsþætti.
„Ég fékk hugmyndina eftir að
hafa lesið bókina The Man who
Mistook his Wife for a Hat eftir
Oliver Sacks fyrir fimm árum,“
segir Helena Stefánsdóttir, kvik-
myndagerðarkona og einn eig-
enda Kaffi Hljómalindar, en hún
stefnir á að frumsýna stuttmynd-
ina Anna í lok þessa mánaðar.
Myndin fjallar um samnefnda
konu sem glímir við Tourette-
heilkenni og hvernig það sem
hinum heilbrigðu reynist létt og
auðvelt verk er henni næstum
ofviða. „Bandaríska leikkonan
Katherine Baldwin leikur Önnu en
hún er loftfimleikakona og hefur
unnið töluvert á sviði í New York,“
segir Helena en að gefnu tilefni
skal tekið fram að Katherine er
ekkert skyld þeim Baldwin-bræðr-
um. Hilmir Snær fer síðan með
hlutverk Adams, nágranna Önnu,
sem er boðið í kaffi þennan venju-
lega morgun. „Það er ekkert tal í
myndinni heldur byggist hún að
mestu á ljóðrænum myndum,“
útskýrir leikstjórinn.
Helena hefur sagt skilið við
Önnu og vinnur nú hörðum hönd-
um að því að klára heimildarmynd
um virkjanir á Íslandi, málefni
sem brennur óneitanlega á þjóð-
inni. Helena fékk áhuga á raforku
og virkjunum eftir að hafa dvalist
heilt sumar á Kárahnjúkum og
hefur nú ferðast um landið allt til
að kynna sér þau svæði sem raf-
orkufyrirtæki hafa augastað á en
fólk í landinu hefur ekki haft tök á
að kynna sér. „Ég fékk rosalegt
áfall þegar ég kom fyrst á Kára-
hnjúka en naut þess síðan að vera
þarna uppfrá,“ útskýrir Helena.
„Mér leið síðan illa núna í sumar
og upplifði eiginlega allan tilfinn-
ingaskalann, sérstaklega þegar
lokað var fyrir og fyllt upp í Háls-
lón,“ bætir hún við.
Helena nýtur aðstoðar eigin-
manns síns, Arnars Steins Frið-
bjarnarsonar, auk þess sem tækni-
brellusérfræðingurinn Remo
Balcels og kona hans Petra koma
að gerð myndarinnar en Remo
fékk meðal annars Bafta-verð-
launin fyrir tæknibrellurnar í
heimsendamyndinni The Day
after Tomorrow. „Honum þykir
mjög vænt um landið og vill allt
fyrir það gera,“ segir Helena en
hún vonast til að frumsýna mynd-
ina sem fyrst þótt það yrði aldrei
fyrr en á næsta ári.
freyrgigja@frettabladid.is
HELENA STEFÁNSDÓTTIR: VINNUR AÐ TVEIMUR KVIKMYNDUM
Gerir virkjanamynd með
Bafta-verðlaunahafa
HELENA STEFÁNSDÓTTIR Frumsýnir í byrjun þessa mánaðar stuttmynd um konu
með Tourette-heilkenni þar sem Katherine Baldwin og Hilmir Snær Guðnason leika
aðalhlutverkin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bryndís Schram er nýr liðsmaður í
Íslandi í bítið á Stöð 2. Bryndís var
kynnt til leiks í þættinum
í gærmorgun og mun
birtast áhorfendum einu
sinni í viku. Hlutverk
hennar verður að svara
spurningum áhorfenda
sem þeir senda inn
til þáttarins. Óhætt
er að fullyrða
að Bryndís
muni setja
skemmtilegan
svip á þáttinn, eins
og henni er einni lagið.
Koma Mikhails Gorbatsjov,
fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna, til
Íslands hefur vakið mikla athygli.
Gorbatsjov kom til
landsins í gær og
heldur fyrirlestur
í Háskólabíói
í dag klukkan
17. Ferðamáti
Sovétleiðtogans
fyrrverandi hefur
sömuleiðis vakið
nokkra athygli því
Gorbatsjov flaug
hingað til lands
á einkaþotu
auðjöfursins
Björgólfs Thors
Björgólfssonar og
lenti á Reykjavíkurflugvelli. Skýring
þessa er sú að Landsbankinn er
einn af bakhjörlum
komu Gorbatsjov
ásamt Frétta-
blaðinu. Tengsl
Björgólfs Thors
við Rússland eru
reyndar vel kunn
og fór vel með
á honum og
Gorbatsjov á
Reykjavíkurflugvelli í gær.
Sagnfræðingurinn Guðmundur
Magnússon fer mikinn á
bloggsíðu sinni http://www.
gudmundurmagnusson.
blogspot.com þessa dagana
og fylgist ekki síst grannt með
gengi íslenskættaða fríblaðsins
Nyhedsavisen í Danmörku.
Guðmundur kallar blogg sitt
Skrafað við skýin en hann hefur
áður skrifað á netið undir þeim
gunnfána og var sérstaklega
afkastamikill fyrst eftir að hann
hætti störfum á Fréttablaðinu í
ársbyrjun. Hann hvarf skyndilega
af bloggvellinum, líklega þar sem
hann fór í rannsóknarleiðangur
til Kaupmannahafnar en hann
vinnur nú að bók um samskipti
Danakonunga við Íslendinga á
tímum sjálfstæðisbaráttunnar.
Það má því teljast eðlilegt að
Guðmundi sé Danmörk hugleikin
og þar liggur ef til vill
skýringin á tíðum
skýrslum hans
um Nyhedsavisen
nú þegar hann
er upprisinn í
netheimum.
- hdm/þþ
FRÉTTIR AF FÓLKI
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10