Tíminn - 24.03.1979, Blaðsíða 19
Laugardagur 24. mars 1979.
19
(^^^mt ^
flokksstarfið
Framsóknarvist
veröur að Hótel Sögu, Súlnasal. miðvikudag-
inn 28. mars. Spilaðar verða tvær umferöir og dansað siðan til kl.
1. Húsið er opnað kl. 20.00.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Mosfellssveit-
Kjalarnes-Kjós!
Fjölskylduskemmtun verður I Hlégarði, sunnudagskvöldiö 25.
mars kl. 20.30. Spiluð verður slðasta umferðin i spilakeppni
Framsóknarfélags Kjósarsýslu. Sá sem hæstur verður eftir 3.
kvöldin hreppur ferð á vegum Samvinnuferða og Landsýnar,
einnigverðaþrenneinstaklingsverölaun,3 fyrir karla og 3 fyrir
konur.
Kaffi verður i hlénu. Hinn frábæri skeipmtikraftur, Jóhannes
Kristjánsson skemmtir með eftirhermum og fleiru. Kristján B.
Þórarinsson stjórnar spilamennskunni. Allir velkomnir.
Árshótíð Framsóknarfélaganna
í Reykjavík
Arshátið Framsóknarfélaganna i Reykjavik verður haldin i Sig-
túni laugardaginn 31. mars.
Arshátiðin hefst með borðhaldi kl. 19.30.
Frábærir skemmtikraftar hafa ofan af fyrir gestum og loks
verður stiginn dans.
Miðapantanir i sima 24480 milli kl. 9 og 5.
Nánar auglýst siðar. Framsóknarfélögin I Reykjavik.
FUF, Reykjavík
Félagsfundur miðvikudaginn 28. mars kl. 20.30 að Rauðarárstíg
18 (kaffiteriu).
1. Starfsáætlun félagsins næstu tvo mánuði. Formenn nefnda
gera grein fyrir áætlunum.
2. Aðalfundur miðstjórnar 30.3
3. önnur mál
Fundarstjóri Jósteinn Kristjánsson
F.U.F.
Orðsending til
Framsóknarmanna í
Reykjavík og nógrenni
Félag ungra Framsóknarmanna mun selja páskaegg á skrifstof-
unni Rauðarárstig 18. Pantanir eru teknar hjá Katrfnu Marius-
dóttur framkvæmdastjóra F.U.F. Styrkið Félag ungra fram-
sóknarmanna. F tt p
Keflavík — Viðtalstími
Bæjarfulltrúarog varafulltrúar veröa til viðtals mánudaginn 26.
mars n.k. kl. 17.30 — 19 i Framsóknarhúsinu.
Framsóknar-
VIST
að Hótel Sögu Súlnasal
Síðasta umferðin verður
miðvikudaginn 28. mars
Að venju verða spilaðar tvær umferðir og
dansað siðan til kl. l.
Húsið er opnað kl. 20.00.
Framsóknarfélag Reykjavikur
Allir velkomnir
Kammersveit 0
Einu sinnifórhin frægi sænski
skordýrafræðingur, Lindroth,
sem nú er nýlátinn, til Banda-
rikjanna, og vildi þá m.a. heim-
sækja kollega sinn i Harvard,
sem var ennþá frægari. En hon-
um til undrunar virtist hinn
ameriski ilugnameistari ekkert
glaöur aö hitta hann, tók kveöju
hans fálega, og varð stutt i sam-
talinu. Þegar út af skrifstofunni
kom bar Lindroth sig illa undan
móttökunum við einkaritara
Harvardprófessorsins, sem
hafði skýringu á reiðum hönd-
um: Hún sagöi, að hinn læröi
fræðimaður teldi minni sitt vera
orðið svo fullt af flugnaheitum
og annarra skordýra, aö fyrir
hvert nýtt nafn eöa heiti, sem
viö bættist, eins og t.d. „Lind-
roth”, gleymdi hann einni fiugu,
og það vildi hann fyrir enga
muni.
Olafur Andresson
Kveöja frá sveitunga.
1 dag kveðjum viö Kjósverjar
oddvita okkar og forystumann,
Ólaf Andrésson 1 Sogni, en útför
hans verður gerð frá Revnivalla-
kirkjú kl. 2. Hann andaðist á
heimili sinu 13. þessa mánaöar.
Olafur Andrésson var fæddur
26. des. 1909 aö Bæ I Kjós. For-
eldrar hans voru hjónin ólöf
Gestsdóttir og Andrés Ólafsson,
sem lengi bjuggu í Bæ, en siðan á
Neðra-Hálsi. Eru börn þeirra
jafnan kennd viðþann bæ, en þau
voru 13 talsins sem upp komust.
Mér er móðir þessara systkina
sérstaklega minnisstæð, þegar ég
sem unglingur kom að Neöra-
Hálsi, þar sem hún dvaldi hjá son
um sinum, Oddi og Gisla, siðustu
ár sin. Mérfannsthúnhafa bjart-
an og höföinglegan svip, og staf-
aöi frá henni vinsemd og glaðleg-
ri hlýju. Andrés faðir þeirra var
dáinn fyrir mina tið, en hann
hafði verið greindur hæfileika-
maður og vinsæll hjá sveitungum
sinum. Hafa mannkostir þessara
mérkishjóna erfst i rikum mæli til
barna þeirra.
