Tíminn - 12.04.1979, Blaðsíða 14

Tíminn - 12.04.1979, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagur 12. april 1979 Alternatorar 1 Ford Bronco, Maverick, Chevrolet Nova,. Blaser, Dodge Dart, Playmouth. Wagoneer Land-Eover, Ford Cortina, Sunbeam, Flat, Datsun, Toyota, VW, ofl. ofl. Verð frá kr. 17.500.-. Einnig: Startarar, Cut-Out, Anker, Bendixar, Segulrofar, Miöstöövamótorar ofl. I margar teg. bifreiöa. Póstsendum. Bflaraf h.f. S. 24700. Borgartúni 19. Tollvörugeymslan Aðalfundur Aðalfundur Tollvörugeymslunnar h.f. verður haldinn að Hótel Loftleiðum, Kristalsal, föstudaginn 20. april 1979 kl. 17.00 DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreyting (Hlutafjáraukning). 3. önnur mál. Stjórnin Hjólbarðasólun, hjólbarðasala og öll hjólbarða-þjónusta N’ú er rétti timinn til að senda okkur hjólbaröa til sólningar Eigum fyrirliggjandi flestar stœröir hjólbarða, sólaöa ofi nýja Mjög gott verð ’flsruno (t sportvöruverzlun AUSTURVERI Háaleitisbraut 68 Simi 8 42 40 SERVERZLUN HEST AMANNSINS AÐEINS VANDAÐAR VÖRUR VERZLIÐ í SÉRVERZLUNINNI PÖSTSENDUM Kvikmyndahornið: Hvað verður í kvikmyndahúsum um páskana? Aö þessu sinni er Kvik- myndahorniö helgaö kynningu á páskamyndum kvikmynda- húsanna í Reykjavlk. S.l. sunnudag var fjallaö um tvær páskamyndir, þe. Silfurrefina IRegnboganum og Vlgstirniö i Laugarásbió. þannig aö þær eru ekki teknar meö I þessu yfirliti. Þegar þetta er ritaö er ekki ljóst hvaöa mynd Hafnarbió sýnir um hátiðarnar, en ýmis- legt bendir til þess að þaö verði kvikmynd Michael Lind- say-Hogg Nasty Habits með Glendu Jackson, Melindu Mercouri, Geraldinu Page og Anne Jackson. Nasty Habits er gamanmynd um valdaátök I nunnuklaustri. Fjalakötturinn, kvikmynda- klúbbur framhaldsskólanna, sýnir fræga tónlistarmyndi Monterey Pop með Janis Joplin.Jimi Hendrix, Mamas and Papas, Otis Redding, The Who o.fl. GK ' W'x' . w í 5HÁSKÖJ Heljar- menniö Þaö munu vera um þaö bil 45 ár síöan teiknimyndaserian um Superman sá fyrst dagsins ljós. Feöur Supermans voru teiknararnir Jerry Siegel og Joe Shuster sem nú eru 64 ára. Báöir búa þeir viö knöpp kjör, annar I Los Angeles en hinn I New York. Páskamynd Há- skóiabiós Superman.sem byggö erá teiknimyndaseriunni þeirra færir þeim hvorki guli né græna skóga vegna þess aö þeir afsöi- uöu sér höfundarréttinum fyrir all löngu siöan. Kvikmyndin um Superman er látin byrja árið 1948 á þvi að Jor-El,einn af meölimum þings reikistjörnunnar Krypton fær þrjá af mönnum hershöfðingj- ans Zod dæmda fyrir landráð. Þingið skellir hins vegar skolla eyrum við aðvörunum Jor-El um.að plánetan sé i þann veginn að dragast að sólinni sem hún snýst i kringum. Aður en þær hamfarir eiga sér stað senda Jor-El og kona hans Laura son sinn til jaröarinnar. Vegna sér- stakrar byggingar frumanna i likama sonarins er hann gæddur ofurmannlegum krafti. Barn- laus hjón Marta og Jonathan Kent sem búa I einu af miörikj- um Bandarikjanna finna dreng- inn og ala hann upp. Eftir dáuða Jonathans birtist drengnum andi Jor-El sem tekur hann i 12 ára námsferð um geiminn. Þri- tugur að aldri snýr hann til baka til jarðarinnar sem Clark Kent, hlédrægur blaðamaður á Daily Planet sem er gefið út I borginni Metropolis. Ekki llöur á löngu þar til upp kemur orðrómur um einhvern furðufugl sem sést hafi á flugi yfir borginni og láti til sln taka þegar hætta steðjar aö Ibú- um Metropolis. Christopher Reeve sem Superman Aðalhlutverk I þessari dýr- ustu kvikmynd sem gerð hefur verið (kostnaðurinn nemur 35 milljónum dollara) eru I hönd- um Marlon Brando (Jor-El), Christopher Reeve (Superman) Margot Kidder og Gene Hack- man. Leikstjóri er Richard Donner, en kvikmyndahandritið er skrifað af 4 aðilum þeirra á meðal Mario Puzo. Sagt er að tæknin sem notuð er I kvik- myndinni tæki öllu fram jafnvel þeirri sem notuð var I Close En- counter of the Third Kind og 2001. Þess má geta að væntanleg innan skamms er Superman 2 en hún var tekin um leið og fyrri hlutinn sem nú verður sýndur I Háskólabiói. GK Tónabíó Annie Hall Páskamynd Tónabiós Annie Hall er án efa I hópi þeirra kvikmynda sem mest er spunnið I af þeim sem reyk- vlsk kvikmyndahús bjóöa upp á aö þessu sinni. Leikstjóri og höfundur handrits Annie Hall er hinn frægi Woody Allen. Sögusviö kvikmyndarinnar er þaö um- hverfi sem Allen er borinn og barnfæddur i,Manhattan eyja I New York. Hún fjallar um ástarsamband og sambúð grinistans Alvy Singer (Woody Allen) og söngkonun- ar Annie Hall (Diane Keaton). Likt og hjá flestu ungu fólki er búskapurinn hnökralaus I upphafi en þegar frá llður og mesta nýjabrumið af taka sambúðarerfiðleikar aö gera vart við sig sem valda þvi að Annie yfirgefur Alvy og flytur til Los Angeles. Kvikmyndin Annie Hall hefur hvar vetna hlotið mikla aðsókn og góða dóma. Sjálf- sagt er megin ástæðan fyrir hinum jákvæðu viðbrögðum við myndinni sú á hversu raunsæjan og hreinskilin hátt húnfjallarum samskipti karls og konu, sem lifa i nútima þjóðfélagi sem viðurkennir jafnrétti kynjanna I orði en ekki á borði. Gallinn við kvikmyndir margra ameriskra grinista er oft sá að þeir skjóta yfir mark- ið. Þessu er ekki til að dreifa um Annie Hall. Woody Allen notar háðið I myndinni sem tæki til að vekja athygli á ýmsu,sem betur má fara og á þann hátt að grinið verður aldrei afkáralegt heldur eðli- legur þáttur I persónulegustu kvikmynd hans til þessa. GK Úr kvikmyndinni Annie Hall. Diane Keaton og Woody Allen.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.