Fréttablaðið - 28.10.2006, Síða 24
28. október 2006 LAUGARDAGUR24
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
Er hljóðið í landsmönnum
gott eða þungt? Þingmenn
hafa verið meðal kjósenda
í vikunni og tekið púlsinn á
þjóðinni. Sigurjón Þórðar-
son og Sæunn Stefánsdóttir
heyrðu ekki það sama.
Kjördæmavika þingsins er á enda.
Þingmenn stóru landsbyggðar-
kjördæmanna þriggja ferðuðust
flestir um héruð og funduðu með
heimafólki en þingmenn Reykja-
víkur þurftu ekki í langferðir til
að hitta sitt fólk. Í höfuðborginni
tíðkast raunar ekki að þingmenn
hitti borgarstjórn í kjördæma-
viku.
Sigurjón Þórðarson, Frjáls-
lynda flokknum, hefur farið um
gjörvallt Norðvesturkjördæmi
síðustu daga og fundað með sveit-
arstjórnarmönnum, atvinnurek-
endum og kjósendum á Akranesi,
Ísafirði, Skagastönd og í Skaga-
firði, auk þess að fara til Húsavíkur
sem tilheyrir öðru kjördæmi.
Spurður um hljóðið í fólki svarar
hann: „Það er frekar þungt.“
Sæunn Stefánsdóttir, Fram-
sóknarflokki, hefur heimsótt fyr-
irtæki og stofnanir í Reykjavík og
sinnt öðrum verkefnum á borð við
fundasetu í innflytjendaráði og
hverfisráði Vesturbæjar og setið
ráðstefnur. Þá hefur hún hitt
flokkssystkyni sín að máli. Spurð
um hljóðið í fólki svarar hún: „Mér
finnst hljóðið gott.“
Ekki er gott að álykta út frá
svörum Sigurjóns og Sæunnar.
Hann heyrir í landsbyggðarfólki
en hún fyrst og fremst í Reykvík-
ingum. Hann er í stjórnarandstöðu
en hún í stjórnarliðinu.
Sömuleiðis er ómögulegt að
geta sér til um hvers vegna þau
hafa mismunandi skoðun á ágæti
kjördæmaskipanarinnar sem
kosið var eftir í fyrsta sinn í síð-
ustu kosningum. Sigurjón segist
sannfærast betur og betur um að
Ísland eigi að vera eitt kjördæmi.
„Alvarleg staða eins og á Strönd-
um eða í Grímsey og Bakkafirði á
ekki bara að vera mál þingmanna
viðkomandi kjördæma. Þetta er
þjóðarmein og mál allra þing-
manna,“ segir hann.
Sæunn segir rétt að hafa kjör-
dæmaskipanina í sífelldri endur-
skoðun en er ekki sammála Sigur-
jóni um að þingmenn láti sig
aðeins málefni eigin kjördæma
varða. „Við erum kosin á þing sem
fulltrúar allrar þjóðarinnar,“ segir
hún.
Gjá skilur hljóð í þjóð
Í ÞUNGUM ÞÖNKUM Þingmenn hafa haldið sig í kjördæmunum þessa vikuna og því ekki setið undir ræðum hver annars eða
blaðað í þingskjölum.
Það fór þá aldrei svo að Halldór Ásgrímsson ætl-
aði að sitja aðgerðarlaus eftir að stjórnmálaferl-
inum lauk. Ríkisstjórnin vinnur nú að því að fá
hann samþykktan í starf framkvæmda-
stjóra Norrænu ráðherranefndar-
innar sem er samstarfsvettvangur
ríkisstjórna Norðurlandanna.
Ráðherranefndin hefur höfuð-
stöðvar í Kaupmannahöfn en þar
var Halldór einmitt í námi
uppúr 1970.
Á löngum stjórn-
málaferli sinnti
Halldór norrænu
samstarfi með
margvíslegum
hætti; hann sat
í Íslandsdeild
Norðurlanda-
ráðs í átta ár og
var samstarfsráðherra Norðurlandanna í sex ár
auk þess að fara fyrir samtökum miðjuflokka í
Norðurlandaráði í tvö ár. Í utanríkisráðherratíð
sinni átti Halldór svo náið samstarf við norræna
starfsbræður sína, jafnt um mál-
efni Norðurlandanna sem önnur
alþjóðamál.
