Fréttablaðið - 25.03.2007, Page 78

Fréttablaðið - 25.03.2007, Page 78
M argvíslegir erfiðleikar fylgja því að fæðast af röngu kyni og fylgir því oft áralöng barátta, fordómar, sjálfsvörn og líkamlegar breytingar. Talað er um kynáttunarvanda þegar átt er við skynjun einstaklings á sjálf- um sér sem karlkyns eða kven- kyns. Einstaklingarnir geta haft sterk og þrálát óþægindi í sam- bandi við líkamlegt kyn sitt, löngun til að hafa líkama hins kynsins, óþægindi gagnvart kyn- hlutverki sínu og óska þess heitt að aðrir sjái sig í því kyni. Þessi vandi hefur oft staðið frá því í æsku en sérstaklega verða ungl- ingsárin erfið því að þá breytist líkaminn í karls- eða konulíkama og um leið er skrúfað fyrir vænt- ingar um að verða af réttu kyni á fullorðinsaldri. Transsexúalismi hefur ekkert með kynhneigð, kynlíf eða kyn- hegðun að gera. Einstaklingar sem fæðast í röngum líkama verða að ganga í gegnum margar breytingar, bæði líffræðilegar og líka breytingar sem snúa að lagalegri stöðu, til dæmis breytingu á nafni. Ekki bætir úr skák að engin lög segja til um hvernig allar þessar breyt- ingar eigi að ganga fyrir sig og virkar það nánast eins og trans- sexúalistar séu ekki til, eins og kemur fram í ritgerðinni, hvað þá að kveðið sé á um rétt þeirra. Í dag er því verið að fara fram- hjá lögum eða notast við lög sem eiga engan veginn við um þetta fólk, til dæmis lög um afkynjun og kynferðisofbeldi. Kynleiðréttingaraðgerð er áhættusöm. Hjá einstakling- um sem fara í konu-í-karl að- gerð er myndaður getnaðarlimur frá svæðinu umhverfis snípinn. Svæðið er skorið og losað frá til að mynda liminn og taugaendum og næmni haldið við. Limurinn er oftast svo lítill að ekki er hægt að stunda samfarir. Aðrar breytinga- leiðir eru mögulegar en það eru flóknari aðgerðir. Hjá einstaklingum sem fara í karl-í-konu aðgerðir er húð getn- aðarlimsins notuð til að mynda leggöng og búið til op fyrir þau. Snípur er myndaður úr tauga- endum og húð frá getnaðarlimn- um. Flestir einstaklingarnir geta stundað fullnægjandi kynlíf og kynfærin líta eins út og á líffræði- legum konum. Minnst sex Íslendingar hafa lokið kynleiðréttingaraðgerðum en aðeins tveir hér á landi, hvor í sína áttina. Einstaklingur sem vill fara í kynleiðréttingu þarf að hafa náð 18 ára aldri og hafa búið í réttu kynhlutverki í minnst tvö ár. Kynleiðrétting er algjörlega í höndum vinnuhóps fimm karl- kyns lækna sem vinna í sjálfboða- vinnu. Læknarnir skilgreina hverj- ir eru transsexúalistar, hvað það er að vera kona og karl og hverj- ir eru tilbúnir til að gangast undir kynleiðréttingu og fá að gera það. Í ritgerðinni kemur greinilega fram að aðgerðirnar byggja á vel- vilja Landlæknis og læknahóps- ins enda hvorki lög né formlegar reglur fyrir hendi sem hægt er að styðjast við. Vinnuhópurinn fer eftir dönskum vinnureglum sem hafa dregist aftur úr í þróuninni. „Má því ætla að endurskoðun á reglum og sveigjanleika vinnu- hópsins hér á landi sé tímabær,“ segir Svandís Anna í ritgerð sinni. Kynleiðréttingaraðgerðin er gerð á spítala. Hér á landi byggist fyrirkomulagið á góðvild Land- læknis sem sér til þess að sjúk- lingurinn fari í og komist í gegn- um aðgerðina. Kostnaðurinn er greiddur af Tryggingastofnun ríkisins. Stofnunin greiðir þó að- eins fyrir aðgerðina sjálfa, ekki aðrar aðgerðir sem tilheyra, til dæmis brjóstastækkunaraðgerð- ir, og er þannig skemmra á veg komin en tryggingastofnanir er- lendis. Aðeins einn skurðlæknir gerir leiðréttingaraðgerðir hér á landi og eru aðgerðirnar ekki nógu margar til að halda honum við svo að leitað hefur verið eftir samstarfi við Danmörku. Svandís Anna segir að lífið sé ekki fullkomið þótt leiðréttingar- aðgerð sé lokið. Lífið geti orðið einmanalegt og erfitt geti reynst að vera stimplaður „kynskipting- ur“, sérstaklega þegar viðkom- andi skilgreinir sjálfan sig opin- berlega sem transsexúalista. „En kjarkurinn sem það fólk sýnir er ómetanlegur í baráttunni gegn fordómum og hræðslu,“ segir í ritgerðinni. Erlendis hafa komið upp mál þar sem fólk vill ganga í gegn- um leiðréttingarferlið án þess að fara í skurðaðgerð en slík mál hafa ekki komið upp hér á landi. Ekki er víst að það væri hægt, til dæmis þar sem ekki eru til nein lög eða reglur um nafnbreytingu þeirra sem ætla að fara í aðgerð eða þá sem vilja nafnabreytingu án aðgerðar. „Það er ekki í boði hér á landi,“ segir Svandís Anna í ritgerð sinni. Svandís Anna gerir fordóma að umtalsefni og segir að fólk sé dæmt eftir kynferði, til dæmis þegar þetta fólk sæki um nafna- breytingu, því að það sé ekki leyft fyrr en kynfærum hafi verið breytt. Þá sendi vinnuhóp- ur lækna bréf um að einstakling- urinn séu kominn í rétt kynhlut- verk. Breytingin gerist þá sam- dægurs. „Í stað þess að sjá hugrekki fólks í því að bera utan á sér sinn innri veruleika er talið að fólk sé svikult ef það samræmir ekki kyngervi og kynfæri við það sem telst „eðlilegt“. Því er ekki að furða að fólk gangi í gegnum erf- iðar aðgerðir og langt ferli til að falla inn í ríkjandi kerfi,“ segir hún. Í lagalegu tómarúmi Einstaklingar sem vilja leiðrétta kyn sitt á Ís- landi eru í lagalegu tómarúmi og hafa engin lög eða reglur að styðjast við þegar kyn er leiðrétt. Svandís Anna Sigurðardóttir hefur unnið BA-ritgerð um þetta mál. Guðrún Helga Sigurðardóttir kynnti sér verk hennar og las um þá erfiðleika sem fylgja því að fæðast í röngum líkama, hvernig það er leiðrétt og hvernig staðið er að slíku hér á landi. Í stað þess að sjá hugrekki fólks í því að bera utan á sér sinn innri veruleika er talið að fólk sé svikult ef það samræmir ekki kyngervi og kynfæri við það sem telst „eðlilegt“.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.