Fréttablaðið - 28.03.2007, Qupperneq 18
28. MARS 2007 MIÐVIKUDAGUR10 fréttablaðið íslenskur iðnaður
Samtök iðnaðarins sendu frá sér
yfirlýsingu í síðustu viku varðandi
sjónvarpsauglýsingar Framtíðar-
landsins, sem berst gegn stækkun
álvers í Hafnarfirði. Vilja samtök-
in meina að ryki sé slegið í augu
fólks.
Segir meðal annars að þó að rétt
sé að halda því fram að þrjátíu
prósent af allri álframleiðslu fari í
einnota umbúðir sé það mikil ein-
földun og gefi ranga mynd af eig-
inleikum áls til endurvinnslu.
Um sextíu prósent alls þess áls
sem notað sé í einnota umbúðir
sé endurunnið. Hlutfallið sé mjög
breytilegt eftir löndum, allt frá 25
prósentum sums staðar í Evrópu
upp í áttatíu prósent hér á landi.
Þetta þýði að stærstur hluti þess
áls sem notað er í umbúðir stuðli
að orkusparnaði til framtíðar. Það
sama verði ekki sagt um margar
aðrar gerðir umbúða.
Þá segir í yfirlýsingunni: „Notk-
un áls í heiminum nam um 63,9
milljónum tonna árið 2005. Fram-
leiðslan í heiminum það ár var
hins vegar 31,6 milljónir tonna.
Þetta þýðir að 32,3 milljónir tonna
voru endurunnið ál. Í reynd eru
um 75% af öllu því áli, sem fram-
leitt hefur verið frá upphafi, enn
í notkun. Þetta má fá staðfest hjá
Global Aluminium Recycling,
GARC.“
Samtök iðnaðarins hafa áður
lýst efasemdum um fyrirhugaða
atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði
um stækkun álvers í Straumsvík.
Ekki af þeim sökum að Samtökin
séu á móti lýðræðislegum vinnu-
brögðum, heldur af því að í þessu
tilviki sé um að ræða íþyngjandi
afturvirkar reglur sem eru sett-
ar eftir að Alcan hóf undirbúing
stækkunar á grundvelli gildandi
leikreglna.
Ryki slegið í
augu áhorfenda
Framtíðarlandið berst gegn stækkun álversins og hefur látið gera sjónvarps-
auglýsingar til þess.
Auður Hallgrímsdóttir var ný-
lega kosin í stjórn Málms, sam-
taka fyrirtækja í málm- og skipa-
iðnaði. Hún er fyrsta konan til að
gegna því starfi og finnst sumum
að þar hafi síðasta karlavígið fall-
ið. Auður hefur rekið Járnsmiðju
Óðins ásamt eiginmanni sínum síð-
astliðin tuttugu ár. „Maður hefur
auðvitað mikinn áhuga á málefn-
um málmsmíði á Íslandi og vill að
vegur þess iðnaðar sé sem mest-
ur og bestur. Ekki vil ég nú taka
undir það að þarna hafi fallið eitt-
hvert karlavígi, hins vegar er það
mikil framsýni að vilja fá konur
í stjórn hjá félagi þar sem mjög
fáar konur eru félagsmenn,“ segir
Auður og bætir við að karlarnir í
stjórninni hafi allir komið til sín
og boðið sig hjartanlega velkomna
á fyrsta fundinum. „Ég upplifði þá
alla mjög jákvæða og hlakka til að
vinna með þeim. Það liggur í hlut-
arins eðli að hver einstaklingur
hefur mismunandi sýn á hlutina
og konur hafa kannski öðruvísi
sýn en karlar, og þess vegna geta
karlar og konur gert svo mikið af
flottum hlutum saman. Þetta er
augljóslega framsýnt félag sem
vill gera hlutina betur.“
Sjálf vinnur Auður ekki „á gólf-
inu“ eins og talað er um, heldur
kemur hún aðeins að rekstri og
stjórnun. Hins vegar vinnur dóttir
hennar við málmsmíði. „Hún er
alveg á fullu að logsjóða og skera,
þannig að konur geta alveg unnið í
þessu. Maður þarf ekkert endilega
að vera líkamlega sterkur, heldur
handlaginn. Til að starfa í þessu
þarf einfaldlega að vera góður
handverksmaður.“ - nrg
Fyrsta konan í
stjórn Málms
Auður Hallgrímsdóttir ásamt dóttur sinni Hallgerði Kötu Óðinsdóttur málmiðnaðarkonu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Konukvöld Fjarðar
Miðvikudaginn 28. mars frá kl. 20-23
Kynnir
Gestir
Lalli Grínari
Siggi og Sara Gullverðlaunahafar
í latín dönsum á Kobenhagen open
Við ætlum að taka vel á móti konum og bjóða góð
Fyrst og fremst ætlum við að skemmta okkur saman.
Konur mætum
og skemmtum okkur saman.
Firði Hafnarfirði S: 555-4420