Tíminn - 22.06.1979, Qupperneq 9
Föstudagur 22. júnl 1979
9
Skákmenn f á ekki
aukafjárveitingu
— umsóknin afgreidd við gérð fjárhagsáætlunar 1980
Kás — Skáksamband tslands og
Taflfélag Reykjavikur hafa ný-
lega sent borgarráBi erindi þar
sem fariö er fram á verulega
hækkun á fastaframlagi borgar-
innar til þessara félaga á næstu
tveimur árum, vegna fyrirhugaðs
Reykjavikurskákmóts sem halda
á I feb. og mars á næsta ári.
Borgarráð visaði erindinu til
umsagnar sparnaðarnefndar. t
niðurstöðu nefndarinnar segir:
Sparnaðarnefiid leggst gegn þvl,
að veitt verði nú vilyrði fyrir f jár-
veitingum eða hækkun styrkja er
falli á komandi ár. Slikt fyrir-
komulag um ákvörðun fjárveit-
inga striðir gegn réttum reglum
um samningu fjárhagsáætlana.
Nefndin leggur þess vegna til,
að erindi nefiidra aðila verði tekið
til umfjöllunar þegar fjárhags-
áætlun fyrir áriö 1980 veröur
samin næsta haust.
Borgarráö féllst á umsögn
sparnaðarnefndar. Verður þvl
ekki um neina ákvörðun að ræða
nú um hækkun á fastaframlagi
borgarinnar til SI og TR fyrir
næstu tvö árin.
Sumarkvöld á Hótel Sögu
Natóstyrkur:
Rannsókn á fél-
agsréttarlögggjöf
AUGLÝST hefur verið veiting
styrkja er Atlantshafsbandalagiö
veitir áriega til fræðirannsókna i
aðiidarrikjum bandalagsins.
Hefur Þorgeir Orlygsson, lög-
fræðingur, hlotið styrk þennan nú
til að vinna aö ritgerö um saman-
burð á félagaréttarlöggjöf I
Bandarlkjunum og á tslandi aö
þvl er varðar heimildir til stofii-
unar erlendra fyrirtækja og lög-
sögu einkaréttardómstóla I rikj-
um þessum yfir erlendum fyrir-
tækjum.
Myndlistarsýning i
Safnahúsinu
á Sauðárkróki
Fjölbreytt kynning á Islenskum landbúnaðarafurðum
Um helgar I sumar eða frá
fbstudagskvöldi 22. júní og til
septemberloka, verður bryddað
upp á margvislegum nýjungum I
Súlnasal Hótel Sögu, og ýmis
atriði, sem þar hefur verið boðið
upp á áður, munu auk þess veröa
endurtekin.
Aðaltilgangurinn er að vekja
athygli á og stuðla að aukinni
neyslu og notkun islenskra land-
búnaðarafuröa, bæði til fæöis og
klæða, og verður öll tilhögun við
það miðuð að bæði islenskir og
erlendir gestir geti haft gagn af.
Föstudagskvöldin
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar mun halda
uppi fjörinu á sumarkvöldunum.
Föstudagskvöldin verða eink-
um helguö þessu markmiði og
veröa þá á boðstólum fjölbreyttir
réttir úr lambakjöti, heitir og
kaldir, ásamt úrvali osta og
mjólkurvara. Samtök sýningar-
fólks sýna þá þaö nýjasta á sviði
ullarfatnaðar frá Alafossi og Iðn-
aðardeild Sambandsins. Einnig
veröa sýndir skartgripir frá Jens
Guðjónssyni og loks keramlkvör-
ur af ýmsu tagi. OBru hverju
verða svo fengnir til skemmti-
kraftar, — Islenskir eða erlendir,
— til þess að skemmta, en um
tónlist sér ný hljómsveit undir
stjórn Birgis Gunnlaugssonar,
ásamt söngkonunni Valgerði
Reynisdóttur, og gefst þá auðvit-
að kostur á að stíga dans til kl.
01.00.
