Tíminn - 11.11.1979, Side 4
Sunnudagur 11. nóvember 1979
iiJ.il il “.11*
í spegli tímans
Melanie vill
breyta heiminum
Fyrir f jórum árum fór Melanie Donahoe að vinna hjá
sjónvarpsstöð í San Francisco sem skrifstofustúlka í
afgreiðslunni. Núna er hún orðin framleiðandi að
mikilsvirtri fréttadagskrá, sem er varpað frá
Washington, til 42 stórborga í Bandaríkjunum. Þar
sem Melanie er ekki nema 35 ára, hef ur þessi snöggi
frami hennar vakið athygli margra. — Ég hef komið
mörgum á óvart með því, hvað ég er metnaðargjörn,
segir hún. Þegar hún byrjaði að vinna, hafði hún með
sér handsnyrtitæki. En áhugi hennar vaknaði þó óðar
á starfinu, svo að enginn tími gafst til að nota þau,
heldur spurði hún allt starfsfólkið, sem fyrir var, í
þaula. Hún varð því f Ijót að komast inn í allt það, sem
sjónvarpsrekstur varðar, og þrem mánuðum síðar var
hún farin aðskrifa, stjórna og kynna hina ýmsu þætti.
— Ég vann eins og vitleysingur, segir hún,en þáhafði
hún ekki tekið sér neitt frí í níu mánuði, utan tvær
helgar. Núna þarf hún ekki að leggja eins hart að sér
þar sem hún hefur fjölmennt starfslið undir sinni
stjórn. En Melanie stef nir hærra, hún stef nir að því að
stjórna eigin fyrirtæki, sem f ramleiða skal sjónvarps-
þætti. — Þegar allt kemur til alls, segir hún,
— ef þú hef ur völdin, getur þú haft áhrif til
að breyta heiminum.
Hvor er
hvor?
Það er nú vissara að treysta
ekki um of merkingunni á bol-
unum sem þær bera, eineggja
átta ára tvíburarnir Terri og
Sherri frá Amory, Mississippi.
Þær eiga nef nilega tii að skipt-
ast á bolum, bara svona í gríni,
og þá lendir m.a.s. amma
þeirra í vandræðum með að
þekkja þær i sundur. Þær syst-
ur voru reyndar að vinna til
fyrstu verðlauna í samkeppni
sem haldin er um það, hvaða
eineggja tvíburar i Bandaríkj-
unum á aldrinum 6-12 ára eru
líkastir. — Við vissum allan
tímann, að við myndum vinna,
segir sú, sem merkt er Sherri.
— Það eina, sem við þurftum
að gera, var að standa og
brosa framan í dómarana,
bætir Terri við. En þær urðu að
fara varlega í brosin. Ekki
mátti brosa of gleitt, því að þá
kemur í Ijós eina einkennið,
sem greinir þær að, í hægri
kinn Terriar leynist spékopp-
ur. Að öðru leyti er útlit þeirra
eins. Þær eru jafnháar, 140
cm, og jafnþungar, 25.5 kg.
Þær eru báðar í ballet, stepp-
dansi, píanótímum, þeim
þykja góðar pizzur, og uppá-
haldsísinn þeirra er með
jarðarberjabragði. Þær eiga
sameiginlegan uppáhaldsvin,
skólabróður sinn, sem ekki
gerir neina tilraun til að
þekkja þær í sundur. Hann
gefur þeim t.d. eins afmælis-
gjaf ir. En þó að útlitið sé nán-
ast eins, þekkja félagar þeirra
í kirkjukórnum þær í sundur.
Söngrödd Sherriar liggur að-
eins lægra.
bridge
Oft leynast aukamöguleikar l spilum,
sem erfitt er aö koma auga á fyrirfram.
Noröur.
SK4
H 8532
TD86
LAG73
Vestur.
S 2
H 764
TG1075
L109862
Suöur.
S ADG975
H AKD
TA432
L -
Suöur spilaöi 6 spaöa og fékk út laufa-
tiu. Samningurinn virtist standa og falla
meö tigulkóng i vestur, svo suöur stakk
upp laufás f blindum og henti tigli. Hann
tóknæst trompin, tók svo á tigulás og spil-
aöitfgli á drottningu. Enaustur átti kóng-
inn og suöur varö aö gefa einn tigulslag f
viöbót.
Suöri yfirsást smá aukamöguleiki. 1
fyrsta slag á hann aö setja litiö lauf f
blindum og trompa heima. Þá tekur hann
trompin, AKD i hjarta og tigulás. Nú spil-
ar hann tigli á drottningu. Ef vestur á
tigulkóng er allt i orden en ef austur á
kónginn annan og hjörtun voru 3-3 þá er
austur nú endaspilaöur: veröur aö spila
laufi og 13. hjartaö í blindum veröur 12.
slagur sagnhafa.
Austur.
S10863
HG109
TK9
LKD54
Hér eigast viö tveir „áhugasér-
Jræöingar” þar sem svartur á leik og
Ihann finnur leiö sem færir honum sigur f
þessari stööu
N.N.
Rh4
BxHg3
Rf5 skák
...Hg5!
Hg3!!
KxBg3
Kf4!
Gefiö þvi svartur nær i drottningu.
krossgata
a
0)
<0
<2,
3
W
1) Þjóöhöföingja. 6) Hljóöfæri. 10) Eins.
11) Tfmabil. 12) Birta. 15) Blina.
Lóörétt
2) Keyröu. 3) öfug röö. 4) Tröll. 5) Vinnu-
kona. 7) Stia. 8) Læsing. 9) Alasi. 13)
Dauöi. 14) Söngfólk.
Ráöning á gátu No. 3151.
Lárétt
1) Komma. 6) Húsavfk. 10) At. 11) Sæ. 12)
Nirflar. 15) Stáss.
Lóörétt
2) Oss. 3) MLV. 4) Ghana. 5) Skæri. 7) Úti.
8) Arf 9) Isa. 13) Rit 14) Lús.
með morgunkaffinu
Tannlæknirinn fyllti 50% tærri holur vegna þess aö mér eru svo naumt
skammtaöir vasapeningar aö ég hef ekki efni á aö kaupa sælgæti.
* 1
— Hvaöa fjandans merki sendir þú
þeim eiginlega?