Tíminn - 09.10.1979, Síða 9
Þriöjudagur 9. október 1979
9
HM!Sí!í'.Í'.
Félag ungra framsóknarmanna leitar hugmynda launþega:
Leitum nýrra sparnaðarleiða
„Teljum hægt að spara I rikisrekstri án þess að ráðast á launin eða minnka þjónustuna”
HEI — Félag ungra
framsóknarmanna i
Reykjavik hefur tekið
til meðferðar það stór-
mál, hvernig spara
megi i rekstri fyrir-
tækja án þess að lækka
laun eða minnka þjón-
ustu.
I framhaldi af þvi hefur FUF
nýlega sent starfsmannafélög-
um allra rikis- og borgarstofn-
ana bréf, þar sem segir m.a.:
„FUF i Reykjavik hefur
áhuga áþviaðleita til almennra
launþega um hugmyndir til
lausnar hinna margþættu
vandamála sem stjórnvöld
þurfa að glima við. Það er trú
félagsins að með þvi móti sé
mögulegt að auka virkt lýöræði i
landinu og treysta samstöðu al-
mennings til lausnar alvarlegra
vandamála. Spurningar dagsins
eru: Hvernig bæta má stöðu
rikissjóðs og draga Ur verðbólgu
án þess að auka stöðugt álögur á
almennt launafólk? Á að draga
úr framkvæmdum hins opin-
bera? Hvar er hægt að spara?
Hvernig getur ykkar stoftiun
stuðlað að minnkuðum Utgjöld-
um hins opnbera?”
„Við i stjórn FUF teljum að
það sé hægt að spara á rikis-
stofnunum, án þess að það bitni
á launum starfsfólksins eða á
þjónustu stofnananna. Til þess
þurfi fyrst og fremst að ná sam-
stöðu og vilja meðal starfsfólks-
ins,” sagöi formaður FUF Jó-
steinn Kristjánsson um ástæð-
una fyrir þessu bréfi.
Jósteinn sagði að með bréfinu
væri ætlunin að freista þess að
vekja áhuga hjá starfsfólki
stofnananna á að taka höndum
saman til raunhæfra aðgerða,
sem leitt gætu til sparnaöar.
Aöspurður kvaðst Jósteinn
sannfærður um vilja fólks til aö
koma til móts við rikiö i sparn-
aði, með öðrum aðferðum en
þeim að ráðast á launagreiösl-
ur, þvl þaö væri engin lausn.
Reyndar væri gallinn sá að allt
of margir heföu fengið það
óæskilega uppeldi að það væri
segir formaöur FUF
allt i lagi að eyöa og sóa. Breyt-
ing þyrfti þvi fyrst og fremst að
eiga sér staö i hugsunarhætti
fólks.
Jósieinnsagöi að nokkrir aöil-
ar sem fengið hefðu þetta bréf
hefðu þegar haft samband við
FUF-stjórnina. Hefðu þeir sýnt
þessu máli mikinn áhuga og
þakkað FUF frumkvæðið. Ætl-
unin væri að boða formenn
starfsmannafélaganna fljótléga
saman til fundar til að heyra álit
þeirra og skoðanir á hugsanleg-
um árangri.
Tómas stjómar fundi um Kampucheu
Þegar skýrsla her jarþingsfundi, föstu- íslands hjá SÞ, fundi um
kjörbréfanefndar um daginn 21. september stundarsakir. Myndin
Kampucheufulltrúana sl., stjórnaði Tómas Á. hér með er tekin við það
var til umræðu á alls- Tómasson, fastafulltrúi tækifæri.
„Vonandi að menn
hafi vitkast”
— sagði Vilmundur, sem reiknar með
stórauknu fylgi i næstu kosningum
HEI — „Við treystum þvi, að við
munum bæta mjög verulega við
okkur fylgi I nýjum kosningum,
annars værum við varla að
þessu”, svaraði Vilmundur
Gylfason spurningu um það,hvaö
hann teldi batna með nýjum
kosningum.
— 1 stjórn meö hverjum álitur
þú að Alþýðuflokkurinn komi
frekar sinum málefnum fram,
eða býst þú við að flokkurinn fái
hreinan meirihluta?
— Varla ennþá, en auðvitað
hlýtur stjórnmálaflokkur aö
hugsa þannig, þeim mun betri út-
komu sem hann fær i kosningum,
þvi sterkari er hann. Af mistök-
unum veröa menn að læra og viö
trúum þvi aö kjósendur séu sama
sinnis.
— Teldir þú samvinnu viö
Sjálfstæðisflokkinn betri?
— Ekki var það aö sjá árin
1974-78. En fyrst og fremst er á-
byrgöarlaust aö stjórn sitji I 60%
verðbólgu. Siöan - verð *
ur framhaldið að að ráðast af úr-
slitum kosninganna, og vonandi
að menn hafi vitkast.
Hjálmar fékk lausn
í gær
Kás — I gær veitti Ragnar Arn-
alds, menntamálaráöherra,
Hjálmari Arnasyni, nýsettum
skólastjóra Grunnskóla Grinda-
vikur, lausn frá embætti, eftir aö
uppsagnarbréf Hjálmars hafði
legið i salti yfir helgina, I þeirri
von að hann skipti um skoöun.
Nú er þvi komin upp sú staöa,
eftir allt fjaðrafokið, að Grindvik-
ingar eru skólastjóralausir. Or
henni eru tvær leiðir, annars veg-
ar sú, aö embættið veröi auglýst,
náttúrlega með löglegum fyrir-
vara, og veitt i framhaldi af þvi,
eða sett verði I stööuna án auglýs-
ingar i eitt ár.
Skólanefnd Grunnskóla
Grindavikur kemur saman til
fundar siðdegis I dag ásamt
fræðslustjóra Reykjanesumdæm-
is, þar sem tillaga veröur gerö
um málsmeöferö til mennta-
málaráðherra.
Sveitaheimili
32ja ára gömul stúlka óskar eftir að komast á gott sveita-
heimili (ekki langt frá Reykjavik) sér til hvlldar og hress-
ingar. Til greina kæmi að veita tilsögn i ensku og dönsku
(stúdentspróf.) Simi 35698.
Framhaldsstofnfundur
félags áhugafólks og aðstandenda þeirra
sem eiga við geðræn vandamál að striða
verður haldinn i kvöld9. október kl. 20.30 i
Hreyfilshúsinu.
U ndir búningsst jórn
NORRÆNA HÚSIÐ
Norræn menningarvika 1979
í kvöld kl. 20:30
Sænski rithöfundurinn 0.
kynnir og les úr verkum sínum
JERSILD
í sýningarsölum stendur yfir sýning á listaverkum
eftir CARL-HENNING PEDERSEN "
Þroskahjálp á
Vesturlandi
Aðalfundur félagsins verður haldinn i
Snorrabúð, Borgarnesi laugardaginn 13.
október og hefst kl. 14.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Opið kl. 14 til 19
I bókasafni og anddyri hússins er sýning á
myndskreytingum við ævintýri H. C. ANDERSENS
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
Stjórnin.