Fréttablaðið - 12.10.2006, Síða 19
FIMMTUDAGUR 12. október 2006 19
SÝRLAND, AP Risaúlfaldar sem voru
tvisvar sinnum stærri en úlfaldar
nútímans lifðu í eyðimörkinni í
Sýrlandi fyrir hundrað þúsund
árum síðan, að sögn fornleifafræð-
inga sem hafa dregið þessar álykt-
anir af steingerðum beinum sem
fundist hafa á svæðinu.
Svissneskir og sýrlenskir forn-
leifafræðingar standa saman að
uppgreftrinum, um 220 kílómetr-
um norðaustur af höfuðborginni
Damaskus.
„Þetta er í fyrsta sinn sem slík
bein finnast,“ sagði Heba al-Sakel,
sem fer fyrir sýrlenska hluta leið-
angursins.
Nú velta vísindamennirnir
fyrir sér hvaðan þessir úlfaldar
komu, hvort þeir hafi verið að
færa sig frá Asíu til Afríku, og
hvað olli útrýmingu þeirra.
Mannabein fundust nærri úlf-
aldanum og telja vísindamennirn-
ir víst að þar sé um veiðimann
dýrsins að ræða, en hjá beinunum
fundust einnig verkfæri úr steini.
„Hann hefur líklega elt bráðina að
vatnsbólinu,“ sagði Svisslending-
urinn Jean-Marie Le Tensorer.
Úlfaldar í dag eru um tveggja
metra háir, svo steingerði úlfald-
inn hefur verið allt að fjögurra
metra hár.
„Venjulegir úlfaldar birtust
fyrst í (Mið-Austurlöndum) fyrir
sex til sjö þúsund árum, og í fyrsta
sinn sjáum við nú villtan úlfalda
og afar, afar gamlan,“ sagði Le
Tensorer. - smk
Fornleifauppgröftur á hundrað þúsund ára gömlum menjum:
Fjögurra metra háir risaúlfaldar
RISAÚLFALDI Fremri úlfaldinn er jafn
stór nútíma úlföldum, en sá aftari sýnir
hversu stórir úlfaldar voru í sýrlensku
eyðimörkinni fyrir hundrað þúsund
árum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MENNTAMÁL Fræðslunefnd Ölfuss
hefur sótt um heimild til mennta-
málaráðuneytisins fyrir því að tveir
heimaskólar verði reknir áfram í
sveitarfélaginu næstu tvö árin.
Sigríður Lára Ásbergsdóttir,
formaður Fræðslunefndar, segir
að ýmislegt bendi til að heima-
skólar séu góður kostur en klár-
lega þurfi að hafa betra eftirlit og
aðhald með framkvæmdinni, eins
og fram komi í úttekt mennta-
málaráðuneytisins.
Í úttektinni kom fram að tveir
nemendur úr heimaskólunum
hefðu ekki tekið samræmd próf í
fjórða og sjöunda bekk. „Mér
skilst að þetta hafi farist fyrir og
það kemur ekki fyrir aftur. Það
geta allir gert mistök,“ segir Sig-
ríður Lára.
Í úttekt menntamálaráðuneyt-
isins kemur fram að önnur fjöl-
skyldan hafi ekki haldið dagbók
um kennsluna og eftirliti hafi verið
ábótavant. „Menn líta ýmsum
augum á það. Við vorum með þetta
eftirlit og það gekk mjög vel. Eftir-
litsmanninum fannst ekki skipta
öllu máli hvort hann læsi dagbók
eða ekki,“ segir Halldór Sigurðs-
son, skólastjóri í Ölfusi.
Hann segir að heimakennsla sé
hugsjónastarf. Heimakennslan
hafi verið endurskoðuð og menn
mæst á miðri leið. - ghs
ÚR SKÓLASTARFI Heimaskólar eru góður
kostur, að mati formanns Fræðslunefnd-
ar í Ölfusinu, og skólastjóri segir að
heimakennslan sé hugsjónastarf. Mynd-
in er úr safni og tengist efni fréttarinnar
ekki beint.
Fræðslunefndin í Ölfusi hefur sótt um heimild fyrir heimaskólum:
Heimakennslan er hugsjón
FÉLAGSMÁL Dagur hvíta stafsins,
alþjóðlegur baráttudagur blindra
og sjónskertra, verður haldinn
hátíðlegur næstkomandi sunnu-
dag. Af því tilefni ætlar Blindra-
félag Íslands að standa fyrir
kynningu í verslunarmiðstöðinni
Smáralind milli klukkan eitt og
þrjú og kynna málefni félagsins.
Meðal helstu málefna sem
verða til umræðu eru notkun
hvíta stafsins, sjónhjálpartæki
og hjálpartæki sem aðvelda
blindum og sjónskertum daglegt
líf. Þar á meðal eru til dæmis
„talandi“ klukkur, spil og
málbönd.
Blindraletursstöð býður
gestum svo einnig að fá nafn sitt
letrað með blindraletri og
félagsmenn og starfsmenn ætla
að gera sitt besta til að verða við
spurningum gesta. - kdk
Blindir og sjónskertir:
Kynna dag
hvíta stafsins
STJÓRNMÁL Thorbjørn Jagland,
forseti norska þingsins, kom til
landsins í gær. Hann og eiginkona
hans eru í opin-
berri heimsókn í
boði Sólveigar
Pétursdóttur,
forseta Alþingis,
fram á sunnudag. Á
meðan á heimsókn-
inni stendur ætlar
hann m.a. að eiga
fundi með
formönnum
þingflokkanna, formanni Samfylk-
ingarinnar, forseta Íslands,
utanríkisráðherra og umhverfis-
ráðherra. - kdk
Forseti norska þingsins:
Kannar íslensk
stjórnmál
THORBJØRN
JAGLAND
FÉLAGSMÁL Miðstöð fyrir fólk með
geðraskanir var opnuð í gær á
Húsavík. Þorgrímur Sigmunds-
son, starfsmaður við miðstöðina,
segir miklar væntingar bundnar
við verkefnið.
Um sé að ræða tilrauna- og
samstarfsverkefni Félags- og
skólaþjónustu Þingeyinga,
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga
og Húsavíkurdeildar Rauða kross
Íslands.
Hann segir staðinn hugsaðan
sem iðjustað og athvarf í senn
auk þess sem heilbrigðisþjónustu
á geðsviði verði sinnt á staðnum.
- kdk
Samstarfsverkefni á Húsavík:
Miðstöð fyrir
geðfatlaða