Fréttablaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 28. október 2006
hefur verið, Chicago,
Vín, Metrópólitan... þá hafi
hann haldið svokallaðan „master
class“ eða námskeið. „Þegar maður
er ráðinn við viðkomandi hús er
þess farið á leit að maður segi til í
óperustúdíói. Ég hef haft gaman af
þessu. En, nota bene, ef ég fæ að
velja sjálfur hverjum ég kenni.
Þetta eru mikil forréttindi. Ég man
að í gamla daga, fyrir þrjátíu
árum, var meistari minn Poggi,
yfirmaður óperudeildarinnar. Þar
tók ég mitt diplóma, mína söng-
gráðu, og hann var í þeirri stöðu að
geta bara valið þá bestu. Og var
alsæll til dauðadags.“
Og Kristján segir þetta eðlilegt
framhald. Hann sé nú fimmtíu
plús að aldri og ekki eins aktívur
og þegar hann var þrjátíu ára.
Dásemdardagar við Gardavatn
Tíminn flýgur. Kristján hefur nú
dvalið á Ítalíu, við störf og leik í
um þrjátíu ár. Á nú afmæli sem
Íslendingur á Ítalíu. Fyrir nokkr-
um árum var útvarpsviðtal við
Kristján á Rás 2 þar sem hann lýsti
dásemdum villu sinnar við Garda-
vatn. Sagði hann hús sitt svo
nálægt vatninu að hann gæti geng-
ið út að glugga og pissað út í vatn-
ið. Þegar þetta er borið undir ten-
órinn skellihlær Kristján.
„Þetta var náttúrulega lygi. Og
kannski til komin af því að mér
hefur alltaf fundist hann svo stór á
mér,“ segir Kristján og hlær enn
meira. Ekkert vantar upp á að
Kristján kunni að slá á létta strengi
þegar svo ber undir.
Í vikunni, þegar viðtalið var
tekið, ríkti frost á Fróni. En við
Gardavatn kvað við annan
tón. 24 stiga hiti og dásamleg-
ur dagur.
„Þetta er fínt haust hér á Ítalíu.
Ég asnaðist til að taka bátinn upp
um daginn. Var fullfljótur á mér.
Já, ég á fínan átta metra bát. Þetta
er skemmtibátur sem við fjöl-
skyldan förum á út, fáum okkur í
gogginn og tökum sundsprett.
Þetta er spíttari. 340 hestöfl. Já, ég
hef alltaf verið fyrir almennilegar
græjur. Ég átti trillu á Akureyri.
En þetta er öðruvísi. Maður setur
ekki nýslægðan þorsk í þennan bát
eða skotinn sjófugl.“
Geðillur blaðamaður
Víst er að margir vilja fara að sjá
Kristján Jóhannsson á ættjörð
sinni og helst þá til að taka lagið.
Hefja upp stórbrotna raust sína.
Kristján segir að það gæti orðið
„sörpræs“ fljótlega. Sjálfur hefur
hann ekkert heyrt frá opinberum
aðilum um það að krafta hans sé
óskað. Kristján segir ekkert nýtt í
því en ýmsir einkaaðilar leggi á
ráðin.
„Nei, ég hef ekkert heyrt nýlega
frá þessum opinberu menningar-
vitum eins og sagt er. En prívatað-
ilar eru í gangi með eitt og annað.
Og ég sjálfur. Þegar upp er staðið
þá hefur helmingur þess sem ég
hef gert á Íslandi verið undirbúið
af mér sjálfum með aðstoð dyggra
vina.“
Og Kristján bendir á að ekki
hafi verið mjög langt síðan hann
var á Fróni.
„Skandalaárið mikla! Já. Þetta
var eitthvað klúður. Í mér sjálfum
ekki síst. Og svo var líka einhver
geðillur blaðamaður sem virtist
hafa allt og mig á hornum sér. Ætl-
aði að jarða mig alveg sama hvað
tautaði og raulaði. Alveg sama
hvað ég hefði sagt. Ég hefði samt
verið jarðaður. Ég hafði áður neit-
að honum um viðtal. Held honum
hafi sárnað það. Og sagði þá eitt-
hvað á þá leið: Ok, þá bara jarða ég
þig. Þá geri ég þetta bara eftir
mínu höfði.“
Kristján er þarna að vísa til
blaðaumfjöllunar sem Reynir
Traustason, þá á DV, hóf þar sem
sagði á haustmánuðum árið 2004
að Kristján tæki rífleg laun fyrir
að koma fram á tónleikum til
styrktar krabbameinsveikum
börnum. Tónleikar sem Ólafur M.