Það er algengt að fyrrver-
andi ráðherrar hljóti embætti
á vegum hins opinbera eftir að
stjórnmálaferlinum lýkur. Því er
ekki að heilsa í tilviki Halldórs
því þó hann sé boðinn
fram til starfans af hálfu
íslenskra stjórnvalda
ráða þau ekki lyktum
málsins. Og starfið
er ekki hjá íslenska
ríkinu – nema þá að
einum fimmta.
Réttur maður á réttum stað
Enn og aftur hefur Guðmundur
Hallvarðsson lagt fram þings-
ályktunartillögu um að þjóðfáninn
skuli vera í þingsal Alþingis. Guð-
mundur hefur lagt málið fyrir
mörg síðustu þing en það hefur
jafnan sofnað eins og sagt er um
mál sem ekki fá framgang. Í fyrstu
voru meðflutningsmenn tillögunn-
ar fjórir eða fimm en nú ber svo
við að þeir eru 30.
„Þarna eru hvorki ráðherrar né
nefndarmenn í forsætisnefnd
þannig að það er meirihluti fyrir
þessu,“ segir Guðmundur sem á
sér þá heitu ósk að málið verði
samþykkt í þinginu í vetur. Verði
það gert og fánanum komið fyrir í
þingsalnum yrði það nokkurs
konar minnisvarði um Guðmund
sem lætur af þingmennsku í vor.
Guðmundur er samt alls ekki
að hugsa um sjálfan sig þegar
hann berst fyrir þjóðfánanum.
Hann hugsar um Jón forseta. „Jón
Sigurðsson barðist fyrir að við
hefðum ákvörðunarvald um okkar
hagsmunamál. Um leið var hann
tákn og merki okkar Íslendinga,
tákn þess sem hrærði hugi og
hjörtu og þjappaði okkur saman.“
Guðmundur segist bera mikla
virðingu fyrir fánanum og rekur
það til þeirra tíma er hann var
drengur í sumarbúðum í Vatna-
skógi þar sem fánahylling var á
hverjum morgni. Og honum þykir
íslenski fáninn fallegur. Spurður
hvort hann sé fallegasti þjóðfáni í
heimi, hugsar hann sig um, tekur
fram að vissulega sé hann ekki
hlutlaus og svarar svo: „Jújú, ég
get alveg sagt það.“ Og þannig er
fyrirsögnin fengin.
Fallegasti þjóðfáni í heimi
Dagurinn byrjaði í
Laugum. Taldi skynsam-
legra að púla í hálftíma
en að láta það eftir mér
að lúra aðeins lengur.
Dögg Pálsdóttir
frambjóðandi.
Helsta áhugamál mitt
undanfarin 3 ár er
Karate. Í þeirri íþrótt er
ég nú með 3 KYU sem er
fyrsta brúna beltið af
þremur.
Kolbrún Baldursdóttir
frambjóðandi.
Atvinnuumsóknir stjórnmálamanna
eru með öðrum hætti en annarra
sem sækja um vinnu.
Fyrir það fyrsta getur umsóknin kost-
að margar milljónir króna. Húsaleiga,
auglýsingar, símakostnaður, veitingar,
prentun og dreifing bæklinga,
laun kosningastjóra, ferðalög um
kjördæmi og heimasíður – allt kostar
þetta sitt.
Í annan stað gerast menn
opinskáir með eindæmum og eru
reiðubúnir að segja frá árangri af
megrunum, bónorðum, áhugamálum
og öðrum ámóta einkamálum.
Í þriðja lagi útheimtir prófkjörs-
barátta langan vinnudag og jafnvel
vökunætur. Þegar skammt er til kosn-
inga er tíminn dýrmætur og honum
má ekki eyða í rúminu.
Þetta leggur fólk á sig til að reyna
að fá vinnu. Og það eru ekki aðeins
stjórnmálamenn sem sækjast eftir endurkjöri sem leggja allt í sölurnar
heldur líka fólk sem er í fínum störfum fyrir.
Það er í raun með ólíkindum hve margir eru til í að leggja mikið á sig
til að ná sæti á Alþingi. Og auðvitað þökkum við hin fyrir að einhverjir
aðrir séu til í að verja tíma sínum og peningum til að komast á þing. Mér
sýnist stefna í að hátt í þrjú hundruð manns muni taka þátt í prófkjörum,
forvölum eða hvað það nú heitir fyrir kosningarnar í vor.
