Tíminn - 22.06.1979, Síða 6
6
Föstudagur 22. júní 1979
tJtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón SigurOsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar SiOumúla 15. Sfmi
86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kl.
3.000.00 — á mánuði. Blaöaprent
Stærsta verkefnið
Þótt farmannaverkfallið hafi orðið dýrt þjóðinni,
er tjónið, sem hlotizt hefur af þvi ekki nema brot af
þeim herkostnaði, sem hlotizt hefði af styrjöld stétt-
anna, ef verkfallið hefði haldizt áfram og til viðbót-
ar komið verkbann Vinnuveitendasambands ís-
lands og þau samúðarverkföll, sem hefðu fylgt þvi.
Þá hefði næstum öll framleiðslustarfsemi lagzt nið-
ur vikum eða mánuðum saman og hreint ófriðará-
stand rikt i landinu á meðan og raunar lengur, þvi
að margir hefðu átt erfitt með að gleyma slikum at-
burðum.
Rikisstjórnin bjargaði þvi miklu, þegar hún hjó á
hnútinn og setti bráðabirgðalög, sem bæði bönnuðu
verkföll farmanna og fyrirhugað verkbann Vinnu-
veitendasambandsins i sambandi við það. Raunar
má segja, að betra hefði verið, að rikisstjórnin hefði
gripið fyrr i taumana, en hið pólitiska ástand leyfði
það ekki og oft þarf ástandið að versna til þess, að
það geti farið að batna aftur. Vert er lika að hafa
það hugfast, að óvist er, hvort rikisstjórn, sem væri
öðruvisi mynduð en núverandi rikisstjórn, hefði
getað komið fram slikri lagasetningu.
Gliman við það ástand, sem farmannaverkfallið
skapaði, hefur m.a. orðið til þess, að rikisstjórnin
gat ekki sinnt öðrum verkefnum eins vel og ella. Af
ýmsum ástæðum var nauðsynlegt að sjá fyrir enda-
lok þess. Þess vegna hafa enn ekki verið gerðar ráð-
stafanir til jöfnunar á oliuverðinu, en ranglátt væri,
ef öll byrðin vegna oliuverðhækkunarinnar lenti á
þeim, sem nota oliuna. Hér er um að ræða nýtt stórt
vandamál, sem krefst skjótrar lausnar og leysa
verður á þann hátt, að það verði ekki til að auka enn
verðbólguna.
Eftir lausn farmannaverkfallsins, verður rikis-
stjórnin að snúa sér aftur af fullum krafti að þvi
verkefni, sem hún setti sér, að yrði höfuðverkefni
hennar, en það er hjöðnun verðbólgunnar. Markmið
rikisstjórnarinnar var að verðbólgan kæmist niður i
30% á þessu ári, og var um skeið útlit fyrir, að þvi
marki yrði náð, en siðan hefur sitt hvað skeð, bæði
óviðráðanlegt og viðráðanlegt, sem hefur orðið þess
valdandi, að þetta markmið hefur fjarlægzt að nýju.
Nú þarf þvi að hef jast rösklega handa og reyna að
komast aftur á rétta braut.
Hjöðnun verðbólgunnar er ekki létt verkefni, þótt
langflestir geri sér ljósa þá bölvun, sem fylgir mik-
illi verðbólgu. Þegar að þvi kemur, að gera eitthvað
sem stuðlar að hjöðnun verðbólgunnar, fara margir
að horfa á krónutöluna eina og reikna siðan út, að
hlutur þeirra geti skerzt um svo og svo margar
krónur. Það var þessi krónutölublekking, sem færði
Alþýðubandalaginu og Alþýðuflokknum sigur i sið-
ustu kosningum. Sérfræðingar þeirra reiknuðu út að
visitöluuppbótin myndi hækka um þetta margar
krónur, ef kaupsamningarnir tækju aftur fullt gildi.
