Tíminn - 11.10.1979, Síða 16
Heyvinnuvélar f
fjölbreyttu úrvali.
Til afgreiðslu strax.
J}/táLi£cUiAféJLcUi, hf
Kynnið ykkur verð-
lækkunina á Massey-
Ferguson
hin stgildadráttarvél. XJlhöJtíaJlA/éLaJv hf,
MP
Massey Ferguson
f
FIDELITY
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
Pantiö myndalista.
Sendum í póstkröfu.
SJÖNVAL 'dSí^töo
Fimmtudagur 11. október 1979
Skólatannlæknar gera það gott hjá borginni:
Hæstu daglaun 155 þús. kr.
— Yfirskólatannlækni gefin fyrirmæli um að láta þá stimpla sig úr og í vinnu
Kás — ,,Þaö hefur komið i ljós
samkvæmt minni úttekt að
hæstu daglaun skólatannlækna
geta farið upp i 155 þús. kr.
Samkvæmt þessu tel ég aö
kauptaxti þeirra sé alltof hár,
að ekki sé meira sagt, burtséö
frá því að fæstir þeirra vinna
samningsbundinn vinnutfma,
eins og ráð er fyrir gert”, sagði
Jón Aöalsteinn Jónasson, sem á
sæti sem fulltrúi Framsóknar-
flokksins I heilbrigðisráði
borgarinnar, en þaö hefur m.a.
umsjón með skólatann-
lækningum I borginni.
Hjá borginni starfa nú um 24-
26 skólatannlæknar. Þeir vinna
allir aðeins hálfan daginn. Ef
gengið er út frá taxta þeirra, þá
yrði heilsdagskaup þeirra á
bilinu frá 80-155 þús. kr. Miðaö
við meöaltalslaun hvers
mánaðar, þá gætu árstekjur
þeirra orðið nálægt 30 millj. kr.
Það skal þó tekiö fram að hér er
aöeins átt við nettó laun þeirra,
en borgin leggur þeim til hús-
næði, áhöld og efni, auk
þjónustustúlku. Þessar tölur
sem hér hafa verið nefndar eru
miðaðar við laun I júli en síðan
hafa oröið verulegar kaup-
hækkanir. Láta mun nærri að
kaup skólatannlæknis hjá borg-
inni, sem ynni fullan vinnudag,
næmi fjórföldu kaupi yfirlæknis,
en þeir hafa ekki verið taldir
afskiptir hvað kaup varðar
hingað til.
„Við erum að skoða þetta
mál, og munum væntanlega
óska eftir þvi aö fram fari
endurskoðun á kauptöxtum
tannlæknanna”, sagöi Jón Aðal-
steinn i samtali við Tímann.
Sagði Jón ekki nóg með að
kauptaxti tannlæknanna sé
óeðlilega hár, heldur einnig
það að þeir vinni ekki
samningsbundinn tima, eins
og ráð er fyrir gert i samning-
um. Þannig vinna flestir
þeirra ekki nema um 2-3
stundir á dag, I stað fjögurra
stunda. Þvi hafa yfirskólatann-
lækni verið gefin fyrirmæli um
að skólatannlæknarnir verði
látnir stimpla sig I og úr vinnu,
og I annan stað að sjá til þess að
þeir vinni umsaminn vinnutlma
samkvæmt þeim samningi sem
þeir hafa hver fyrir sig undir-
ritað.
Aætlað er að borgin verji um
einum milljaföi króna til skóla-
tannlækninga á þessu ári, og
þar af um 600 millj. kr. einungis
I kaupgreiðslur til tann-
læknanna.
10405landar
komu að utan
í semtember en 6258 útlendingar
AM — Samkvæmt mán-
aðaryfirliti útlendinga-
eftirlitsins komu 10405
islendingar frá útlöndum í
septembermánuði/ en 6258
útlendingar.
Flestir útlendinganna komu frá
Bandarlkjunum, eða 2232, en næst
flestir frá V-Þýskalandi, 608. 414
komu frá Sviþjóö, 394 frá
Danmörku, 313 frá Norgei og 103
frá Finnlandi. Frá Bretlandi
komu 386, 254 frá Spáni, 440 frá
Sviss, 105 frá Austurríki og 167 frá
Hollandi. 94 komu frá Italiu, 85
frá Kanda og 52 frá Japan, en
innan við 50 manns komu frá
öðrum þjóðlöndum.
Með skemmtiferðaskipum
komu til landsins 16351 I 25
feröum og voru V-Þjóöverjar
flestir meðal þeirra feröamanna,
eða 11082. 1660 farþegar voru frá
Bretlandi og 814 frá Sviþjóö.