Óiafur Andrésson fór á Bænda-
skólann á Hvanneyri, og lauk þar
búfræðiprófi árið 1935.
26. des 1939 kvæntist hann eftir-
lifandi konu sinni, Kristinu
Jakobsdóttur frá Sogni. Hófu þau
búskap I Sogni árið 1943, og hafa
búið þar siðan.
Fljótlega eftir að þau hjón hófu
búskap i sveitinni, kom i ljós aö
Olafur naut mikils trausts sveit-
unga sinna, og voru honum falin
margvisleg trúnaöarstörf fyrir
sveitarfélagið. Þaö er ekki til-
gangurinn með þessum linum, aö
telja það allt upp, þvi við sveit-
ungar hans þekkjum störf hans,
heldur til að minnast hans með
virðingu og þakklæti fyrir liína
tið.
Þegar viö, sem vorum I sveitar-
stjórn með Ólafi, komum saman
til að minnast fallins foringja
okkar, var okkur efst i huga
þakklæti fyrir ánægjulegt sam-
starf undir hans stjórn, sem ein-
— í Sogni
kenndist af sanngirni og dreng-
skap hans. Þaö var von okkar, að
við gætum starfað i þeim anda
afram. Það hefur verið
ánægjulegt og lærdómsríkt að
starfá með ólafi að félagsmálum,
og hygg ég að fleirum hafi fundist
það en mér. Hafi komið fyrir
vandasömmál að fást viö, hefur
það veitt öryggiskennd að hafa
svo reyndan mann og hygginn
sem Ólaf i forystu, til aö íeysa úr
þeim.
Þó margvlsleg störf hafi hlaöist
á Ólaf i Sogni I sveitinni, þá hefur
hann einnig verið kvaddur til
starfa út á við.i samtökum
bænda.Ekkiþætti mér óliklegt að
þeir sem þekkja verkin hans best
á þeim sviöum, muni minnast
hans aö leiðarlokum.
Nú á seinni árum hefur hann
verið aö segja af sér hinum ýmsu
félagsstörfum sem hann hafði
með höndum um dagana, enda
búinn að gegna sumum þeirra i
áratugi. Eflaust þætti mörgum
nóg á einn mann lagt, að sinna
öllum þeim aukastörfum sem á
ólaf hafa hlaöist, þó hann heföi
ekki öðru starfi að sinna Hka, en
hann hefur fyrst og fremst veriö
bóndi, sem þurft hefur aö annast
bú sitt heima fyrir, eins og aðrir
bændur. 1 þvi sambandi er skylt
að minna á, aö Ólafur hefur ekki
búiö einn. Hefur Kristin kona
hans, staöið viö hliö manns sins i
bliöu ogstríðu, af sinum alkunna
dugnaöi og myndarskap.
Þó ánægjulegt sé að minnast
starfa Ólafs fyrir sveit si'na, er
hitt ekki siöur, aö minnast hans
sem félaga og samferðarmanns í
daglegu Ufi fólksins. Ég minnist
meðánægju samverustunda með
honum, þar sem hann lffgaöi upp
á félagsskapinn með gamansemi
og skemmtilegum tilsvörum, og
þægilegri framkomu sinni.
Ef menn tóku saman lagið á
góöri stund, léthann ekki sitt eftir
liggja. þvi hann hafði góða söng-
rödd, sem öllum fannst gaman aö
heyra. Þurfti hann hvorki vin né
örvandi efni til, því það var hon-
um eölilegt aö taka þátt i gleði
sveitunga sinna. Þá var gaman
aö heyra hann halda ræöur við
hátíðleg tækifæri, þar sem sam-
an fór gaman og alvara. En þaö
var ekki oft sem hann gerði þaö,
þvi Ólafur var hlédrægur maöur
að eðlisfari, og ekki fyrir að láta
á sér bera.
A þeim árum sem Karlakór
Kjósverja starfaöihér i sveit und-
ir stjórn Odds á N.-Hálsi, var
Ólafur öflugur liðsmaður kórsins,
og ekki sfður i' kirkjukór Reyni-
vallakirkju, sem Oddur bróðir
hans stjórnar lika. Þær eru orðn-
ar margar guðsþjónusturnar sem
Ólafur hefur sungið viö á undan-
fórnum áratugum, og vert er aö
þakka.
Viö þau þáttaskil sem nú verða
i málum okkar Kjósverja, vil ég
þakka fyrir góðar stundir sem ég
hef átt ISogni, ogég hygg, aöþeir
mörgu, sem notiö hafa gestrisni
og veitinga þessara ágætu hjóna,
séu sama sinnis.
