Fréttablaðið - 28.10.2006, Page 93

Fréttablaðið - 28.10.2006, Page 93
 28. október 2006 LAUGARDAGUR52 utlit@frettabladid.is MÓÐUR VIKUNNAR Álfrún fer yfir málin Spáir þú mikið í tískuna? Já ég mundi segja það, mér finnst voða gaman að fallegum hlutum. Svo sem fötum, fylgihlutum og húsgögnum. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Það breytist dag frá degi, en sitt lítið af hverju. Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki? Alexander McQueen, Stella McCartn- ey, Prada og Lanvin svo eitthvað sé nefnt. Flottustu litirnir? Enginn uppáhalds- litur þannig. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Mér finnst flottast þegar fólk blandar klæðnaði sínum saman eftir eigin höfði, óháð tískubólum. Hverju ertu veikust fyrir? Höttum, yfirhöfnum og skóm. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Hatt frá Hattabúðinni. Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir veturinn? Ég ætla að kaupa mér skó og jakka og sennilega bætist eitthvað meira við. Uppáhaldsverslun? Trilogia, Kron- kron og Designtorget sem því miður er ekki komin hingað. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Ansi miklu, kýs að vita þá tölu ekki sjálf. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Sólgleraugna og skónna minna. Uppáhaldsflík? Kjólarnir mínir. Hvert myndir þú fara í verslunar- ferð? Langar að fara til New York og svo er æði að versla í Barcelona. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Það mun vera karríguli ógeð- iskjóllinn sem ég keypti í H&M á mínum sokkabandsárum. Annars forðast ég að kaupa ljót föt. SMEKKURINN ÞÓRHILDUR „TÓTA“ JÓHANNESDÓTTIR HÁRGREIÐSLUKONA McQueen og McCartney í miklu uppáhaldi > Mælum með ... buxum frá hönnuðin- um Jeremy Scott sem á er stimplað munstur með frönskum kartöflum. Þær fást í Liborius. Kartöflu- flíkin bæði léttir lund og heldur á köldum leggjum hita. Hver veit nema þær hún sé kannski æt líka? Það eru alltaf ákveðin ný æði eða tískubólur sem koma inn þegar árstíðaskipti eiga sér stað. Þessa stundina eru ökklastíg- vélin að tröllríða markaðnum og að venju er maður ekki maður með mönnum nema festa kaup á einum slíkum. Fyrir nokkrum mánuðum síðan höfðum við kallað þessa týpu af stígvélum ekkert annað en „stutt stígvél“ því já það er það sem þetta er, stígvél skorin við ökkla. Kosturinn við þessa týpu af skóm er að þau ganga við allt. Það er mjög kvenlegt að klæðast kjól, sokkabuxum og ökklastígvélun- um. Stígvélin eru nefninlega örlít- ið hverdagslegri en há hælaðir skór en þjóna samt sem áður sama tilgangi. Einnig eru þessi nýjasta viðbót- in í skóflóru landsins mjög hent- ugur við niðurmjóar gallabuxur þar sem venjuleg stígvél komast oftast ekki undir buxur með of þröngum skálmum. Ef litið er inn í skóverslanir er mikið úrval til af ökklastígvélum og því ekki erfitt fyrir hvern og einn að finna eitthvað við sitt hæfi. alfrun@frettabladid.is Nýjasta tískubólan HVERSDAGS Rennd ökklastígvél með loðkanti frá Spúttnikk. ANN DEMEULEMEESTER Svartir og támjóir voru málið í þessari sýningu fyrir veturinn 2006/7. CHLOE Brún ökklastígvél við svartan og hvítan fatnað setur sinn svip. Flottir skór með háum hæl og mörgum spennum. DÚSKAR Rúskinnsstígvél með loðkanti og dúskum frá Diane Von Furstenberg. MARY POPP- INS Þessir ökklaskór eru reimaðir að framan en þó með rennilás á hlið til að auðvelda hlutina. Frá Steinari Waage. GLANS- ANDI Ökkastígvél með háum hæl frá Bossanova. VÍNRAUÐIR Jólaskórnir í ár. Reimd ökklastígvél með vínrauðu flaueli frá Bianco. DANS Rúskinnsstígvél frá Shoe Studio. KLAUF Fín ökklastígvél með hæl og klauf að framan frá Kaupfélaginu. GRÁ Grá leður- stígvél frá Steinari Waage. Það koma alltaf tímabil í lífi konu þar sem henni finnst hún ekki eiga nein föt. Þetta kemur fyrir á bestu bæjum og það skiptir engu máli hversu stór fataskápurinn er. Þessi skelfilegu tímabil gera engin boð á undan sér heldur skella miskunnarlaust á. Þau koma alltaf með ákveðnu millibili, að minnsta kosti þrisvar á ári. Einn af fylgifiskum þessa tímabils er setningin: „Ég á engin föt,“ sögð í svona nettum vælutón. Það ættu flestar konur að kannast við þetta vandamál sem virðist líka alltaf koma upp á hinum óheppileg- ustu tímum. Eins og til dæmis þegar maður er að fara út að borða eða í eitthvert fínt samkvæmi þar sem maður gjörsamlega verður að koma vel fyrir. Það sem kemur upp á svona tímabilum er einnig áráttan í ný föt og allt þetta gamla dót stenst ekki samanburðinn við allar nýjustu tískubólurnar. Núna eru tískuvöruverslanir að fyllast af nýjum og girnilegum vörum og vonlítið að reyna að standast þær freistingar. En auðvitað er ekki hægt að kaupa sér allt í heiminum. Þess í stað er hægt að fjárfesta í ákveðnum lykilhlutum sem þjóna þeim tilgangi að flikka upp á fataskápinn og gera gömlu fötin falleg. Það er skrítið hvað við konur erum miklu sólgnari í tísku en karlmenn. Ég man þegar ég var í menntaskóla og það voru böll einu sinni til tvisvar í mánuði. Það var sko algjört tabú fyrir allar stelpur að fara í einhverju gömlu á ballið. Annaðhvort urðum við að fá eitthvað lánað hjá vinkonu eða kaupa okkur eitthvað. Strákunum var alveg sama, þeir bara tóku fram sömu jakkafötin og venjulega, punktur og basta. Þetta var skemmtilegt tímabil og mikil handagang- ur í öskjunni fyrir hvert einasta ball hjá öllum stelpum í bekknum á meðan strákarnir umbáru þessar fataumræður. Já, það er skrítið að Mars og Venus skuli yfirhöfuð eiga samleið í þessu lífi. Kærastinn minn lætur sér fátt um finnast í hvert skipti sem ég segi ofangreinda setningu í vælutóni og horfir á mig eins og ég sé nýkomin frá tunglinu. Grátbrosleg tímabil V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d. K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið . FRÁ FRAMLEIÐENDUM CROUCHING TIGER, HIDDEN DRAGON FRUMSÝND 27. OKTÓBER SENDU SMS JA JLV Á 19 00 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ B ÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMI ÐAR, DVD MYNDIR OG MARG T FLEIRA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.