Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.10.2006, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 28.10.2006, Qupperneq 8
8 28. október 2006 LAUGARDAGUR VEISTU SVARIÐ? Dögg Pálsdóttir 4.í sætiðwww.dogg.is Látum verkin tala Styðjum Dögg í 4. sætið Kosningaskrifstofa Daggar er opin í allan dag. Heitt á könnunni og ljúfar veitingar. Kynntu þér áherslumál Daggar á www.dogg.is KOSNINGASKRIFSTOFA Laugavegi 170, 2. hæð sími 517-8388 LÍKNARMÁL Fl Group og Sinfóníu- hljómsveit Íslands munu á næstu fjórum árum styrkja Barna- og unglingageðdeild Landspítalans um 20 milljónir. Styrkurinn rennur til verkefnis á vegum BUGL sem kallast „Lífið kallar“ og miðar að því að styrkja börn og unglinga sem metin hafa verið í sjálfsvígs- hættu. Kristján Kristjánsson, forstöðu- maður upplýsingasviðs FL Group, segir stuðninginn felast í því að styrktaraðilar standi árlega fyrir einum styrktartónleikum og mun ágóðinn af þeim renna til verkefn- isins. „Ástæðan fyrir samningum er sú að okkur langaði til að gera eitthvað fyrir samfélagið og okkur kom saman um að styrkja þetta verkefni hjá BUGL. Þetta er hópur sem þarfnast mikillar þjónustu og þarf á fjárveitingu að halda.“ Stuðningsverkefnið „Lífið kall- ar“ er hugsað fyrir börn og ungl- inga á aldrinum tólf til átján ára sem koma á bráðamóttöku BUGL og þurfa á eftirmeðferð að halda að lokinni kreppumeðferð. Inntak verkefnisins er fjölskyldan, tengsl og lífsgleðin sem verndandi örygg- isnet. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- ráðherra var viðstödd undirritun- ina og lýsti yfir stuðningi við verk- efnið. - hs FL Group og Sinfóníuhljómsveit Íslands styrkja BUGL um 20 milljónir: Börn sem eru í sjálfsvígshættu styrkt UNDIRRITUN SAMNINGS Hrefna Ólafsdóttir, yfirfélagsráðgjafi BUGL, Hannes Smárason, forstjóri FL Group, Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra, Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og Guðrún B. Guðmundsdóttir, staðgengill yfirlæknis BUGL. HREINDÝR Nú undanfarið hefur um hundrað dýra hjörð haldið sig á Fagradal, á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar. Umferð um Fagradal er þó nokkur og eru vegfarendur beðnir að fara gætilega. Á hreindyr.is kemur einnig fram að heindýr sjáist oft við veginn í Lóni og Nesjum og enn fremur á Háreksstaðaleiðinni, á Jökuldal og í Heiðarendanum norðan við Egilsstaði. Erfitt getur reynst að reka hreindýr frá þeim stöðum sem þau ætla sér að vera á. - hs Hreindýr við þjóðvegi: 100 dýra hjörð á Fagradal HREINDÝR Erfitt getur reynst að koma hreindýrum af hættusvæðum við þjóðvegi. FJÖLMIÐLAR Lesendum þykir Nyhedsavisen, fríblaðið sem íslenska fjölmiðlafyrirtækið Dagsbrún Media gefur út í Danmörku, betra að gæðum en hin dönsku fríblöðin: Dato og 24timer. Þetta kemur fram í gæðakönnun sem markaðsstjór- inn Jesper Claus Larsen gerði meðal 133 lesenda fríblaðanna í síðustu viku. Sagt var frá þessum niðurstöðum í danska blaðinu Børsen á fimmtudaginn. „Lesendurnir telja að innihald Nyhedsavisen sé betra, að gæði þess séu meiri og að fréttir blaðsins séu betri en hinna fríblaðanna. Á heildina litið taka 41 prósent lesenda Nyhedsavisen fram yfir Dato og 24timer,“ sagði Jesper um heildarniður- stöður könnunarinnar. „Þessar niðurstöður sýna að blaðið sem við erum að framleiða er gott, en könnunin var gerð tveimur vikum eftir að Nyhedsavisen kom út í fyrsta sinn þann 6. október,“ segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrún Media. Gunnar er sannfærður um að viðhorf til gæða fríblaðanna muni aukast í framtíðinni: „Nyhedsavisen er allt annars konar blað en hin fríblöð- in. Við miðum okkur við seldu áskriftarblöðin, Berlingske Tidende, Politiken og JP og við ætlum að ná auglýsingatekjum af þeim í framtíðinni. Það er svo sem ekki sigur fyrir okkur að tekjast betri en hin fríblöðin.