Fréttablaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 32
80% AAA 57%B A N K A H Ó L F I Ð
Í nýjasta tölublaði Vísbendingar
veltir ritstjóri blaðsins fyrir sér
afdrifum þeirra sem ná árangri
í lífinu, hvort árangurinn kunni
að draga úr fólki kraft eða hafa
jafnvel neikvæð áhrif síðar á
æviskeiðinu. Þannig virðist
eftirlaunafrumvarp þingmanna
benda til að þeir eigi erfitt
með að fá góða vinnu að þing-
mennsku afstaðinni. Velt er upp
spurningunni hvort það sama
eigi við í viðskiptum. „Margir
eru kannski „kalnir á hjarta“
eftir að hafa náð (eða ekki náð)
á tindinn. En þeir eiga þó oft
peningana eftir. Og líklega er
skárra að vera ríkur og dapur en
fátækur og dapur.“
Forgengileiki
hamingjunnar
Frændur okkar hjá Royal Bank
of Scotland hafa skikkað starfs-
menn sína til að opna launareikn-
ing hjá bankanum. Fjölmiðlar
í Bretlandi segja starfsmenn
bankans, sem kjósa að halda
launareikningi sínum opnum
hjá samkeppnisaðilum, eiga yfir
höfði sér áminningu. Starfsmenn
Royal Bank of Scotland hafa
brugðist heldur illa við þessari
ósk yfirstjórnarinnar og hafa í
tíma og ótíma kvartað til verka-
lýðsfélaga vegna málsins.
Þótt þetta þyki nokkur nýlunda
í Skotlandi er raunin önnur hér
því heyrst hefur að vænst sé til
þess að starfsmenn flestra fjár-
málafyrirtækja hér hafi launa-
reikning sinn hjá launaveitand-
anum. Annað væri nú undarlegt.
Skotarnir
seinir til
VR hefur ákveðið að lækka
félagsgjöld félagsmanna úr einu
prósenti af heildarlaunum í 0,7
prósent hinn 1. júlí næstkom-
andi eftir að aðalfundur sam-
þykkti tillögu þess efnis. Þetta
er gert í kjölfar þess methagn-
aðar sem varð á rekstri VR í
fyrra en félagið hagnaðist þá
um 980 milljónir, eða um 38
þúsund krónur á hvern félags-
mann. „Lækkun félagsgjaldsins
til framtíðar er því liður í því að
láta félagsmenn njóta þessarar
góðu rekstrarafkomu,“ segir í
frétt frá VR. Gaman verður að
sjá hvort önnur stéttarfélög skili
jafngóðu búi og VR fyrir nýliðið
starfsár og hvort atvinnurek-
endur krefjist sambærilegra
lækkana við gerð næstu kjara-
samninga. Þeir greiða nú 1,4
prósenta mótframlag til VR.
Engin kreppa
hjá VR
Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040
www.hirz lan. is
Skrifstofuhúsgögn
....á miklu betra verði !
Hæðarstillanleg skrifborð frá kr. 31.300
Samstæðan kr. 56.400
Beyki
Kirsuber
Hlynur
Hnota
Dönsku Prima línunni má raða saman á ótal
vegu. Níðsterk og endingargóð húsgögn á
mjög góðu verði, til afhendingar strax.
SPRON Verðbréf
Peningamarkaðssjóður SPRON
15,2% ávöxtun*
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
–
9
0
7
0
3
5
6
Langflottastur!
*Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 01.09. 2006 til 01.03. 2007.