Fréttablaðið - 25.03.2007, Side 33

Fréttablaðið - 25.03.2007, Side 33
P IP A R • S ÍA • 7 0 6 0 4 TM Software er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki með skrifstofur í 11 löndum og um 450 starfsmenn. Fyrirtækið þjónar yfir 1.800 viðskiptavinum í fleiri en 20 löndum í fjórum heimsálfum. TM Software er í fremstu röð við þróun hugbúnaðar, ráðgjöf og rekstur upplýsingakerfa og býður fjölbreyttar lausnir í nánu samstarfi við helstu upplýsingatæknifyrirtæki heims. TM Software hefur undanfarin sex ár hlotið viðurkenningu sem eitt af 500 framsæknustu fyrirtækjum Evrópu. TM Software | Maritech á Íslandi er framsækið þjónustu- og ráðgjafarfyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Markmiðið fyrirtækisins er að aðstoða viðskiptavini við að ná framúrskarandi árangri með nýtingu upplýsingatækni. TM Software | Maritech er Microsoft Certified Gold Partner og hlaut nýlega Navision Excellence Award verðlaun á heimsráðstefnu Microsoft. Starfsmenn TM Software | Maritech á Íslandi eru tæplega 70 á skrifstofum í Kópavogi og á Akureyri. Hjá fyrirtækinu er unnið að þjónustu og þróun viðskiptalausna fyrir flestar greinar atvinnulífsins. Við leitum að öflugum háskólamenntuðum sérfræðingum með viðskipta- og/eða tæknimenntun. Í boði eru fjölbreytt og spennandi verkefni fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins sem og viðskiptavini erlendis. • Þekking á Microsoft lausnum er mikill kostur. Við vinnum m.a. með Dynamics Nav (Navision), MS SQL, Share Point, Dynamics CRM, Targit og Reporting Services Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir og fyrirspurnir. Nánari upplýsingar veita Torfi Markússon, starfsmannastjóri í síma 545 3000 eða torfi@t.is og Margrét Gunnlaugsdóttir, sviðsstjóri viðskiptasviðs í síma 545 3000 eða margretg@maritech.is. Umsóknir með ferilskrá óskast sendar til starfsmannastjóra torfi@t.is, merktar TM Software | Maritech fyrir 10. apríl nk. www.maritech.is Tækifærið þitt? > Ráðgjöf, verkefnastjórn og þjónusta > Hugbúnaðargerð, nýþróun og aðlaganir Við bjóðum og leggjum áherslu á: • Frábæran starfsanda og liðsheild • Góða starfsaðstöðu • Sveigjanlegan og fjölskylduvænan vinnutíma • Símenntun í starfi • Virka endurmenntunarstefnu • Margvísleg tækifæri til starfsþróunar • Laun og önnur starfskjör eftir samkomulagi www.toyota.is Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 2-8 200 Kó Komdu og keyrðu með okkur Toyota Kópavogi er innflytjandi Toyota bifreiða, vara- og aukahluta. Starfsmenn fyrirtækisins byggja gildi sín og viðmið í starfi á The Toyota Way: Stjórnunar-, þjónustu- og mannauðsstefnu Toyota. Gagnkvæm virðing og náin samvinna eru hornsteinar í daglegri starfsemi Toyota á Íslandi. Hverri áskorun er tekið fagnandi hendi og leita starfsmenn stöðugt leiða til að tryggja áframhaldandi framfarir í öllu því sem við kemur starfsemi fyrirtækisins og þjónustu gagnvart viðskiptavinum þess. Spennandi atvinnutækifæri hjá Toyota Kópavogi Starfsmaður í pökkun á Varahlutalager Starfssvið: · Taka til pantanir · Frágangur á vörum og pappírum · Aðstoð við gámavinnu Hæfniskröfur · Tölvukunnátta · Skipulagshæfileikar · Nákvæmni í starfi Vinnutími er frá kl. 8-18. Starfsmaður á Breytingaverkstæði Starfssvið: · Breytingar á jeppum Hæfniskröfur: · Reynsla af vinnu við breytingar á jeppum er skilyrði Vinnutími er frá kl. 8-17. Toyota Kópavogi leitar eftir einstaklingum sem eru metnaðargjarnir, samviskusamir og jákvæðir, liprir í mannlegum samskiptum og með ríka þjónustulund. Í boði eru spennandi framtíðarstörf hjá framsæknu fyrirtæki sem hefur á að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki. Umsóknarfrestur rennur út 2. apríl. Áhugasamir sendi umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið atvinna@toyota.is. Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir í síma 570 5070. ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 3 68 76 0 3 /0 7

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.