(7r Stundarfriði. Kristbjörg Kjeld, Helgi Skúlason og Lilja Þorvalds-
dóttir I hlutverkum slnum.
Siðustu sýningar á
Leikrit Guömundar Steinssonar
Stundarfriður, sem Þjóöleikhúsiö
hefur sýnt I allt vor hefur hlotið
miklar vinsældir. Hefur ávallt
veriö sýnt fyrir fullu húsi og eru
sýningar að nálgast 30. Leikári
Þjóðleikhússins er nú að ljúka og
veröa slðustu þrjársýningarnar á
Stundarfriöi um helgina, á föstu-
dags, laugardags- og sunnudags-
Stundarfriði
kvöld. Leikstjóri sýningarinnar
er Stefán Baldursson, leikmynd
og búningar eftir Þórunni S. Þor-
grímsdóttur. Með stærri hlutverk
fara Kristbjörg Kjeld, Helgi
Skúlason, Þorsteinn 0. Stephen-
sen, Guöbjörg Þorbjarnardóttir,
Guörún Glsladóttir, Sigurður
Sigurjónsson og Lilja Þorvalds-
dóttir.
Víkingar með útíhátíð
á Kolviðarhóli
Kás — Borgarráö hefur orðið við
erindi frá handknattleiksdeild
Knattspyrnufélagsins Vlkings,
um að lána landareign sina aö
Kolviöarhóli, undir útihátíð, sem
deildin hyggst halda I júlímánuði
nk. Verður j»r auk kvöld-
skemmtana lögð áhersla á
Iþróttakeppni margs konar, m.a.
handknattleiksmót.
Borgarráö samþykkti erindiö
með sömu skilmálum og áður
hafa gilt um sllk leyfi, þ.e. aö fé-
lagiðskuldbindi sig til að sjá um
að svæðið verði þrifið að hátlðinni
lokinni og allt fært I fyrra horf,
svo og ábyrgist skemmdir, sem
kunna að verða á mannvirkjum.
Laugardagskvöldin
Laugardagskvöldin verða meö
nokkuð öðrusniöi, þvi þá verða til
dæmis kynntir og framreiddir
réttir, sem Sigrún DavIBsdóttir
semur og segir fyrir um mat-
reiðslu á, og fá gestir uppskriftir
að þeim lambakjötsréttum, sem á
boðstólum eru hverju sinni. Ekki
er gert ráð fyrir að boðiö verði
upp á aðra kjötrétti en úr lamba-
kjöti, en jafnframt munu verða
framreiddir forréttir og eftirrétt-
ir, sem Sigrún hefur einnig sam-
ið.
Sunn ud a gsk völ din
A sunnudagskvöldum verður
boðið upp á fjölbreytt skemmti-
atriði. Þá veröur að visu enginn
matur framreiddur I Súlnasal, en
Stjörnusalur opinn, eins og
endranær.
Hæfileikarall
Hljómsveit Birgis og Dagblaðið
hafa tekið að sér að sjá um ýmsa
góða skemmtun þessi kvöld, m.a.
með „hæfileikaralli”, en það er
ætlað sem keppni milli þeirra,
sem hafa upp á ýmislegt
skemmtiefni að bjóða. Er svo til
ætlast að sllk atriði verði þrjú á
hverjusunnudagskvöldi oghlýtur
sá eða þeir aðilar sem skara fram
úr hverju sinni, verðlaun fyrir, og
loksveröur aðalvinningur I sam-
bandi viö lokarallið í september,
— sólarlandaferö, ásamt skot-
silfri.
Kunnir menn velja
músikina
Kunnir menn veröa fengnir til
þess að velja sér 10-12 lög á þess-
um sunnudagskvöldum og ein-
hverjir þeirra koma væntanlega I
heimsókn og leika sjálfir einhver
laganna eða skemmta á annan
hátt. Dansflokkur JSB sýnir auk
þessa nýja dansa hverju sinni og
svo veröur almennur dans til kl. 1
eftir miðnætti.