Sjálfur þarf ég mikinn svefn og á lítinn pening og ef ég fer einhvern
tíma í framboð þarf ég því að stóla á uppslættina í blöðunum. Hver vill
ekki kjósa mann sem „Ristarbrotnaði sex ára“ eða „Kann hundrað orð í
spænsku“ eða „Veiðir þorsk í sumarfríinu“?
Annars hljóta taugar þingmanna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að
vera þandar í dag því einhverjir þeirra gætu þurft að ganga til hvílu í kvöld,
vitandi að þeir þurfi að finna sér nýja vinnu í vor. Peningarnir, tíminn og
yfirlýsingarnar hafa þá farið fyrir lítið. En það er þá huggun harmi gegn
að næsta atvinnuumsókn kostar varla jafn mikið, né útheimtir opinskáar
yfirlýsingar og næturvinnu.
VIKA Í PÓLITÍK
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
Svona er ég – gerðu
það kjóstu mig
Þing Norðurlandaráðs fer fram í
Kaupmannahöfn í næstu viku.
Sjö alþingismenn sækja þingið, þau
Sigríður Anna Þórðardóttir formað-
ur, Ásta R. Jóhannesdóttir, Drífa
Hjartardóttir, Jón Kristjánsson, Kjart-
an Ólafsson, Rannveig Guðmunds-
dóttir og Steingrímur J. Sigfússon.
Þá taka nokkrir ráðherrar þátt í þing-
störfum, til dæmis forsætisráðherra,
utanríkisráðherra og samstarfsráð-
herra Norðurlandanna – Jónína
Bjartmarz.
Búist er við að við upphaf þings
skýrist hver verður næsti fram-
kvæmdastjóri Norrænu ráðherra-
nefndarinnar en Halldór Ásgríms-
son, fyrrverandi forsætisráðherra, er
frambjóðandi íslenskra stjórnvalda í
embættið.
NORDEN Í ORDEN
GUÐMUNDUR HALLVARÐSSON
SÆUNN
STEFÁNSDÓTTIR
SIGURJÓN
ÞÓRÐARSON
Skólavörðustíg - Kringlunni - Smáratorgi - Selfossi - Lágmúla
Innifalið í verði er dýrlegur málsverður, gögn,
uppskriftir, góð ráð og heilræði ásamt
afslætti í Heilsuhúsinu.
Bókun á námskeið fer fram í síma 692 8489
eða á namskeid@10grunnreglur.com
Frekari upplýsingar eru í Heilsuhúsinu eða á
vefsíðunni www.10grunnreglur.com
Heilsu- og matreiðslunámskeið í Heilsuhúsinu Lágmúla
10 grunnreglur ™
30. október
Opið Heilsuhús í Lágmúla. Heilsubyltingin™
Þorbjörg og Umahro taka á móti gestum og fræða
um heilsuefni sem eru í deiglunni. Gómsætir
bragðbitar í boði.
Kl. 18.30-20.00. Aðgangur ókeypis
31. október
Fyrirlestur með Þorbjörgu: Vel búinn fyrir
veturinn?
Burtu með flensu, endalaust kvef og hálsbólgu,
þreytu og orkuleysi. Lærðu á ónæmiskerfið og
hvað styrkir og eflir svo að þú komist
veikindalaus gegnum veturinn.
Kl. 19.00-21.00. Verð: kr. 3.900
1. nóvember eða 14.nóvember
Fyrirlestur með Þorbjörgu: Vel nærð er konan
ánægð... og lítur náttúrulega ungleg út! Hormónar,
matur, lífsstíll, stress, melting og fleira hefur áhrif á
gott og hollt konulíf. Þú lærir hvernig þú getur
borðað þig hrausta og unga!
Kl. 19.00-22.00. Verð: kr. 4.900
2. nóvember
Matreiðslunámskeið með Þorbjörgu og Umahro
fyrir konur sem vilja vera ánægðar og líta
náttúrulega unglegar út! M.a. himneskt brassika
grænmeti, ljúfur fiskur og matur sem laðar
Afródítuna fram í þér!
Kl. 19.00-22.00. Verð: kr. 4.900