Fréttablaðið - 28.03.2007, Qupperneq 28
MARKAÐURINN 28. MARS 2007 MIÐVIKUDAGUR12
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Debenhams á Drottningargötunni var lokað um
miðjan janúar. Strax eftir lokun var hafist handa
við að breyta búðinni. Åke Hellqvist og hans fólk
breytti búðinni í verslunarmiðstöð tísku fyrir ungt
fólk á níu vikum. „Við gerðum þetta á íslenskum
hraða,“ segir Åke og glottir þreytulega, en yfir-
vinnugleði þar í landi er ekki sú sama og þekkist
á Íslandi.
Allt er að smella fyrir kvöldið og von á fjölda
gesta. „Kändisarnir“ eins og Svíar kalla fræga
fólkið tínist inn eftir rauða dreglinum.
Debenhams náði ekki fótfestu á markaðnum.
Jón Ásgeir Jóhannesson segir að Debenhams hafi
eftir að það komst í einkaeigu sett stefnuna á Bret-
land og svo vaxtarmarkaði. Áherslan hafi því ekki
orðið á fyrirbæri eins og verslunina í Stokkhólmi.
Baugur og Arcadia tóku því höndum saman og
settu vörumerki sín fyrir ungt fólk á einn stað.
„Þetta er spennandi verkefni og ef þessi tilraun
gengur upp munum við halda áfram að opna slíkar
verslanir í helstu stórborgum,“ segir Jón Ásgeir.
Vöruhúsið er í eigu Baugs og fékk nafnið SOUK.
Nafnið er fengið frá Austurlöndum og þýðir
markaðstorg eða samkomustaður. Hugmyndin er
að búa til deiglu tísku og lífsstíls ungs fólks í mið-
bæjum stórborga. Reyndar má leika sér með nafn-
ið og lesa það „so UK“ enda eru vörumerki húss-
ins bresk.
Verslunarmiðstöðin fyllist hratt af fólki og Åke
og Gunnar Sigurðsson, sem stýrir smásölufjár-
festingum Baugs, stíga á svið og ávarpa gesti með
tilheyrandi þökkum til þeirra sem lagt hafa nótt
við dag til að hægt sé að halda upp á daginn. Gest-
ir taka nýrri búð vel og suðið í afgreiðslukössun-
um byrjar þegar, enda margir sem ekki standast
freistinguna að kaupa svolítið í leiðinni, enda þótt
samkoman sé meira hugsuð sem partí. - hh
Markaðstorg í miðju Stokkhólms
Baugur og Arcadia sameina krafta sína í nýju vöruhúsi í Stokkhólmi.
Souk heitir það og þýðir samkomustaður eða markaðstorg.
G
ra
fik
a
– markviss dreifing –
Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími 412 7500, www.distica.is
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími: 566 8800 • www.vidskiptahusid.is
Áhugasamir hafið samband við:
Fyrirtækjasvið Viðskiptahússins annast:
• Kaup og sölu fyrirtækja eða rekstrareininga og samrunaferli.
• Kaup og sölu á fasteignum þeim tengdum og byggingalóðum fyrir
atvinnuhúsnæði, landareignum og bújörðum.
• Fjármögnun verkefna.
Hörð Hauksson Gsm: 896 5486 • Atla Viðar Jónsson Gsm: 898 2533
og Gísla Bogason Gsm: 863 0509
Höfum til sölumeðferðar
nokkur hótel m.a.
á höfuðborgarsvæðinu
og á austurlandi
Jafnframt leitum við að
góðu hóteli í Reykjavík
fyrir fjársterkan aðila
Fr
um
Nú geta fyrirtæki skilað staðgreiðslu skatta beint til RSK í gegnum fyrirtækjabanka
SPRON og sparað sér tíma og fyrirhöfn.
Kynntu þér málið á spron.is
A
RG
U
S
/
07
-0
23
5
Staðgreiðsla skatta – einfalt mál!
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is
NÝTT