Rétt er að taka fram aö verðið á
þeim mat, sem framreiddur
veröur á föstudags og laugar-
dagskvöldum, veröur mjög I hóf
stillt.
Þátttakendur 1 kynningu þess-
ari á islenskum landbúnaðarvör-
um eru Stéttarsamband bænda,
Alafoss, Búvörudeild SIS, IBnaö-
ardeild SIS, Mjólkursamsalan og
Osta og smjörsalan.
GP/GÓ — Gunnar Friðriksson
myndiistarmaður á Sauöárkróki
efndi til sýningar i Safnahúsinu á
Sauðárkróki 16.-19. júni. Gunnar
sýndi rúmar 40 myndir á sýning-
unniogeruþær flestar máiaðar i
vatnslitum og oliupastel.
Einnig eru nokkrar I svartkrlt,
rauðkrlt og þurrkrlt. Gunnar er
fjölhæfur listamaöur og sýndi
þarna auk málverka, nokkrar
skúlptúrmyndir. A sýningunni
voru nokkrar höggmyndir og
þrjár gifsafsteypur. I höggmynd-
ir sfnar notar Gunnar aðallega
móbergsefni.
Aðsókn aö sýningunni var góö
og nokkur verk voru seld.
Gunnar Friörikssoner fæddur á
Sauöárkróki 9. mal 1942 og stund-
aöi nám I Myndlistar-oghandlða-
skólanum I Reykjavlk, en auk
þess sótti hann kennslustundir
hjá Asmundi Sveinssyni mynd-
höggvara. Hann hefur haldið
nokkrar sýningar áður og m.a. I
Bogasalnum 1 Reykjavlk.
Endurútgáfa
á Vísum
Ingu
Dóru
Vinnu-
ferð til
Kúbu
(JT ER komin á vegum Máls og
menningar 2. útgáfa af VtSUM
INGU DÓRU eftir Jóhannes úr
Kötlum. Sú bók kom fyrst út 1959
og hefur notið mikilla vinsælda.
Hún hefur að geyma 10 barna-
ljóð og margar teikningar eftir
Gunnar Ek. Innan skamms kem-
ur út ný prentun á ömmusögum,
og munu þá allar barnabadcur
Jóhannesar úr Kötlum verða fá-
anlegar, og einnig Ljóðasafn
hans, en 3. bindiö var endurprent-
að á þessu vori. Þess má geta, aö
Jóhannes úr Kötlum hefði orðið
áttræður4. nóvemberá þessuári.
GÓ — Undanfarin ár hefur
Vináttufélag tslendinga og
Kúbu (VIK) skipulagt þátt-
töku islendinga I samnor-
rænum vinnuferðum til
Kúbu.
U.þ.b. 200manns frá öllum
Norðurlöndunum taka þátt I
þessum ferðum sem farnar
eru i þeim tilgangi að kynn-
ast landi og þjóö og sýna
samstööu með kúbönsku
byltih gunni.
Næsta ferð verður farin
um miðjan desember á þessu
ári og gefst tlu Islendingum
kostur á þátttöku.
Útboð
Patrekshreppur óskar eftir tilboöum I byggingu leikskóla
á Patreksfirði.
Húsinu á að skila fokheldu og fullfrágengnu að utan eigi
slðar en 30. des. 1979.
Útboðsgögn veröa til afhendingar á skrifstofu Patreks-
hrepps og arkitektunum Guömundi Kr. Guðmundssyni og
Ölafi Sigurðssyni Þingholtsstræti 27, Reykjavlk.
Skilatrygging er kr. 30.000 þús.
Skila skal tilboöum á skrifstofu Patrekshrepps eigi siöar
en 3. júll og verða tilboöin opnuð þar kl. 14 þann sama dag.
Til sölu
2 ársgamlar kvigur, 4 giltur gotnar einu
sinni og tvisvar og göltur.
Létt vörubilsgrind meö hásingu og felg-
um.
Upplýsingar i sima 99-6367.