Tíminn - 09.10.1979, Blaðsíða 13
i
Dómari, Dómari
i deildinni en Moss aðeins einn,
þannig að möguleikar félagsins
eru ekki aldeilis úr sögunni.
Mikiö mega dómararnir I
körfuknattleiknum taka sig á ef
ekki á oft illa að fara i vetur. A
nýafstöðnu Reykjavikurmöti
kom það oft fyrir að dómararnir
virtust alls ekki vera með, ef
svo má að orði komast. Sérstak-
lega var ieikur KR og Vals iila
dæmdur.
Var einkum áberandi hvað
hinir erlendu leikmenn, og þá
einkum og sér i lagi Tim Deyer
komst upp með mikið kjaftbrúk
við dómarana.
Vera má, að dómarar séu ekki
komnir i æfingu ennþá, en það
verður hér með vonað fyrir
hönd allra, sem áhuga hafa á
körfunni, að dómaramir komist
sem fyrst i æfingu og þá munu
þeir væntanlega skila hlutverki •
sinubeturenþeirhafahingaðtil I
gert. I
—SK. ■
Tveir nýliðar í
landsliðshópnum
— I handknattleik sem mætir Tékkum á mánudags- og þriðjudagskvöld
Handknattleikssamband Is-
lands boðaöi i gær blaðamenn á
sinn fund og tilkynnti landsliðs-
hóp þann sem leika á gegn Tékk-
um. Leikirnir fara fram á mánu-
dags- og þriðjudagskvöld.
Tveir nýliðar eru i hópnum
þeir Steinar Birgisson Viking og
Bjarni Bessason úr IR.
Annarslltur hópurinn þannig út
á prenti:
Markverðir:
Jens Einarsson, Viking
Kristján Sigmundsson Viking
Aðrir leikmenn:
Páll Björgvinsson, Víking
Ólaftir Jónsson, Viking.
Erlendur Hermannsson, Viking.
Steinar Birgisson, Viking
Þorbergur Aðalsteinsson Viking.
Stefán Gunnarsson, Val.
Steindór Gunnarsson, Val.
Bjarni Guðmundsson, Val.
Þorbjörn Guðmundsson, Val.
Hörður Harðarsson, Haukum.
Bjarni Bessason, IR.
Ólafur H. Jónsson, Þrótti, fyrir-
liði.
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu er tvennt sem vekur at-
hygli. Fyrir þaö fyrsta er Ólafur
H. Jónsson nú aftur meö landslið-
inu en án hans hefur liöiö þurft að
veraoflengi. Þáeru 11 af þeim 14
leikmönnum, sem valdir eru i Val
og Viking.
Tékkar hafa á að skipa mjög
sterku landsliöi. Island hefur oft
leikiö gegn Tékkum og hefur út-
koman yfirleitt alltaf veriö góð og
er skemmst að minnast jafn-
teflisins i B-keppninni á Spáni, en
lokatölur þar urðu 12:12.
Það skal tekið fram hér, að þeir
leikmenn sem valdir hafa verið i
landsliö 21 ársogyngri komuekki
til greina i hópinn aö þessu sinni
en þar á meðal eru margir sterkir
leikmenn eins og Brynjar Kvar-
an, Val, Atli Hilmarsson, Fram,
Stefán Halldórsson, Val, Sigurður
Gunnarsson, Vikingi, og fleiri.
Landsliðið undir 21 árs mun
leika einn leik gegn Tékkunum á
Selfossi og er þaö kærkomin æfing
fyrir liðið áður en það heldur i
heimsmeistarakeppnina, en liðið
mun leika í Danmörku. —SK.
Reykjavikurmótið í körfuknattleik:
Valsmenn
eru bestir
— sigruðu KR í úrslitaleik 83:72
Valur er Reykjavlkurmeistari i
körfuknattleik 1979. Þeir léku
gegn KR á iaugardag og var það
úrslitaleikur mótsins. Valur sigr-
aði léttilega með 83 stigum gegn
aðeins 72 stigum KR. Valsmenn
unnu alla leiki sina I mótinu, hlutu
10 stig.
Torfi Magnússon var bestur
Valsmanna I leiknum gegn KR og
skoraði 27 stig, hans besti leikur
Tim Dwyer var ekki i essinu sínu
en það kom ekki aö sök. Hann var
þó drjúgur i vörninni.
Hjá KR var enginn öðrum betri.
Webster var slakur að venju
nema I vörn þar sem hann blokk-
eraði mörg skot og tók mörg frá-
köst. En sóknarleikur hans er
ekki upp á marga fiska. Þrátt
fyrir þaö skoraði hann mest eða
18 stig og Geir Þorsteinsson með
16. Fyrsti leikurinn á laugardag
var á milli Fram og IS. Var sá
leikur spennandi lengi framan af
og það var ekki fyrr en á siðustu
sekúndu að Ingi Stefánsson
tryggði IS eins stigs sigur með
hnitmiðuðu langskoti. Lokatölur
urðu 78:77.
