Fréttablaðið - 25.03.2007, Blaðsíða 86
Do you want to study in Denmark?
Do you want to study in Denmark in an international
environment?
Are you looking for a programme which gives you good
job opportunities?
Are you interested in Fashion Design?
Are you looking for a short education at university
level?
Do as Kristin Holmgeirsdóttir and other young students.
Every year The Academy of Southern Denmark in Søn-
derborg welcomes students from Iceland. Come and join
us! Sønderborg has an active ”Íslendingafélag”.
Visit our website www.sdes.dk to read more about your
future in Denmark.
Do you want to study
Fashion Design?
Grundtvigs Allé 88
DK-6400 Sønderborg
Tlf. +45 7412 4141
www.sdes.dk
Undankeppni EM:
Guðmundur Stephen-
sen Víkingi undirstrikaði yfir-
burði sína í íslenska borðtennis-
heiminum í gær þegar hann vann
auðveldan sigur á Grand prix-
móti Rafkaupa.
Guðmundur lagði Kristján Jón-
asson Víkingi í úrslitum, 4-0, og
allar loturnar næsta auðveldlega.
Í kvennaflokki sigraði Guðrún
Björnsdóttir KR en hún lagði Vík-
inginn Magneu Ólafsdóttur í úr-
slitum, 4-1.
Guðmundur
óstöðvandi
DHL-deild karla:
DHL-deild kvenna:
Það er af sem áður
var. Handboltastórveldið Haukar
heldur áfram að valda vonbrigð-
um og tap gegn Akureyri, 27-28, á
heimavelli í gær gæti reynst dýr-
keypt. Ef Fylkir sigrar ÍR í dag fer
Fylkir upp að hlið Hauka en þessi
lið mætast svo um næstu helgi í
leik sem verður klárlega upp á líf
og dauða fyrir bæði lið.
Staða Hauka í deildinni er mjög
svo áhugaverð en liðið er vel
mannað og ótrúlegt að Páll Ólafs-
son sé á góðri leið með að sökkva
því. Hans tími var liðinn fyrir
nokkuð löngu - það sáu flestir - og
afskiptaleysi stjórnarinnar gæti
reynst félaginu dýrkeypt því Páll
á engin svör, hann virðist ekki
ná til leikmanna, liðið er heillum
horfið og höndlar engan veginn
spennuleiki.
Þeir tapast nánast allir og leik-
urinn í gær var þar engin undan-
tekning. Því er ekki að neita að
falldraugurinn er á sveimi í Firð-
inum.
Haukarnir voru með unninn
leik gegn Akureyri í gær en glut-
ruðu leiknum niður á hreint ótrú-
legan hátt á síðustu tíu mínútun-
um þar sem leikur liðsins var ráð-
leysislegur og hvorki leikmenn
né þjálfari áttu svör við sterkum
varnarleik Norðanmanna.
Lykilmenn halda áfram að valda
vonbrigðum og verulegur skort-
ur er á sjálfstrausti hjá mönnum
sem hafa hingað til átt að vera
með þeim efnilegri eða betri hér
á landi.
Haukar eru að sögn gjaldþrota
utan vallar og eru það klárlega
innan vallar. Því er ekki nema von
þótt menn spyrji sig að því hvort
fall úr úrvalsdeild geti riðið hand-
knattleiksdeildinni að fullu.
Handboltastórveldið Haukar riðar til falls eftir tap gegn Akureyri í gær, 27-28.
Liðið gæti verið komið í fallsæti í dag. Akureyri svo gott sem sloppið við fall.
Stjörnustúlkur eru
komnar með níu fingur á Ís-
landsmeistarabikarinn. Það
varð ljóst eftir að liðið lagði
Hauka sannfærandi, 26-32, á Ás-
völlum í gær og síðar um dag-
inn tapaði Grótta. Leikurinn var
í járnum framan af en Stjarn-
an skreið síðan fram úr í síðari
hálfleik og leit aldrei til baka.
Stjarnan á fjóra leiki eftir af
mótinu og þar af eru þrír gegn
þrem neðstu liðum deildarinnar.
Meiðsli setja ekki strik í reikn-
inginn hjá Stjörnunni því liðið
hefur yfir mun meiri breidd að
ráða en önnur lið deildarinnar.
Stjarnan er með langbesta
mannskapinn í deildinni og það
hefði verið kjaftshögg fyrir Að-
alstein þjálfara ef hann hefði
ekki skilað titlinum í ár sem er
nú innan seilingar. Þrátt fyrir
það verður ekki tekið af honum
að stelpurnar hans eru mjög
vel þjálfaðar og liðið leikur
skemmtilegan bolta.
Breiddin og líkamlegi styrk-
urinn kom vel í ljós í gær þegar
varamennirnir Kristín Guð-
mundsdóttir og Sólveig Lára
Kjærnested sáu um að afgreiða
Haukaliðið.
Stjörnuliðið var líka á allt
öðrum hraða og hreinlega
keyrði yfir Haukastúlkur.
Stjörnustúlkur eru vel að vænt-
anlegum titli komnar. Til ham-
ingju Stjörnustúlkur.
Kristín og Sólveig Lára
sáu um Haukastúlkur