Fréttablaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 9 KENNSLA Á VINNUSTAÐ Meginmarkmiðið er að auka færni kennara á vinnustað. Fjallað verður um skipulag vinnustaðanáms með hliðsjón af ferilbókum greinanna og um ávinning af innleiðingu fer- ilbóka. Þátttakendur fá þjálfun í kennslufræði vinnustaðanáms auk viðtals- og samskiptatækni. Námskeiðið hefst 13. apríl að Hall- veigarstíg. FÆÐUÓÞOL OG FÆÐU- OFNÆMI Tilgangur námskeiðs- ins er að upplýsa þátttakendur um fæðuofnæmi og fæðuóþol, ein- kenni og meðferð. Fjallað verður um helstu fæðuofnæmisvaka og úrræði hvað varðar fæðismeðferð og matreiðslu. Námskeiðið hefst hinn 26. apríl í Hótel- og matvæla- skólanum. MATREIÐSLA Á GRÆN- METISFÆÐI Grunnnám- skeið í matreiðslu á grænmetis- fæði. Matreiddir eru grænmetis- réttir þar sem aðaluppistaðan er ferskt grænmeti, kryddjurtir, baun- ir og linsur. Kynntar verða ýmsar matvörur sem eru algengar í mat- reiðslu grænmetisfæðis, líkt og tófú, sojakjöt, bankabygg, baunir, linsubaunir og kúskús. Farið verður yfir notkun krydda og kryddjurta og ýmsar eldunaraðferðir kynntar. Námskeiðið hefst hinn 17. apríl í Hótel- og matvælaskólanum. HLJÓÐ OG HLJÓÐDEYF- ING Í LOFTRÆSTIKERF- UM Farið er yfir helstu fræðilega þætti varðandi hljóð. Þá er farið í einfalda hljóðútreikninga og síðan fjallað um uppruna hljóðs í loft- ræstikerfum og aðgerðir gegn hljóðmyndun. Námskeiðið er nauðsynlegt fyrir alla sem fást við hönnun og uppsetningu loftræsti- kerfa. Námskeiðið hefst hinn 30. apríl að Hallveigarstíg 1. GIFSVEGGIR Á nám- skeiðinu er fjallað um uppbygg- ingu gifsveggja. Farið í uppsetn- ingu gifsveggja og vinnuaðferð- ir við klæðningu með gifsplötum. Kynntir hljóðeinangrandi gifs- veggir. Kynnt klæðningarefnið gifs, verkfæri, festingar og hjálp- artæki. Námskeiðið hefst hinn 14. apríl og er haldið að Skipagötu 14 á Akureyri. HJÓLASTILLINGAR OG BÚNAÐUR Námskeiðið skipt- ist í nokkra þætti. Farið er yfir upp- byggingu hjólabúnaðar og hjóla- horna og framkvæmd skoðun- ar og stillinga á hjólabúnaði. Gert er mat á hugsanlegum skekkj- um í burðarvirki og farið yfir útfyll- ingu hjólastöðuvottorðs. Áhersla er lögð á verklegar æfingar. Nám- skeiðið hefst hinn 4. maí í Bíl- greinahúsinu. ÖKURITAR 1 Námskeiðið skiptist í nokkra þætti. Farið er ítar- lega í virkni og prófanir ökurita og lestur aksturskorta. Farið yfir útfyll- ingar úttektarblaða og merkingar ökurita. Fjallað verður um innsigli og um lög og reglur er fjalla um ökurita og notkun þeirra. Nám- skeiðið hefst hinn 12. apríl í Bíl- greinahúsinu. Nánari upplýsingar á www.idan.is Námskeið á vegum Iðunnar Samtök iðnaðarins kynntu í byrjun október í fyrra íslenskan prentiðn- að á árlegri bókasýningu í Frank- furt, Frankfurter Buchmesse. Sýningin er sú stærsta sinnar teg- undar í heiminum en kynningin á íslenskum prentiðnaði fór fram á kynningarbás Félags íslenskra bókaútgefenda. Í tilefni sýningarinnar var hrint af stað vefsíðunni www.si.is/ice- landprint. Þar má finna ýmsar upplýsingar á ensku um íslenskan prentiðnað og fyrirtæki sem starfa innan geirans á Íslandi. Væntan- lega munu Samtök iðnaðarins þróa þessa hugmynd frekar fyrir bóka- sýninguna í Frankfurt sem haldin verður í október á þessu ári. Bókasýningin í Frankfurt á sér langa sögu. Árið 1949 fór fyrsta eiginlega sýningin fram en þó má segja að sagan nái nærri 500 ár aftur í tímann, til þess þegar Johannes Gutenberg umturnaði prentiðninni. Síðan þá hefur Frankfurt og svæðið um kring ein- kennst af grósku í bóka- útgáfu og prentiðnaði. Bókaútgefendur leita út fyrir landsteinana Vefsíðan www.si.is/icelandprint var sett á laggirnar í tilefni bóka- sýningar í Frankfurt. íslenskur iðnaður fréttablaðið 010100101010 0101010ATGC10101010ATGC 1010ATG 01010A 10ATG 01010101010ATGC1010 01010ATGC10ATGC0 0101010ATGC 010ATGC1010 ATGC01010A Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja - Samtök sprotafyrirtækja - Samtök upplýsingatæknifyrirtækja Framtíðin felst í hátækni Sjá áskorun til ríkisstjórnarinnar og stefnu SI og tillögur á www.si.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.