Fréttablaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 86
LAUGARDAGUR 28. október 2006
„Ég er ekki skráð þessu nafni í Þjóð-
skrá. Þar heiti ég Ólöf Hildur,“ segir
Lóa Aldísardóttir um nafn sitt. Hún
hefur þó alla tíð gengið undir nafninu
Lóa og gegnir Ólafarnafninu ekki.
„Já, ég hef verið kölluð Lóa frá
fæðingu. Sem er í höfuðið á lang-
ömmu minni. Ég átti upphaflega að
heita Ólöf Dómhildur.“
Býsna langur vegur frá Lóu-nafn-
inu. Ólöf Dómhildur hefði verið í höf-
uðið á ömmu Lóu. En móður hennar
þótti það heldur óþjált og stórt nafn
fyrir litla dóttur sína þá þegar hún lét
skíra hana.
„Svo hef ég gegnt ýmsum eftir- og
föðurnöfnum í gegnum tíðina. Ég ólst
upp hjá stjúpföður og kenndi mig
stundum við hann. Og stundum
kenndi ég mig við blóðföður minn en
tók svo af skarið um tvítugt og ákvað
að kenna mig við móður mína.“
„Svo fyrir nokkrum árum var ég
fullorðin konan ættleidd. Og þá ákvað
ég, ásamt systkinum mínum, að taka
líka upp ættarnafn. Sem Pind. Þannig
að ég heiti Lóa Pind Aldísardóttir.“
Samkvæmt þjóðskrá eru 85 sem
bera nafnið Lóa sem 1. eiginnafn og
168 sem bera nafnið sem 2. eiginnafn.
Lóu-nafnið er því ekki sjaldgæft og
Lóa okkar veit af ýmsum nöfnum
sínum.
Lóa man ekki til þess að sér hafi
verið strítt í æsku vegna nafns síns.
Né heldur að hún hafi lent í einhverj-
um sérstökum atburðum sem tengj-
ast nafninu beinum hætti. Hún segist
þó vissulega hafa heyrt oftar en góðu
hófi gegnir vitnað í „Lóa-Lóa-Lóa mig
langar til að byggja til þín brú,“ sem
Megas söng og var þá óbeint að vitna
í Lóu litlu á Brú Hauks Morthens.
Menn tengja sjálfsmynd sína að
einhverju leyti nafninu sem þeir
bera. Í mismiklum mæli þó. Lóa,
sem er ánægð með nafn sitt, telur
það vera. „Þetta er stutt og
snaggaralegt nafn. Sem ég hef
borið alla ævi. Að ég sé þá stutt
og snaggaraleg? Já, ég hugsa
það bara.“
NAFNIÐ MITT LÓA ALDÍSARDÓTTIR UM NAFNIÐ SITT
Ólöf Dómhildur fullstórt nafn fyrir litla stelpu
LÓA ALDÍSARDÓTTIR Hefur heyrt oftar
en góðu hófi gegnir vitnað í Megas:
„Lóa-Lóa-Lóa mig langar...“
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
Gunnar Magnússon
Katrín Pétursdóttir Young
Óðinn Bolli
Tinna Gunnarsdóttir
Þórdís Zoega
Atli Hilmarsson
Ámundi
Gunnar Karlsson
Siggi Eggertsson
Sól Hrafnsdóttir
Stefán Kjartansson
Aftur
Bergþóra Guðnadóttir
ELM
Sigrún Baldursdóttir
Steinunn Sigurðardóttir
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir
Arkibúllan
Einrúm
Guðmundur Jónsson
Hjördís og Dennis
Teiknistofan Tröð
Yrki
Vöruhönnuðir kl. 14:00
Grafískir hönnuðir kl. 1�: 00
� atahönnuðir kl. 1� :00
Arkitektar kl. 1�: 00
RJÓMI
24 HÖNNUÐIR 240 MÍNÚTUR
RJÓMI íslenskrar hönnunar verður dreginn fram í dagsljósið þegar
tuttugu og fjórir af áhugaverðustu hönnuðum Íslands kynna verk sín í
tíu mínútur hver í hönnunarmaraþoni ásamt því sem nemendur LHÍ og
HR kynna fimm vikna rannsóknarvinnu í formi viðskiptahugmynda sem
lýsa spennandi tækifærum þar sem sérkenni íslenskrar hönnunar eru
dregin fram:
Klambur Íslensk alþýðuhönnun
Gallerik Umboðsskrifstofa fyrir grafíska hönnuði
Black box Bolaframleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í framsækinni
grafískri hönnun í geometrískum stíl
IPUC Vináttusamband pólsku og íslensku þjóðarinnar
Ekta Hönnun og þjóðarréttir Íslendinga
Spott Færir þér íslenska hönnun heim í stofu
USSS... Húsgagnahetjur
Show Off Stuðningsnet fyrir íslenska fatahönnuði
Kví Kví Tískulína sem byggir starfsemi sína á vistvænum og
lífrænum efnum
Ark Reykjavik Þrívítt borðspil með áherslu á byggingarlist í Reykjavík
Erahotels Hótelkeðja sem færir þig aftur í fortíðina
ARCARDOUR Umboðsskrifstofa fyrir íslenska arkitekta
Viðburðurinn verður haldinn í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, milli
klukkan 13:00 og 18:00 laugardaginn 28. október 2006.
Þann 29. október mun sýningin færast yfir til höfuðstöðva Marels og
vera opin til 11. nóvember 2006.
Sýningin er opin öllum og aðgangur er ókeypis / www.rjomi.is
�����
���������������
��������������
�������� �� � �
��������
�������
�� �����
��� ������ �����
������� ���
�����
������
��
��������������
����������������
���������������������������
����������������������������������
����������������������
��� �����
��� ������ �� ������������� �� � � �������� ������
� ������������� �� � ���� ��� ������ ������������
� ��������� �������� ������� � �
���
���� ���
�
�������