Fréttablaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 12.10.2006, Blaðsíða 74
 12. október 2006 FIMMTUDAGUR50 Söngkonan Madonna hefur fetað í fótspor Angelinu Jolie og Miu Farrow og ætt- leitt barn frá fátæku ríki. Faðir hins ársgamla Davids er ánægður með þróun mála og segir hann betur kominn í öðru landi. Söngkonan Madonna hefur ættleitt eins árs drenginn David frá Afríkuríkinu Malaví. Faðir hans, Yohane Banda, stað- festi þetta í samtali við AP-frétta- stofuna. „Ég veit að hann mun verða mjög hamingjusamur í Bandaríkjunum,“ sagði hann. „Ég er mjög ánægður með þessa þróun mála vegna þess að hérna er mikil fátækt og það verður mjög vel séð um hann í Bandaríkjunum,“ bætti hann við. Að sögn föðurins lést móðir drengsins aðeins mánuði eftir að hún eignaðist hann vegna erfiðleika við fæðinguna. Ekki er þó víst að faðirinn átti sig á því að Madonna hefur búið að mestu í Bretlandi undanfarin ár en það skiptir kannski ekki öllu máli. Ánægð amma Amma drengsins, Asinei Mwale, er einnig ánægð með ættleiðinguna. „Stjórnandi munaðarleysingjahæl- isins kom hingað í gær [fyrradag] og sagði okkur að David hefði verið ættleiddur af þekktum bandarísk- um söngvara,“ sagði hún. „Ég er mjög ánægð fyrir hans hönd, því ég veit af eigin raun hversu erfitt það getur verið að alast upp sem munaðarleysingi.“ Malaví er á meðal fátækustu ríkja í heiminum og ríkir þar mikil hungursneyð auk þess sem sjúk- dómar á borð við AIDS eru á hverju strái. Fjórtán prósent þeirra tólf milljóna sem þar búa eru smituð af HIV-veirunni og talið er að um ein milljón barna sé munaðarlaus. Orðrómur af stað Orðrómur fór af stað um að Mad- onna myndi ættleiða barn frá Mal- aví eftir að hún ákvað að fljúga þangað til að sinna mannúðarstörf- um. Vísuðu talsmenn hennar frétt- unum á bug en svo virðist sem þær hafi verið hverju orði sannari. Vilja talsmennirnir í það minnsta hvorki játa því né neita nú að Madonna hafi ættleitt drenginn. Madonna, sem er 48 ára, á tvö börn fyrir; annars vegar hinn fimm ára Rocco með leikstjóranum og eiginmanni sínum Guy Ritchie og hins vegar Lourdes sem er níu ára. Í fótspor Jolie Madonna fetar þar með í fótspor Angelinu Jolie, sem ættleiddi hinn fjögurra ára Maddox frá Kambódíu og hina sextán mánaða Zahöru frá Eþíópíu. Að auki eignaðist hún fyrr á árinu dótturina Shiloh Nouvel í Kambódíu með kærasta sínum Brad Pitt. Hyggur Jolie á ættleiðingu í það minnsta eins barns til viðbótar. Rétt eins og Madonna hefur Jolie starfað að mannúðarmálum í fátækum ríkjum og hefur m.a. verið góðgerðarsendiherra flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2001. Áður en Jolie fór að ættleiða börn frá fátækum ríkjum hafði fleira frægt fólk farið sömu leið. Mia Farrow ættleiddi til að mynda lítið barn frá Víetnam árið 1973 og á hún núna alls fjórtán börn, þar á meðal Soon-Yi Previn, sem er nú gift fyrrum fósturföður sínum Woody Allen. - fb Í fótspor Jolie og Farrow Í AFRÍKU Söngkonan Madonna spjallar við munaðarlaus börn í Afríkuríkinu Malaví. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Vefurinn Reykjavik.com hefur farið af stað með leik á vefsíðunni sinni þar sem hægt er að vinna hið eftirsótta armband á hátíðina. Leikurinn felur í sér að svara þarf spurningum um hljómsveitirnar sem spila á hátíðinni. Armbandið gefur greiðan aðgang að öllum tónleikum sem hátíðin hefur upp að bjóða og því til mikils að vinna. Armbandið kostar 6.900 krónur í almennri sölu. Eins og kunnugt er hefst hátíð- in 18. október næstkomandi og lýkur sunnudaginn 22. Helstu tón- listarmenn sem koma fram á hátíðinni eru meðal annars Data- rock, Kaiser Chiefs, Whomadewho og íslenskar hljómsveitir á borð við Dr. Mister & Mr. Handsome, Hairdoctor og Apparat Organ Quartet. Airwaves- leikur á Reykjavik.com VEISTU MIKIÐ UM AIRWAVES 2006? Ef svo er farðu þá inn á vefinn Reykjavik. com þar sem hægt er að vinna armband á hátíðina ef svarað er spurningum tengdum hljómsveitum sem troða upp. Nýjasta safnplata írsku hljóm- sveitarinnar U2 nefnist U218 Singles. Plötunni fylgir DVD- mynddiskur með tónleikaupptökum af tíu lögum sveitarinnar frá tón- leikum í Mílanó. Voru þeir hluti af Vertigo-tónleikaferðinni. Rick Rubin var upptökustjóri í tveimur lögum á plötunni. Annað þeirra er The Saints Are Coming eftir The Skids sem U2 vann