Magnússon skipulagði og stóð að.
Alltaf sami Íslendingurinn
2004. Þetta er árið sem Kristján
kallar Skandalaárið. Og víst er að
uppi varð fótur og fit í þjóðfélag-
inu. Kristján sagðist einungis
hafa þegið fé tónleikahaldara til
að mæta kostnaði við komu sína
hingað til lands. En allt kom fyrir
ekki. Hvar sem Kristján kom í
fjölmiðla til að kynna tónleikana
og nýjan disk sinn var hann
spurður út í þetta atriði. Eins og
við má búast fór það í taugarnar
á listamanninum Kristjáni sem
tók þessum spurningum misvel.
Og til þess vísar Kristján þegar
hann talar um klúður af sinni
hálfu.
En allt þetta er nú að baki.
Kristján hefur stórt hjarta og
honum dettur ekki í hug að erfa
eitt eða neitt við nokkurn mann.
Og hann tekur þessu eins og hverju
öðru hundsbiti. Eða öllu heldur:
Eins og bitlaust glefs talentlausra
öfundarmanna í gagnrýnendastétt.
Nokkuð sem stórir listamenn
þurfa að búa við.
„Elsku karlinn! Lengi má mata
fólk á vitleysunni. En það hefur
ekkert breyst við þennan darrað-
ardans. Ég hef í hjartanu ekkert
breyst – er enn sami Íslendingur-
inn og ég hef alltaf verið. Er
eflaust meiri Íslendingur í mér
en margir þeir sem tala illa um
mig. Ég bind við það vonir og trúi
því að ég eigi enn stóran og sterk-
an aðdáendahóp á Íslandi. Ég lofa
því að þess verður ekki langt að
bíða að ég láti sjá mig á Íslandi.“
Kristján syngur fyrir einn sjötta mannkyns um jólin
Laugardalshöllin tekin með
trompi Í febrúar árið 2000 var Aida
frumsýnd í Laugardalshöll og en fjöldi
manna kom til að sjá Kristján fara á
kostum í hlutverki sínu þar.
Othello
Kristján hefur tekist á hendur
nokkur erfiðustu hlutverk óperubók-
menntanna. Árið er 1996 í apríl og
Kristján lýkur söng í Othello.
Tilkomumikill
Þegar Kristján syngur þá bókstaflega
á hann sviðið og salinn. Hér er árið
1994 og Kristján í Vald örlaganna.
Heimurinn undir Fáir ef nokkrir
Íslendingar hafa náð eins miklum
frama innan óperuheimsins og Kristj-
án. Hér er hann í búningsherberginu
eftir fyrstu sýningu sína á Metropolit-
an í júní árið 1993.
Kristján og Fanfani
Óperusöngvarinn Kristján baksviðs
árið 1983 eftir að hafa sungið í
óperunni Madame Butterfly en þá
kom og heilsaði upp á hann Fanfani,
forsætisráðherra Ítalíu.
Kristján og Kavanna
Þessi skemmtilega mynd er frá í sept-
ember 1982. Kristján og söngkonan
Dorriet Kavanna í lok söngskemmt-
unnar. Sinfóníuhljómsveit Íslands í
baksýn og stjórnandi sveitarinnar, Páll
Pampichler til vinstri.
Svipmyndir frá fræknum ferli Kristjáns
Ítalskir hornsófar og sófasett
á verulega góðum verðum
í takmarkaðan tíma
Nautsleður í hæsta gæðaflokki.
Fáanlegt í antíkbrúnu & ljósu.
3+1+1 verð 249.000,-
TILBOÐ 189.000,- stgr
3+2+1 verð 269.000,-
TILBOÐ 198.000,- stgr
Horn 2+H+2 verð 229.000,-
TILBOÐ 169.000,- stgr
(auka sæti 29.000,-)
Bæjarhrauni 12 Hafnarfirði
Opið mán-fös 10-18 og lau 11-16 s: 565 1234