Fréttablaðið - 28.10.2006, Page 33
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.57 13.12 17.25
Akureyri 8.50 12.56 17.01
Inger Birta Pétursdóttir er bifvélavirki
hjá B&L og á sjálf þrjá bíla. Núna er
hún að fara að endurnýja flotann.
Þegar Inger eignaðist fyrsta bílinn kenndi
pabbi hennar henni fyrstu handtökin við vél-
ina. „Áhuginn blundaði í mér snemma, pabbi
var mikill bíladellukall og var duglegur við að
taka mig með á bílasýningar og torfæru-
keppni þegar ég var lítil,“ segir Inger . Stuttu
síðar ákvað hún að fara í bifvélavirkjun og
sér ekki eftir því. „Ég var aldrei sérstaklega
áhugasöm í skóla, en þegar ég fann mitt fag
gekk námið eins og í sögu.“
Hún er eina konan sem vinnur sem bif-
vélavirki hjá B&L en segir að það séu um það
bil fimm konur í faginu á Íslandi. Inger á sjálf
þrjá bíla, Toyota Landcruiser ´88, Hyundai
accent ´95 og Toyta Rav ´97 árgerð sem allir
eru á sölu, því nú á að endurnýja bílaflotann.
„Ég er búin að eiga Hyundai-inn í sex ár og
þrátt fyrir fordóma gagnvart honum hefur
hann reynst mér vel,“ segir Inger og heldur
áfram. „Núna er ég hins vegar búin að finna
annan sem er enn sparneytnari.“ Ferðinni er
heitið til Þýskalands á næstunni þar sem
Inger ætlar að festa kaup á „Smart for two“,
bíl sem er tveggja sæta dísel-bíll og eyðir
aðeins 2-4 lítrum á hundraði og hefur náð
miklum vinsældum í stórborgum Evrópu.
Inger er mikið á ferð um landið í jeppa og
fer gjarnan upp á Langjökul og á staði eins og
Nesjavelli og Hafravatn. En um leið og hún
fær sér bílskúr ætlar hún að láta ameríska
drauminn rætast. „Ég ætla fá mér Dodge
Charger ´75 í bílskúrinn og gera hann upp,
mér finnst þessir bílar æðislegir en er líka
hrifin af Corvettum“ segir Inger. Markmiðið
er síðan að nota Smartinn í vinnuna, hafa
jeppa í fjallaferðirnar og Dodginn í bílskúrn-
um. rh@frettabladid.is
Amerískur draumur
Inger Birta Pétursdóttir bifvélavirki stefnir að því að endurnýja flotann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
28. október, 301. dagur
ársins 2006.
Núna er tími til kominn að skella
vetrardekkjum undir bílinn. Það
er ekki langt í að snjórinn komi
og hálkan verði meiri í umferð-
inni. Þess vegna er mikilvægt
að vera öruggur og fá sér góð
vetrardekk fyrir veturinn.
Það er fátt betra
en að koma heim
eftir erfiðan
vinnudag og
fá sér heitan
kakóbolla.
Það hressir og kætir
og er auðvitað meriháttar gott.
Bætið þeyttum rjóma út í og
finnið hvað kroppurinn hlýnar
allur. Yndisleg tilfinning.
Sumarið er ekki eins fjarlægt
og margir halda. Því er ekki úr
vegi að byrja að spá í hvað skuli
aðhafast í næsta páska- og
sumarfríi. Kíkið á netið og sjáið
hvort flugfélögin bjóða ekki upp
á einhver skemmtileg nettilboð
til fjarlægra landa.
ALLT HITT
[ BÍLAR FERÐIR HEIMILI ]
GLEÐI Á FJÖLLUM
AÐ VETRI
Íslenskir fjallaleiðsögu-
menn í vetrarham
FERÐIR 7
ÖRYGGI OG FRELSI Í
FLOTTUM PAKKA
Reynsluakstur Porsche 911
Targa 4S
BÍLAR 2
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
Nánari upplýsingar hjá lánafulltrúum Frjálsa
og á www.frjalsi.is, þar sem einnig er hægt
að reikna greiðslubyrði.
Lánstími allt að40 ár
Bílalán TM
Sveigjanlegir
möguleikar
með TM - bílaláni
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Ég vil komast í samban
d við traustan
ferðafélaga, sem finn
st gaman að
skoða náttúruna!