Stigahæstir hjá liðunum voru
Trent Smock hjá IS með 36 stig og
Johnny Johnson hjá Fram með 29
stig.
Þá léku 1R og Ármann, og er
skemmst frá þvi að segja, að IR-
ingar voru mun betir i þeirri
viðureign, enda mótstaðan ekki
frá nema einum manni, Danny
Shous, sem að þessu sinni skoraöi
63 stig. Þess má geta að hann
skoraöi aðeins 20 stig i fyrri hálf-
leik á meðan þeir Kolbeinn
Kristinsson og Kristinn Jörunds-
son „dekkuðu” hann en i þeim
siöari, þegar ungu og óreyndu
leikmennirnir fengu að reyna sig,
skoraði hann sem sagt 43 stig. Jón
Indriöason („Madman”) vakti ó-
skipta athygli I leik þessum vegna
látbragða sinna á vellinum, en
hann hitti vel að þessu sinni og
skoraði mest eða 22 stig. Lokatöl-
ur urðu 105:90 fyrir 1R, en segja
má, að IR hafi sigrað Danhy
Shous, slikir eru yfirburðir hans i
Armannsliðinu.
—SK.
Kristján Ágústsson tekur hér eitt af mörgum fráköstum sínum i leikn-
um gegn KR á laugardag.
Timamynd Róbert
Stórsigur hj á Benfica
Benfica, portúgalska
liðið sem flestir tslend-
ingar kannast við frá
því að liðið lék gegn Val
i Evrópukeppninni á
Craca, sem sfnum tíma sigraði
andstæðing sinn stórt
um helgina. Þeir sem
urðu fyrir barðinu á
þeim var lið Estoril en
Benfica sigraði 3:1.
Porto er enn i efsta sæti deild-
arinnar meö 13 stig en Benfica
er i öðru sæti með 12 stig. Þá
koma tvö liö meö 11 stig en þaö
eru Belenses og Sporting Lissa-
bon.
öll liðin hafa leikið sjö leiki
þannig að útlit er fyrir
spennandi keppni I portúgölsku
knattspyrnunni.
úrslit i öðrum leikjum um
helgina urðu sem hér segir:
Porto-Beira Mar
Roi Ave-Guimaraes
Setubal-Uniao De Leira
Portimonense-Belenenses
Braga-Sporting
Espinho-Varzim,
3:0
1:1 .
1:0
1:2
2:3
2:0
SK,
Pétur Pétursson heldur hér á
skó er hann vann sér til
eignar sem markhæsti leik-
maður tsiandsmótsins áður
en að hann hélt til Hollands.
Nú keppir Pétur aö gull-
skónum sem veittur er þeim
Ieikmanni sem skorar flest
mörk I Evrópu. Ahorfendur
Feyenoord fóru illa með
hann á laugardag er þeir
„stálu” af honum tveimur
mörkum.
endum
tvistrað
með
og
hundum
Pétur Pétursson og
félagar i Feyenoord
voru heldur betur i
sviðsljósinu um helgina
þegar liðið var að leika
á útivelli gegn Nac
Breda. Ekki var liðin
nema klukkustund af
leiknum þegar annar
linuvörðurinn fékk
matardisk i höfuðið frá
einum áhorfenda
Feyenoord.
Þeir ólátaseggirnir höföu haft
nokkrun formála að þessum
ólátum þvi er þeir komu til
bæjarins brutu þeir allt og
brömluðu á járnbrautarstöð
einni og varð lögreglan aö
tvistra hópnum með kylfum og
hundum. Nokkrir tugir voru
handteknir.
Þegar linuvöröurinn varð
fyrir þessu óhappi var staðan
2:0 fyrir Feyenoord og haföi
Pétur þá skorað bæöi mörk sins
liðs. Þessi ólæti kunna að hafa
slæmar afleiöingar i för með sér
fyrir Feyenoord þvi svo getur
hæglega farið aö liðið verði
dæmt I sektir og missi auk þess
nokkra heimaleiki og getur það
vegið þungt i þeirri miklu og tvi-
sýnu baráttu sem nú er i knatt-
spyrnunni i Hollandi.
Blaðinu tókst ekki aö ná sam-
bandi við Pétur eftir leikinn þar
sem hann hélt rakleitt til
Pólands þar sem hann leikur
með landsliðinu gegn Póllandi á
fimmtudag.
—SK.
Þriöjudagur 9. október 1979
ÍÞRÓTTIR
IÞR0TTIR