Tíminn - 24.03.1979, Blaðsíða 1

Tíminn - 24.03.1979, Blaðsíða 1
Framréttar sátta hendur mætast i gær undirritaði sexmannanefnd BSRB samkomulag það sem I fyrradag náðist við fjármálaráðherra fyrir hönd rikissjóðs og hér sjást þeir Tómas Árnason og Kristján Thorlacius takast innviröu- lega i hendur að þessum gjörningi gjörðum. (Timamynd GE) Þorskveiðar takmark- aðar við 280-290 þús. tmnn verða netaveiðar LUllll stöðvaðar á vorvertíð? AM — Sjávardtvegsráöuneytiö hefur nú ákveðið með hvaða hætti þorskveiöar verða tak- markaðar á árinu. Verður stefnt aö þvi að takmarka þorskveiðar við 280-290 þúsund tonn og verða friðunaraögerðir og aörar takmarkanir miðaðar við að ná þvi marki. Kjartan Jóhannsson sjávarút- vegsráðherra sagði blaöinu i gær að friðanir og takmarkanir yrðu endurskoðaðar eftir þvi hvernig tækist að ná þessu fram og meö tilliti til ytri breytinga svo sem hafiss eöa annars. Ráðherrann sagöi, að allmikil takmörkun mundi veröa á þorskveiðum togara sumar- mánuöina.þar sem þá heföu oft myndasttoppar, sem nýstheföu misjafnlega. Mun verða lagt svo fyrir að aðeins 15% aflans megi vera þorskur á 70 dögum á timabilinu 1. mai til 30.septem- ber, en af þessum dögum skulu ekki færri en 30 vera f júli og ágúst. Bannaö verður að koma með fisk á millidekki, nema isaöan i kassa. • isröst fyrir utan Hornvik siöast liðinn miðvikudag — Myndina tók Róbert ljósmyndari Timans, en siðan þá hefur Isinn aukist á þessu svæði og var hann kominn allt suöur að Barða i gær Hvað bátana snertir mun þeim verða gert að stoppa um páska, jól og um verslunar- mannahelgi, og eftirlit verður haft meö netaveiðunum. Fylgst veröur meö vorvertiðinni og kemur til greina aö stööva neta- veiöar á vorvertiö, en það fer eftir þvi hvernig gengur. bá er I athugun að koma upp upp- lýsingaþjónustu, til þess að stuöla að aflajöfnun. Akvarðanir þessar kvaö Kjartan teknar 1 samráði við sérfræðinga og hagsmunaaöila. elmingur vinnufærra manna á Kópaskeri ATVINNULAUS . Jeiknalega mikill is fvrir norðan Grimsey” ESE — ,,Það er alveg feikna- lega mikill Is á svæðinu ir norðan Grimsey, allt að Jan Mayen, og er isinn á þessu svæði mjög þéttur”, sagði Guðmundur Kærnested, skip- herra i viötali við Timann i gærkvökii, en Guömundur var þá nýkominn úr iskönnunar- flugi með flugvél Landhelgis- gæslunnar. Við fórum norður að Jan Mayen I fluginu i dag og þaö er mjögmikill Is á öllu svæðinu allt að Grimsey, en þegar komið er suöur fyrir eyna þá er isinn mun dreifðari, ogfyrir sunnan Langanesi er ör bráönun á Isnum. Aö ööru leyti er ekki mikil breyting á isnum frá þvf í gær. Siglingaleiöin fýrir Horn var vel fær í gær og allt svæðiö að Siglunesi, en þar fyrir austan er sigling mjög erfiö aö Rauðunúpum. Ising nær allt suður að Dala- tanga fyrir austan landið, og að vestanveröu er isinn kom- — sagði Guðmundur Kærnested skipherra sem fór i ískönnunarflug í gær inn að Baröa, en þar ér isinn að visu en minniháttar, sagði Guömundur Kærnested aö lokum. — eftir daginn I dag, þar sem hafis hefur lokað höfninni ESE — „Þetta er orðið ansi óálitlegt hérna hjá okkur núna og við vorum að loka höfninni rétt i þessu með stálvir”, sagði Friörik J. Jónsson, odd- viti á Kópaskeri er Timinn ræddi viðhann um miðjan dag I gær. Þaðvarkominn þónokkur is hérna i gær, og i nótt bættist enn við þannig að ég gæti trú- að þvi aö um 5/10 hlutar fjarö- arins væru þaktir fs þessa stundina. Héöan er aöeins gert út á rækju og ætluöu bátarnir út I morgun en uröu frá aö hverfa vegna Issins. Rækjuveiöin ; hefur gengið fremur slælega og bátarnir hafa sjaldnast náð vikuskammtinum, þóþeirhafi haft mikið fyrir veiðinni. Þeir fengu þó um tvö tonn I gær, sem dugir rækjuvinnslunni i dag,en eftir daginn i dag blas- ir ekkert annaö en atvinnu- leysiö við hjá þeim rúmlega fjörutiu manns sem hafa lifs- viöurværi sitt af sjónum. Þetta er um helmingur vinn- andi fólks hér i plássinu, þannig að útlitið er ekkert of bjart þessa stundina, sag i ' Friðrik oddviti að lokum. Of mikið stolt að gefa Amerikönum segir Ólafur Björnsson I Keflavik SS — „Ég tel Amerlkana borg- unarmenn fyrir þá þjónustu, sem þeir hafa notð áratugum saman frá bæjarfélaginu og það er ekker annað en ræfildómur Islenskra stjórnvalda að kalla það stolt að vera að gefa Ameri- könum. Það er of mikið stolt" segir ólafur Björnsson, bæjar- fuiitrúi f Keflavik, i viðtali við Timann sem birtist eftir helg- ina. Tilefnið var, aðfyrir nokkr- um árum geröi bæjarstjórn Keflavikur þá kröfu að bæjarfé- laginu yrðí greidd að nokkru sú þjónusta sem það telur sig hafa innt af hendi vegna veru her- manna I KeOavfk. t viðtaiinu kveðst Ólafur ætla að ieggja það til að ekki verði hikaö við að fara f mál vegna þessarar kröfu. Laugardagur 24. mars 1979 70. tölublað—63. árgangur Islendingaþættir fylg.la blaðinu I dag Slðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 ..............—-------------------------------------------------------- - -. '----------------- .. __________________________.__________í____________:________ .. „ ...__________

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.