Tíminn - 09.10.1979, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.10.1979, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 9. október 1979 7 MliíllilQ W ■ 'y| ■■ ; - H og ný stefna i húsnæðismálum, svosemmarkvissari útlántilým- issa aðila, svo sem öryrkja og fatlaöra, ibúöa fyrir aldraða og elliheimila, endurbóta á eldra húsnæöi, orkusparnaöar o.fl. Við fyrstu sýn virðist mér lánstimi i öllum lánaflokkum yfirleitt of stuttur, sem mun gera mörgum ókleift að nota sér löggjöfina til úrhóta i húsnæðis- málum. — Frá sjónarhóli sveitarstjórna þarf kaflinn um verkamanna- bústaði að taka miklum breyt- ingum, ef verkamannabústaðir eiga að verða vaxandi þáttur i að leysa húsnæðisvanda efnalit- ils fólks viðs vegar i landinu, sem brýn þörf er að verði, nefni ég t.d. kaflann um endurkaupa- skyldu sveitarfélaga, endur- söluákvasðin, lengingu lánstima úr 32 árum i 50 ár o.fl. Furðu gegnir, að enginn sér- stakur fulltrúi sveitarfélaga, sem hefur reynslu af verka- mannaibúðarkerfinu, hefur komið nálægt þessari endur- skoðun. Það er skoðun min að félags- legar ibúðarbyggingar heyri fyrst og fremst undir verksvið sveitarfélaga, það sannar reynslan, þess vegna eiga sveitarstjórnir að vera ráðandi afl um félagslegar byggingar. I væntanlegri samstarfsnefnd um félagslegarbyggingar, ef að STEFNAN? ER ÞETTA um fjölmiðlaauglýsingu félagsmálaráðherra i húsnæðismálum Er f jölmiðlaauglýsing félags- máíaráðherra um nýja húsnæðis löggjöf stefna rikisstjórnarinn- ar? 1 samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna segir svo: Húsnæðismál. „Áhersla verði lögð á félags- leg sjónarmið i húsnæðismál- um. Sett verði löggjöf um rétt- indi leigjenda, löggjöf um verkamannabústaði verði endurskoðuð, stefnt verði að þvi að hækka húsnæðislán og létta fjármagnsbyrði með lengingu lánstima". Samkvæmt lýsingu ráðherra i fjölmiðlum af þessum mikil- væga lagabálk, fæ ég ekki betur séð en að i vissum grundvallar- atriðum sé verið að stiga skref afturábak og raunar gegn stefnuyfirlýsingu stjórna rflokk- anna. — 1 dag er lánstimi almennra húsnæðislána 26ár — boðskapur ráðherra er að lánstimi verði styttur i 21 ár — almenn lán hækki i 80% á tiu árum og vextir 3 1/2%, verðtryggingu 100%. — Ég tel að þetta sé röng stefna, sem eykur erfiðleika húsbyggj- enda stórlega, ekki sist unga fólksins, sem allir vilja styrkja til að koma sér upp húsnæði. Min skoðun er sú, að lán til frumbyggjenda eigi að hækka strax í 80%, en til annarra á næstu fimm árum. Lánstimi verði ekki styttri en 30 ár. Vextir 2-2 1/2%, verðtrygging 100%. — Þetta er yfirlýst stefna Fram- sóknarflokksins, sem itrekuð var á si'ðasta flokksþingi. Félagslegar umbætur felast ekki sist i slikum breytingum. Að s jálfsögðu eru ýmis atriði i væntanlegu framvarpi til bóta Alexander Stefánsson alþingismaöur: .......... M j lögum verður, tel ég nauðsyn að tilnefndur verði fulltrúi sveitar- félaga. Sama er að segja um leigu- ibúðir, eins og útskýring ráðherra er, verður ekki hægt fyrir sveitarfélög að byggja leiguibúðir að þessum kafla óbreyttum. Það kemur sjálfsagt mörgum á óvart, að viðgengist hefur um langt árabil, að verðtrygging lögbundins skyldusparnaðar ungs fólks skuli hafa verið með þeim hætti, er fram kom i máli ráðherra. — Þetta verða stjórn- völd að láta leiðrétta nú þegar. Ég treysti þvi, að ný löggjöf um húsnæðismál verði raun- verulega ný stefna i húsnæðis- málum. Við hljótum að hafa öðlast mikla reynslu á liðnum árum i þessum málum, sem við endurskoðun laganna ætti að koma aö fullum notum. Þess vegna verður ný húsnæðismála- löggjöf að vera spor fram á viö til hagsbóta fyrir alla sem henn- ar eiga að njóta. EFLUM TlMANN Sjálfboðaliðar hringi i sima 86300 eða 86538, Siðumúla 15 Reykjavik, á venjulegum skrif- stofutíma. Þeim sem senda vilja framlög til blaðsins er bent á að giró- seðlar fást i öllum pósthúsum, bönkum og sparisjóðum. Söfn- unarreikningurinn er hlaupa- reikningur nr. 1295 i Samvinnu- bankanum. Styrkið Tímann Fyllið út þennan seðil og sendið til Tímans í pósthólf 370, Reykjavík Ég undirritaður vil styrkja Timann með þvi að greiða i aukaáskrift P~j heila Q hálfa á mánuði Nafn__________________________________________ Heimilisf.----------------------------------— Sími

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.