Þvi var sleppt úr útreikningnum að umrædd krónu-
töluhækkun yrði brátt að engu, þar sem hún færi inn
i verðlagið og hækkaði það.
Nú mega slikar blekkingar ekki lengur standa i
vegi raunhæfra aðgerða. Eftir langa reynslu ætti
launþegum að vera orðið ljóst, að þeir græða ekki á
verðbólgunni og þó allra sizt láglaunafólkið. Verð-
bólgugróðinn fer til annarra en þeirra. Hjöðnun
verðbólgunnar er einmitt mesta hagsmunamál
launþega. Vegna fenginnar reynslu af verðbólg-
unni, ætti að vera hægt að taka þessi mál fastari
tökum en áður. Gengi og framtið núverandi rikis-
stjórnar veltur á þvi, að henni verði betur ágengt i
þessum efnum en fyrri stjórnum.
Þ.Þ.
mmmmmmmammaami
Erlent yfirlit
Hver verður eftir-
maður Callaghans?
Healy, Shore og Hattersley liklegastir
EINSog nú horfir, eru mestar
llkur til þess aö Margaret
Thatcher verði forsætisráö-
herra Bretlands til 1984, en þá
lýkur kjörtimabilinu. Þing-
meirihluti Ihaldsflokksins er
þaö mikill, aö ekki er sennilegt,
að flokkurinn veröi fyrir slikum
skakkaföllum I aukakosningum,
að meirihlutinn tapist. Hiö eina,
sem gætibreyttþessu, væri þaö,
aö Thatcher freistaðist til þess
að efna til kosninga áður en
kjörtlmabilinu lyki, m.a. vegna
þess að skoðanakannanir væru
Ihaldsflokknum hagstæöar.
Þetta hentiHeathveturinn 1974.
Hann lét glepjast af skoðana-
könnunum og efndi til kosninga
ári fyrr en hann þurfti. Spádóm-
ar skoðanakannananna reynd-
ust rangir og urðu afleiðingarn-
ar ekki aðeins þær, að thalds-
flokkurinn missti þingmeiri-
hluta sinn, heldur missti Heath
flokksforustuna ári siöar, þegar
Thatcher bar sigur af hólmi.
Sú breyting gæti aö s jálfsögöu
orðið, að Thatcher forfallaðist
af einhverjum ástæðum og nýr
maður tæki við forustunni. En
Ihaldsflokkurinn héldi samt
stjórninni áfram.
Þar sem yfirleitt er nú reikn-
að með þvi, að þingkosningar
verði ekki i Bretlandi fyrr en að
fimm árum liðnum, þykir ólik-
legt, að James Callaghan
stjórni næstu kosningabaráttu
af hálfu Verkamannaflokksins.
Callaghaner oröinn 67 ára gam-
all og yrði orðinn 72 ára 1984.
Flestar likur þykja benda til, að
hann dragi sig i hlé áöur og þaö
sennilega fyrr en siðar til þess
að gefa nýjum formanni tæki-
færi til að sýna sig. Þetta getur
nokkuð ráðizt af þvi, hvenær
Callaghan telur heppilegt tæki-
færitS aðfá þannmann kjörinn,
sem hann telur æskilegastan
eftirmann sinn.
SAMKVÆMT reglum Verka-
mannaflokksins er formaöur
{ángflokksins jafnframt for-
sætisráöherraefni flokksins. Að
sjálfsögðu er það þingflokkur-
inn sem velur sér formann og
hafa aðrar stofnanir flokksins
ekki áhrif á það val. Uppi eru
kröfur um, að forsætisráöherra-
efni flokksins sé ekki valið á
þennan hátt og formaöur þing-
flokksins þurfi ekki endilega aö
vera forsætisráðherraefni
flokksins. Óliklegt er þó talið, að
þessu verði breytt. Kosningin á
formanni þingflokksins gildir
meöan hann vill gegna starfinu.
Callaghan verður þvi að segja
af sér tilþess að nýtt formanns-
kjör geti fariö fram.