með Green Day í Abbey Road-hljóð- verinu. Safnplatan kemur út 16. nóvember. Nafn komið á safnplötu U2 Hljómsveitin U2 gefur út nýja safn- plötu í næsta mánuði. Playboy-kóngurinn Hugh Hefner er eitthvað farinn að eldast ef marka má frétt The Sun, sem grein- ir frá því að glaumgosinn kjósi frekar að spila dómínó við ljóskurn- ar í villunni en að stunda með þeim hvers kyns ástarleiki. „Ég er orð- inn þreyttur á þessu stóðlífi,“ sagði Hefner við blaðið. „Ég hef ennþá getuna en þetta er eitthvað öðruvísi í dag,“ bætti Hefner við. „Mér finnst í raun skemmtilegast að spila dómínó við stelpurnar mínar,“ útskýrði hann. Hefner hefur ætíð verið mikill kvennabósi og átti um tíma sjö kær- ustur á sama tíma en varð að skera þann fjölda niður í þrjár árið 1997 vegna þess að þær urðu afbrýði- samar hver út í aðra að sögn Hughs. Nú deilir hann rúmi með hinni 26 ára gömlu Holly Madison, 32 ára gömlu Bridget Marquardt og 21 árs gömlu Kendru Wilkinson. „Að hafa þrjár ungar og fallegar konur sér við hlið heldur elli kerl- ingu í burtu,“ sagði klámkóngur- inn. Dómínó frekar en kynlíf HIN HAMINGJUSAMA HEFNER-FJÖLSKYLDA Hugh er hér með kærustunum sínum þremur, þeim Holly, Bridget og Kendru. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Skilnaður leikarahjón- anna fyrrverandi Kim Basinger og Alec Bald- win er farin að taka á sig ansi ljóta mynd. Eins og greint hefur verið frá stefndi Bald- win konunni sinni fyrrverandi fyrir að hafa brotið á umgengnisrétt sínum með dóttur þeirra Ireland auk þess að hafa ekki greint honum frá meiðslum sem hún varð fyrir. Dómstóll í Los Angel- es hefur nú úrskurðað að málið fari fyrir rétt eftir að Basinger lýsti sig saklausa af öllum ákærum en ef leikkon- an verður fundin sek getur hún átt von á sextíu daga fangelsi og tólf þúsund dollara sekt, sem sam- svarar níu hundruð þúsund íslenskum krónum. Málsmeðferðin hefst 15.janúar og er reiknað með því að Baldwin verði eitt þeirra vitna sem lögfræðingur hans, Vicki Greene, kalli til. Lögfræðingur Basinger, Neal R. Hersch, til- kynnti hins vegar að hún hygðist nýta sér þann rétt að vera víðs fjarri. Hjónaband Basinger og Bald- win var eitt af hinum traustustu í Hollywood og kom það mörgum í opna skjöldu þegar þau til- kynntu um skilnað sinn árið 2000 en þau sömdu um sameiginlegt forræði árið 2004, samkomulag sem Baldwin telur hafa brotið með fyrrgreindum afleiðingum. Réttað yfir Basinger BASINGER Réttað verður í máli hennar og fyrrum eiginmanns hennar, Alec Baldwin, í janúar á næsta ári. ALEC BALDWIN Ætlar ekki að gefa neitt eftir í forræðisdeilu við fyrrverandi eigin- konu sína, Kim Basinger. Mel Gibson segist ekki hafa snert áfengi í þá sextíu og fimm daga sem liðnir eru síðan hann var hand- tekinn fyrir ölvunarakstur. Eftir- mál þessa brots urðu þó mun verri því Gibson lét hafa eftir sér niðrandi ummæli um gyðinga við lögregluna og voru margir fjöl- miðlasérfræðingar þess fullvissir að ferill leikarans væri búinn. Gibson sagði í samtali við morgun- þáttinn Good Morning America að það síðasta sem hann vildi væri að vera „þetta drukkna skrímsli sem ég breyttist í þessa nótt,“ eins og hann orðaði það en nýjasta mynd hans, Apocalyptico, verður frum- sýnd í desember og þykir hafa mjög pólitíska undiröldu. Gibson upplýsti jafnframt að hann hefði byrjað að drekka tveim- ur mánuðum áður en hann var handtekinn. „Árin líða og manni finnst lífið yndislegt en svo, eins og hendi sé veifað, er allt komið í rugl,“ útskýrði Gibson auk þess sem hann lýsti yfir vilja sínum að gera kvikmyndir en sagðist jafn- framt gera sér grein fyrir að sumir í Hollywood vildu ekki vinna með honum vegna ummæla leikarans um gyðinga. „Það er ekkert sem ég get gert við því og mér líður illa vegna þess að ég særði einhverja sem áttu það ekki skilið.“ Gibson ennþá edrú MEL GIBSON Segist vera leiður yfir því að hafa sært þá sem áttu það síst skilið. Hann vilji fyrst og fremst gera kvikmynd- ir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES MEÐ MADD- OX Angelina Jolie með hinn fjögurra ára ættleidda son sinn, Maddox. ALLEN OG PREVIN Woody Allen kvæntist fósturdóttur sinni Soon-Yi Previn, sem eiginkona hans, Mia Farrow, hafði ættleitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTYIMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.