19 árekstrar í gær
FRI — Undir kvöldið I gær höföu undanfarna daga hefur veriö
orðiö 19 árekstrar f Reykjavik og frekar lftið um árekstra. Engin
tvö umferöarslys. Þessi fjöldi alvarieg slys urðu I þessum
slysa er með meira móti en árekstrum.
Ágreiningur milli bygginganefndar og
borgarstjórnar:
Skotiö undir úr-
skurð ráðherra
Kás — Upp er kominn
ágreiningur á milli bygginga-
nefndar Reykjavfkur og borgar-
stjórnar um hvort leyfa eigi við-
byggingu við húsiö númer 13 viö
Þingholtsstræti. Bygginganefnd
sætti sig ekki við viðbygginguna
eins og ráð er fyrir gert, en
borgarstjórn hefur samþykkt
hana. Húsið við Þingholtsstræti 13
er fyrsta og eina húsið I Reykja-
vfk sem er friöaö svokallaðri B-
friðun, en það er af langhúsagerö.
Samkvæmt ákvæði I bygginga-
lögum er ágreiningi bygginga-
nefndar og sveitarstjórnar, i
þessu tilviki borgarstjórnar,
ávallt skotið undir úrskurð
félgasmálaráðherra.
Húsfriðunarnefnd hefur fyrir
sitt leyti samþykkt fyrirhugaða
viðbyggingu við húsiö, en borgar-
minjavörður er hins vegar á
sömu skoðun og bygginganefnd.
Arnarflug leigir
Otter af Flugfélagi
Norðurlands
AM — Arnarflug hefur nú tekiö
á ieigu Twin Otter vél frá Flug-
félagi Noröurlands, til þess að
mæta auknum farþegafjölda,
sem oröiö hefur I innanlands-
flugi félagsins, frá þvf er þessi
liður kom til sögu I rekstri þess
fyrir tæpum mánuöi
Leigutiminn á vélinni er til 1.
febrúar 1980, meö mögulegri 3ja
mánaða framlengingu, en til
þessa hefur Arnarflug verið
með ieiguflugvél af Islander-
gerö frá Flugfélagi Austurlands
og Cessna leiguvél frá Sverri
Þóroddssyni.
Arnarflug hefur að undan-
förnu veriö að kanna markaðinn
á stærri vélum og hafa fulltrúar
frá félaginu veriö á ferð i Eng-
landi og Bandarlkjunum i þeim
tilgangi. Hafa helst komið til
greina vélar af gerðinni Twin
Otter, Skyvan, Nomad og
Cessna Titan.
Eins og maður hafi ekki verið
viðstadidur á Bessastöðum 1.
september i fyrra til að fylgja
nýju vinstristjórninni úr hlaöi.
Einhverjir voru þá að spá þvi að
maöur boðaöi henni feigð, — ja
svei þvi.
1. september 1978
8. október 1979
Og svo bara nýr meirihluti. Ja hvur... Best að fá sér far til Bessastaða til að sjá hverjir nýju viöreisn-
arráðherrarnir verða. (Tlmamyndir: Róbert)
Gríndavik:
Yfirkennarí
fær stöðuna
JSS — i fyrrakvöld kom skóla-
nefnd Grindavikur saman til
fundar þar sem ræddar voru
leiðir til að fánýjan skólastjóra til
starfa. Urðu málalok þau, að
samþykkt var samhljóða að beina
þeim tilmælum til menntamála-
ráðherra að Gunnlaugi Dan
Ólafssyni, settum yfirkennara,
yrði falið að gegna starfi skóla-
stjóra fram til vors. Hefur ráð-
herra fallist á þessi málalok.
Jón Gröndal skólanefndar-
maður sagði i viötali við Timann i
gær, að þessi tillaga hefði veriö
samþykkt samhljóða á fundinum.
1 vor yröi skólastjórastaöan svo
auglýst laús til umsóknar.
1 gærmorgun gekk fræðslu-
stjórinn í Reykjanesumdæmi,
Hegli Jónasson, á fund mennta-
málaráðherra með samþykktina
og féllst ráðherra á að verða viö
tilmælum skólanefndarinnar.
Viröist þvi sem kyrrö og ró sé
komin á skólahald I Grindavik i
bili a.m.k.
N.k. fimmtudag verður haldinn
annar fundur hjá skólanefndinni,
því enn er eftir að ráða yfir-
kennara i stað Gunnlaugs Dan,
sem tók sem kunnugt er við þvi
starfi, eftir að Halldór Ingvason
sagöi þvl lausu, vegna óánægju
með framvindu mála.
fflað-
burðar-
böm
óskast
Timann vantar fólk
til blaðburðar i eftir-
talin hverfi:
Nesvegur.
Sörlaskjól.
Háteigsvegur.
Sími 86-300