Tíminn - 15.08.1979, Page 1
Rfkisstjórnin óskar eftir formlegum samningaviöræöum við Norömenn um Jan Mayen:
Norömenn viðurkenni helm
ingsrétt íslendinga
Kás — I gær náðist loks-
ins samkomulag i ríkis-
stjórninni um að óska
eftir viðræðum við Norð-
menn um Jan Mayen
málið/ eftir að Alþýðu-
bandalagsmenn höfðu
tvívegis farið fram á
frestun þess. I samþykkt
ríkisstjórnarinnar er
gengið út frá þvi, að is-
lendingar muni ekki
viðurkenna 200 mílna
efnahagslögsögu Norð-
manna við Jan Mayen,
nema samningar hafi áð-
ur tekist um nýtingarrétt
þessara tveggja þjóða á
svæðinu, bæði hvað snert-
ir auðlindir hafsins og
sjávarins. Er sérstaklega
tekið fram, að við það
skuli miðað að viðurkenn-
ing fáist á helmingsrétti
Islendinga til veiði fisk-
stofna á svæðinu.
Verður viðræðunefnd skipuð
næstu dagana, ef jákvætt svar
fæst frá Norðmönnum, og muni
sitja í henni fulltrúar allra
stjórnarflokkanna, ásamt full-
trúa frá stjórnarandstöðunni.
Alþýðubandalagsráðherrarnir
fengu þvi framgengt að ekki
verður um ráðherranefnd að
ræða, þar sem þeir töldu sig
ekki eiga heimangengt þessa
dagana. Væntanlega verður þvl
Lúðvik Jósepsson, fulltrúi Al-
þýðubandalagsins I Landhelgis-
nefnd, fulltrúi þess flokks f við-
ræðunefndinni.
i gær sendi Benedikt Gröndal,
utanrikisráðherra, skeyti til
Osló, þar sem formlega er fariö
fram á viðræður við Norðmenn.
Ekki er búist við svari fyrr en
seinni hluta dags i dag. Þó að
svar Norðmanna verði algjör-
lega jákvætt, má búast við að
viðræðurnar sjálfar hefjist ekki
fyrr en I byrjun næstu viku, þar
sem eftir á að ganga frá ýmsum
formsatriðum, svo sem fyrir-
komulagi viðræönanna, stað
þeirra og tima.
,,Það er meginatriðið að við-
ræðurnar verði ákveðnar, og
Norðmenn stöðvi loðnuveiðarn-
ar. Þegar þetta tvennt er fengiö,
þá skiptir tlminn ekki lengur
eins miklu máli”, sagði Bene-
dikt Gröndal I samtali við Tim-
ann I gær, en árdegis I dag
heldur hann utan til Danmerkur
f opinbera heimsókn. Benedikt
er væntanlegur aftur til landsins
nk. laugardag, en á meðan
gegnir Kjartan Jóhannsson,
sjávarútvegsráðherra, embætti
utanrikisráðherra.
Von á sérstakri
bókun forsætís
ráðherra,
Þrír á
mótíog
tveir
með-
mæltír
AM — ,, Ég mun senda frá
mér bókun vegna þessa
máls innan skamms og
hennar gæti verið að vænta
eftir fimmtudagsfund í
ríkisstjórninni", sagði
ólafur Jóhannesson, for-
sætisráðherra, þegar blað-
ið spurði hann í gær álits á
friðun Bernhöftstorfunn-
ar.
Forsætisráðherra vildi ekki
ræöa efni þessarar bókunar
strax, en dró ekki dul á að hann
væri ákvörðun menntamálaráð-
herra ósammála.
„Það er mishermi hjá mennta-
málaráöherra, að mikill meiri-
hluti hafi veriö fyrir þessu innan
stjórnarinnar,” sagöi Ólafur. „Af
viðstöddum voru þrir á móti og
tveir með og tveir tóku ekki af-
stöðu til þess hvort málið ætti að
koma til Alþingis.”
Stjórnvöld synja beiðni um hækkun fargjalda SVR
Veldur óhjákvæmilega sam-
drættí í rekstri SVR
segir i haröoröri ályktun frá borgarráði
Kás- Þrátt fyrir að útlit sé
fyrir allt að eins milljarðs
króna rekstrarhalla á
Strætisvögnum Reykjavík-
urá þessu ári, hafa stjórn-
völd, þ.e. samgönguráðu-
neytíð og ríkisstjórn,
synjað borgaryfirvöldum
um hækkun á fargjöldum
strætisvagna.
Á fundi borgarráðs í
gær, var samþykkt harð-
orð ályktun að því tilefni. I
henni segir m.a.: „Borgar-
ráð mótmælir mjög ein-
dregið synjun stjórnvalda
á beiðni um hækkun
strætisvagnanna til að geta
haldið uppi nauðsynlegu
almenningsvagnakerfi.
Telur borgarráð enn
brýnna nú vegna sihækkandi
bensinverðs að strætisvagnarnir
geti rekið sem besta þjónustu.
Fáist ekki eðlileg hækkun á far-
gjöJdum strætisvagna til sam-
ræmis viö aörar hækkanir, hlytur
það ohjákvæmilega að valda
samdrætti I rekstri þessa nauð-
synlega þjónustufyrirtækis.”
Verður Amason / Asgeir ekki með Hættan af
að eyðimörk gegn Hollandi kjamorkunni
— sjá bls. 6 — sjá bls. 11 — sjá bls. 8-9