“ - ifv Íslenska fríblaðinu Nyhedsavisen vel tekið í Danmörku: Efst í gæðakönnun GUNNAR SMÁRI EGILSSON 1. Hvaða Norðurlandaþjóð ætlar að banna háð og hótanir í garð samkynhneigðra? 2. Hversu mikið lækka styrkir Reykjavíkurborgar til Alþjóða- húss milli ára? 3. Hver ætlar að skrásetja þriggja binda ævisögu Hannes- ar Hólmsteins Gissurarsonar? SVÖRIN ERU Á BLS. 62 DÓMSMÁL Íslenska ríkið var sýkn- að af kröfu Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna meintra vanefnda þess á samkomulagi stjórnvalda og ÖBÍ frá árinu 2003. Samkomulagið snérist um að tvöfalda átti lífeyri þeirra sem metnir voru 75 prósent öryrkjar eða meira. Ríkið taldi sig hins vegar einungis hafa skuldbundið sig til að veita einum milljarði króna til verkefnisins en útreikn- ingar sýndu að full framkvæmd samkomulagsins hefði kostað 500 milljónum króna meira. Í dómsúrskurði segir að ÖBÍ hefði átt að vera það ljóst að yfir- lýsingar ráðherra gætu ekki skuldbundið ríkissjóð til greiðslu nema um væri að ræða ráðstöfun sem ráðherrann hefði vald til þess að framkvæma. Svo hafi ekki verið í þessu tilfelli. Þá segir að aldrei áður hafi reynt á það hvort fyrirheit um til- teknar lagabreytingar séu í raun skuldbindandi. Því hafi útgáfa fréttatilkynningar um gerð samkomulagsins ekki verið stjórnvaldsákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga og réttur ekki stofnast til lífeyrisgreiðslna umfram það sem í lögum segir. Garðar Sverrisson, sem var formaður ÖBÍ á þeim tíma sem samkomulagið var gert, segir það skýrt að um samkomulag hafi verið að ræða sem ráðherra hafi gert fyrir hönd ríkisstjórnarinn- ar líkt og fram hafi komið í frétta- tilkynningunni en ekki einhvers konar viljayfirlýsing ráðherra. „Við verðum að hafa það í huga að á Íslandi er löng og sterk hefð fyrir því að forystumenn fram- kvæmdavaldsins eru jafnframt forystumenn þingmeirihlutans. Þessir menn létu ekki aðeins hjá líða að veita sér nægar fjárheim- ildir til að efna samkomulagið heldur beinlínis felldu tillögur þar að lútandi.“ Garðar segir að ríkisstjórnin í heild beri óskoraða ábyrgð á þessu samkomulagi. „Komist þeir upp með svona gróf svik er vandséð hvernig heiðarlegt fólk á að geta umgengist þá og hvað þá að gera við þá samkomulag. Þetta er allt miklu líkara sam- skiptum manna í undirheimun- um.“ Sigríður Rut Júlíusdóttir, lög- maður ÖBÍ, segir að farið verði yfir málið í næstu viku með stjórn bandalagsins og athugað hvort ástæða sé til þess að áfrýja dómnum. Henni fannst þó líklegt að svo yrði. thordur@frettabladid.is Ríkið sýknað af kröfum ÖBÍ Samkomulagið er ekki talið bindandi. Miklu líkara samskiptum manna í undirheimunum, segir fyrr- um formaður ÖBÍ. Lögmaður bandalagsins segir að dómnum verði líklega áfrýjað. GARÐAR SVERRISSON Segir ríkisstjórnina hafa svikið samkomulag við Öryrkja- bandalagið. SIGRÍÐUR RUT JÚLÍUSDÓTTIR Fer yfir niður- stöðu málsins með fulltrú- um Öryrkja- bandalagsins í næstu viku. Helgi Hjörvar: Skylda að efna samkomulagið Helgi Hjörvar alþingismaður segir dóminn ekki breyta þeim kjarna málsins að Jón Kristjáns- son hafi gert samkomulag með samþykki ríkisstjórnar rétt fyrir kosningar sem varði kjör þúsunda manna sem ekki hafi verkfallsrétt. „Eftir sem áður er það pólitískt skylda ríkisstjórn- arinnar að uppfylla þetta sam- komulag. Ég trúi ekki öðru en að Geir Haarde og Jón Sigurðsson sem tekið hafa við í forystu stjórnar- flokkanna síðan þá muni ganga í það að leggja til þær liðlega 500 milljónir sem vantar upp á að samkomulagið sé efnt.“ - þsj HELGI HJÖRVAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.