Kristín og Ólafur i Sogni hafa
alið upp tvö kjörbörn. Loft
Hannes f. 28.sept.1944 og Jódisi
f. 17.nóv.l949. Þá hefur fjöldi
barna ogunglingadvalið á heim-
ili þeirra gegnum árin, um lengri
eða skemmri tima. Hafa þau un-
að hag sinum vel þar og haldiö
tryggö við heimiliö. Nú á siðustu
árum hefur bróðursonur Kristin-
ar, Hannes Ragnarsson, dvaliö
hjá þeim Sognshjónum. Hefur
mér sýnst þau reynast honum
eins og foreldrar. Kann hann bet-
ur viö bústörfin I sveitinni en
borgarlifiö. Undanfarið hafa
verkin flt á hans heröum aö
verulegu leyti, en ólafur varö
fýrir heilsutjóni fýrir nokkrum
árum og hefúr ekkigetað unniö
erfiðisvinnu siðan. Hefur sam-
starf þeirra verið báöum gott.
Var gaman aö sjá húsbóndann
létta lund hins unga manns með
góðlátlegri glettni sinni. Er miss-
ir hans sjálfsagt ekki minni en
fjölskyldu Ólafs. Megi minning
um goðan dreng, draga úr sökn-
uði þeirra.
Stjórnandi Kammersveitar-
innar á þessum tónleikum var
ungur Svii, Sven Verde, sem
stofnaði ka mmersveitina
Musica Sveciae áriö 1970, og
stóð fyrir þvi að Þorkell Sigur-
björnsson semdi kammerverk
sérstaklega fyrir þá feðga Wil-
helm og Ib Lanzky-Otto. Það
verk varð WIBLO, samsett út
upphafsstöfum nafna þeirra
feöga, ogfrumflutt I Stokkhólmi
I fyrra. „Verkið er i einum þætti
og fjallar um 3 litil stef, kynnir
horniö eitt, pianóiö annaö og
strengjasveitin þriðja. Svo
skiptast þessir aöilar á stefjum,
meðvinsemd, oftast nær”, segir
tónskáldið I efiiisskrá. WIBLO
er semsagt fyrir pianó (Wilhelm
Lanzky-Otto), horn (Ib) og
strengjasveit, en heldur alvöru-
eöa innihaldslitiö við fyrstu
kynni. Þaö er sannariega rétt
stefna hjá tónskáldum aö skrifa
fyrir afburða hljóöfæraleikara
— Mózart, Brahms og margir
fleiri stunduöu þetta, og
sköpuðu þannig ódauðleg Hsta-
verk. En það er i sjálfu sér ekki
nóg að tileinka verk frægum eöa
snjöllum hljóöfæraleikurum,
þvíverkin veröaaðgeta staðiö á
eigin fótum, þegar fram i sækir.
Annars virðist það vera stefna
miöaldra tónskálda vorra, með-
vituö eða ekki, að semja fyrir
hiö liðandi augnablik, aö marka
spor í sandinn.
Ondvegisverk kvöldsins var
að sjálfsögðu Brahms-trióið
sem Rut Ingólfsdóttir (fiöla) lék
meðþeim feðgum. Sá flutningur
var verulega fin kammermúsik
og mikil ánægja á aö heyra,
enda stóðRut fyllilega fyrir sinu
i þessum hópi.
20.3. Siguröur Steinþórsson
Alþingi 0
arfjölda nýrra einbýlishúsa á
undanförnum árum.
Frádráttarheimild sú, sem
gert er ráð fyrir i frumvarpi
þessu, er hugsuö þannig, aö
fundið sé hversu stór hundraðs-
hluti af kostnaðarverði hefö-
bundins húss á tilteknu bygg-
ingarstigi er söluskattsfrjáls
vinna. Sami hundraöshluti af
heildarsöluverði verksmiöju-
framleidds húss á sama bygg-
ingarstigi yrði siðan leyfður til
frádráttar heildarsöluverði þess
áöur en söluskattur er reiknaö-
ur. Miðaö við þessar forsendur
má ætla að tekjutap rikissjóðs
af frumvarpi þessu og reglugerö
þeirri, er i kjölfar þess fylgdi,
yröi milli 130 og 170 milljónir
króna á heilu ári, miðað við
verðlag ársins 1979, og að
40-50% af heildarsöluverði
þeirra gerða einingarhúsa, sem
nú erualgengastar, yrðu undan-
þegin söluskattinum.
Kúrdar 0
nánar framtiöarstjórnarfar hjá
öörum kynþætti I Iran sem á
umliðnum árum hefur heimtað
aukna sjálfstjórn en það eru
Turkomanar i norðaustur-
héruðum landsins við landa-
mæri Sovétrlkjanna.
t
Þökkum hlýhug og vinarþel við andlát og útför
Páls Sigurðssonar
frá Arkvörn i Fljótshliö.
Einnig færum viö starfsfólki Hrafnistu þakkir fyrir veitta
umönnun nú siðustu árin. F.h. vandamanna
Sigfús Sigurðsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengda-
föður og afa
Brynjólfs tJlfarssonar,
Stóru-Mörk.
Guðlaug Guöjónsdóttir,
Hanna Kristin Brynjólfsdóttir, Benedikt Sigurbergsson,
Ulfar Brynjólfsson, Rósa Aöalsteinsdóttir,
Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Jón Þorkell Rögnvaldsson
og barnabörn.