Tíminn - 12.04.1979, Side 19

Tíminn - 12.04.1979, Side 19
Fimmtudagur 12. aprll 1979 19 yi Páskagaman — Auðvitaö lamdi ég hann — en hann þurfti ekki að taka þvi svona vel og fara. — Eg mun aidrei gleyma hvernig þú varðir heiður minn. — Er þetta útsala eða erum við að hamstra? Páskagaman Fólksfækkun O mikla atvinnu og það mikla at- vinnufyrirtæki, sem nú er senn að taka til starfú á Grundartanga. Fólksfækkunin er allt aö 16% i sumum hreppunum milli ára. í lok fundarins var samþykkt svo- hljóðandi tillaga frá se'ra Jóni Einarssyni i Saurbæ: Sameiginlegur fundur hrepps- nefnda I sveitunum sunnan Skarðsheiðar, haldinn að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd 27. mars 1979, ályktar eftirfarandi: 1. Fundurinn lýsir áhyggjum sin- um vegna stööugrar fólksfækkun- ar i sveitunum og telur brýnt, að þeirri þróun veröi snúið viö nú þegar. 2. Fundurinn andmælir þvi mis- rétti, sem sveitirnar búa viö varðandi orkumál. Lýsir fundur- inn stuðningi viðstefnu núverandi rikisstjórnar um veröjöfnun á rafmagni og væntir þess, að þaö komi til framkvæmda hiö fyrsta. 3. Fundurinnsamþykkir að kjósa þrjá menn úr hópi hreppsnefndar- manna til að ganga á fund sam- gönguráðherra og greina honum frá þvi misrétti og öryggisleysi, sem hluti sveitanna býr viö I slmamálum ogreyna að ýta á eft- ir þvl, að sjálfvirkur slmi verði hið fyrsta lagður á öll heimili I hreppunum I sól O vegna okkar margumtöluðu is- lensku veöráttu? — Nei, sannarlega ekki. Meginástæðaþess hve fólk talar illa um veörið hér, er sú aö það kann ails ekki að klæða sig I samræmi við veðriö. Við veröum aö gera okkur grein fyrir því, að við búum hér norður undir heimskautsbaug og okkur veitir ekkert af þvi aö klæöast íslensku ullinni, helst allan ársins hring, að undan skildum hlýjustu vor- og sumar- dögum. Það er alltaf hægt að vera úti, — ef menn kunna að klæða sig I samræmi við veörið hverju sinni. — Þú ert mikill ljósmyndari. Hvar heldur þú að þér hafi þótt bestað takamyndirálandi hér? — í Jökulsárgljúfrum. For- vöðin, Hólmatungur, Hljóða- klettar, Rauðhólar og Hall- höfðaskógur, þar sem huldu- fólksbæirnir eru, — allt er þetta dýrlegt myndefni. Ég var bara svo óheppin aö sólin skein ekki á burstir álfabæjanna, þegar ég varaö mynda þarna. Og ekki lét huldufólkið sjá sig. — En heldur þú aö það sé þarna? — Ég þori ekkert að segja um þaö. Hins vegar var ég einu sinni spurö, hvar á Islandi ég vildi helst búa. Ég svaraöi þvi tilaðég vildihelstvera álfamær I Hljóðaklettum. Satt að segja held ég að ýmsir hafi oröið hissa á þessu svari mlnu. — Nú hefúr þú tekið mikinn fjölda ljósmynda. Hverjar af myndum þinum heldur þú að standi huga þlnum næst? — Þessu er vandsvaraö. Mér er mjög hugstæö mynd af mel- gresi, sem vindur hafði notaö til þess aö skrifa I sandinn. Sömu- leiðis mynd af flfu sem fr æin eru . aö fjúka af. Hún er tekin inná Grágæsadal á Brúaröræfum. Einnig kemur mér 1 hug mynd, sem ég tók af litlum læk, sem hafði myndast rétt við Setbergs- lækipn I Hafnarfirði. Þetta var örlltið vatn, sem fraus og var ekki þarna nema I nokkra daga. En frostiö bjó til konumynd niðri I sveliinu. Hún getur sýnst verahuldumær eða María mey, — það fer allteftir sjáandanum, — en þessar myndir held ég aö mér þyki vænst um. — Að lokum langar mig aö vekja máls á einu, sem kannski er ósmekklegt eöa jafnvel dóna- skapur að tala um: Þegar fólk starfar lengi I sama félags- skapnum og iökar lengi sams konar atha&iir, eins og t.d. úti- veru, þótt I ýmsum myndum sé að vlsu, — er þá ekki hætt við þvl aö þetta veröi hrein ástrlöa, árátta eða jafnvel (með leyfi að segja), della? — Jú, en þaö gerir ekkert til. Mennnjóta ástríöu sinnar þeim mun betur, sem hún kemst á . hærra stig! —VS HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. AÓstoÓum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. ITURDLLA Tannhjóladælur = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SÍMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA VÍNARFERÐ - HVÍTASUNNUFERÐ Fulltrúaróð framsóknarfélaganna i Reykjavik efnir til Vinarferðar laugardaginn 2. júni, komið heim að kvöldi 9. júni. Ath. Aðeins 4 vinnudagar falla úr. Framsóknarfólk notið þetta einstaka tækifœri. Upplýsingar á skrifstofu flokksins, Rauðarórstig 18 Simi 24480 Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Reykjavík

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.