Þegar flokkurinn er I
stjórnarandstöðu, hefur skapazt
sú hefð, að þingflokkurinn velji
tólf menn, sem mynda svokall-
að skuggaráðuneyti flokksins.
Formaður þingfloldcsins skiptir
svo meö þeim verkum. Val
þessara tólf manna þykir jafaan
nokkur atburður, þar sem það
getur verið visbending um
framtiðarforustuna i flokknum.
Þetta val hefur nýlega fariö
fram I þingflokki Verkamanna-
flokksins og þykir gefa nokkra
vlsbendingu um væntanlegan
eftirmann Callaghans.
Eins og búizt hafði verið við,
hlaut Denis Healy, fyrrv. fjár-
málaráöherra.flestatkvæði eða
153 atkvæði, en þingmenn
flokksins eru 268. Healy er 61
árs eða sex árum yngri en
Callaghan. Fréttaskýrendur
telja, að Healy hafi þvi meiri
möguleika til að verða valinn
eftirmaður Callaghans, sem
hann dregur sig fyrr til baka.
Annar I rööinni var John Sil-
kin, fyrrv. landbúnaðarráð-
herra, sem þótti halda fast á
málum Breta á vegum Efna-
hagsbandalagsins. Það styrkir
Silkins, aö vinstri menn flokks-
ins munu geta sætt sig betur við
hann en Healy, þvi að hann hef-
ur staðið að mestu utan við deil-
ur innan flokksins. Silkin er lika
yngri en Healy eða 56 ára. Hann
fékk 148 atkvæði.
Þriöji I rööinni var Peter
Shore, fyrrv. umhverfismála-
ráðherra. Hann fékk 136 at-
kvæði. Hanner55áragamall og
hefur mjög vaxið I áliti á siðari
árum. Það virðist vaxandi álit,
aö Shore sé vel til forustu fall-
inn.
Fjórði i rööinni var enginn
annar en góðkunningi Islend-
inga úr siðasta þorskastriöinu,
Roy Hattersley. Hann fékk 133
atkvæði. Hattersley er lang-
yngstur þessara fjórmenninga.
Hann var aðstoðar-utanrikis-
Hvenær hættir Callaghan?
ráðherra, þegar hann tók þátt i
viðræðunum við Islendinga, en
þá var Callaghan utanrikisráð-
herra. Þegar Callaghan varð
forsætisráðherra, gerði hann
Hattersleyað verðlagsmálaráð-
herra, þar sem hann þótti reyn-
ast vel I erfiðu starfi. Alit hans
hefur mjög fariö vaxandi og
hann er oft nefndur sem for-
mannsefni og forsætisráðherra-
efni, en þó tæpast strax eftir
Callaghan.
Sérstaka athygli vakti, að
David Owen, fyrrv. utanrikis-
ráðherra, varö tiundi I röðinni
og þykir það viss ósigur fyrir
hann og geta útilokað hann
sem formannsefni. Hann fékk
101 atkvæði.
CALLAGHAN hefur nú skipt
verkefnum milli tólfmenning-
anna, sem þingflokkurinn valdi.
Healy heldur áfram sama starfl
og hann haföi, þ.e. að hann
verður f jármálaráðherra
skuggaráðuneytisins og hefur
þvi aðstöðu til að vera mikiö i
sviðsljósinu. Sama gildir um
Peter Shore sem veröur utan-
rikisráðherra skuggaráöu-
neytisins, en utanrikismál ber
oft á góma iþinginu. Þetta þykir
styrkja verulega stöðu hans.
Hattersley fékk fyrra embætti
Shores og veröur umhverfis-
málaráöherra, en umhverfis-
málin eru einnig oft rædd I þing-
inu. David Owen fékk orkumál-
in I hlut sinn, en þau eru ekki
slður ofarlega á baugi og má
hann þvi sæmilega við una, þótt
hannheföi helzt kosið utanrikis-
málin. þ.Þ.
Healy og Hattersley
wmmmmmm